Fréttablaðið - 10.10.2020, Page 32
RAFMAGNAÐ
STARF
Rafvirki/rafveituvirki
Um er að ræða ölbreytt starf við að tryggja örugga aendingu raforku á Íslandi.
Starfsvettvangur er um allt land og starfsstöðvarnar eru á Akureyri og Egilsstöðum.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Menntun í rafvirkjun eða rafveituvirkjun
• Reynsla af vinnu við háspennu æskileg
• Sterk öryggisvitund
• Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
• Metnaður og rík ábyrgðarkennd
Starfs- og ábyrgðarsvið
• Rekstur og viðhald á raúnaði í tengivirkjum (há- og lágspennubúnaði)
• Þátttaka í framkvæmdaverkefnum við endurnýjun og nýbyggingar flutningsvirkja
• Undirbúningur og frágangur verkefna á starfsstöð
Umsóknarfrestur er til 25. október 2020. Sótt er um starfið á landsnet.is. Umsókn þarf að
fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf. Nánari upplýsingar veitir Ólafur Kári Júlíusson,
mannauðssérfræðingur, mannaudur@landsnet.is.
Við leitum að ölhæfu og
framúrskarandi samstarfsfólki
á vinnustaðinn okkar.
Landsnet | Gylfaflöt 9 | 112 Reykjavík | Sími 563 9300 | landsnet@landsnet.is | www.landsnet.is
Vegna nýrra verkefna og aukinna
umsvifa leitum við að metnaðarfullum
einstaklingum í hóp starfsmanna hjá
félagi í mikilli þróun með sterka sögu.
Ef nákvæm vinnubrögð og góð eftirfylgni
eiga við um þig þá hlökkum við til að
heyra frá þér.
Þjónustustjóri
Við leitum að einstaklingi sem hefur reynslu
af viðskiptastýringu, getur haldið kynningar
og kann listina við að skapa traust og þróa
viðskiptasambönd.
Starfssvið:
• Tengslamyndun og náið samstarf með
viðskiptavinum þar sem þjónustustjóri
er aðaltengiliður Opinna Kerfa
• Sala og innleiðing á vörum og þjónustum
ásamt samningagerð við viðskiptavini
• Utanumhald um verkefni, samskipti,
og reikningamál
• Útboðs- og tilboðsgerð
Hæfniskröfur:
• Reynsla af störfum í upplýsingatækni eða
viðskiptastjórnun á fyrirtækjamarkaði skilyrði
• Þekking á hýsingar- og rekstrarlausnum
mikill kostur
• Miklir skipulagshæfileikar og góð færni
í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði, drifkraftur og gott þjónustuviðmót
Enterprise Consultant
(Reynslumikill ráðgjafi í upplýsingatækni)
Við leitum að einstaklingi sem hefur reynslu af
ráðgjöf, uppsetningu tölvukerfa og rekstri þeirra.
Skilur stefnu og strauma í upplýsingatækni og
hefur ástríðu fyrir að leiðbeina viðskiptavinum
inn á spennandi brautir. Getur haldið kynningar
á skýjalausnum, rekstri tölvukerfa og miðlægum
búnaði.
Starfssvið:
• Ráðgjöf til viðskiptavina um val og innleiðingu
miðlægra lausna
• Sala á vörum og þjónustum Opinna Kerfa
• Útboðs- og tilboðsgerð
Hæfniskröfur:
• Áralöng reynsla af störfum í upplýsingatækni
eða kerfisstjórnun skilyrði
• Þekking á miðlægum rekstri í upplýsingatækni
skilyrði
• Miklir skipulagshæfileikar og góð færni
í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði, drifkraftur og gott þjónustuviðmót
Sölufulltrúi
Við leitum að einstaklingi sem hefur reynslu af
sölustörfum, brennandi áhuga á upplýsingatækni
og á auðvelt með samskipti við viðskiptavini,
hvort sem er í síma eða í eigin persónu.
Starfssvið:
• Sala á vörum og lausnum í gegnum síma
og samskiptaforrit
• Tilboðsgerð til viðskiptavina
• Utanumhald viðskiptasambanda, samskipti,
og reikningamál
• Útboðs- og tilboðsgerð
Hæfniskröfur:
• Reynsla af sölustörfum í upplýsingatækni eða
viðskiptastjórnun á fyrirtækjamarkaði kostur
• Þekking á tölvubúnaði og rekstrarlausnum
mikill kostur
• Miklir skipulagshæfileikar og góð færni
í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði, drifkraftur og gott þjónustuviðmót
Einungis er tekið á móti umsóknum á opinkerfi.alfred.is og er farið með allar umsóknir
sem trúnaðarmál. Öllum umsóknum verður svarað og er umsóknarfrestur til 30. október.
Nánari upplýsingar veita Ólafur Örn Nielsen, aðstoðarforstjóri, í 865-4520 / on@ok.is eða
Reynir Stefánsson, framkvæmdastjóri vöru- og hugbúnaðarsviðs í 664-3070 / reynir@ok.is. Öruggur samstarfsaðili í hýsingu og rekstri tölvukerfa
Hugsar þú í lausnum?