Fréttablaðið - 10.10.2020, Blaðsíða 62
Það tilheyrir þessum aldri að
maður hugsar meira um for-
tíðina en framtíðina.
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta
í yfir 70 ár
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er.
Margrét Ásta GuðjónsdóttirSverrir EinarssonKristín Ingólfsdóttir
Minningarkort á hjartaheill.is
eða í síma 552 5744
Aðalsteinn reiknar með að hátíðahöld vegna afmælisisins frestist um tvö ár. „En þá verður tekið á því!“ FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Stórveisluáformin fóru út um þúfur vegna ásóknar veir-unnar. Ég hugsa að hátíða-höldin frestist um tvö ár. En þá verður tekið á því,“ segir Aðalsteinn Eiríksson, fyrr-
verandi skólameistari Kvennaskólans í
Reykjavík, sem er áttræður í dag. Hann
segir aldurinn fara vel í sig. „Ég er við
góða heilsu, syndi, spila borðtennis og
geng. Les minna en áður, sjónin er farin
að þreytast og tölvuskjárinn tekur tíma
og orku sem ég notaði áður til að lesa. En
ég stytti mér stundir með grúski í efni
Þjóðskjalasafnsins, það er svo mikið
komið á netið; kirkjubækur, handrit og
alls konar fróðleikur.“
Verkefnið segir Aðalsteinn vera
framhald bókar um uppeldisstað sinn
á Núpi í Dýrafirði. „Faðir minn var þar
skólastjóri og prestur og ég skrifaði sögu
Núpsskóla fyrir nokkrum árum. Nú er
ég að pæla gegnum íbúaþróun í Dýra-
firði öllum. Ég var oft hjá afa og ömmu
á Gemlufalli og get yljað mér við minn-
ingar um að hafa gengið á skinnskóm og
borðað mikið af harðfiski og súru slátri.“
Aðalsteinn var nemandi í Núpsskóla,
síðar kveðst hann hafa kennt þar einn
vetur en flutt að vestan til háskólanáms.
„Faðir minn gerðist þjóðgarðsvörður á
Þingvöllum eftir veruna á Núpi og þar
var ég við sumarstörf í nokkur ár og
líka í síld á Siglufirði. Ég var kennari um
langt árabil, síðar skólameistari og enn
síðar ráðuneytismaður. En lærði sögu og
landafræði líka í háskólanum og eitt stig
í guðfræði.“
Varstu að spá í prestinn? spyr ég. „Nei,
við vorum sammála um það feðgarnir
að guðfræðin væri betri undirbúningur
undir kennslu en f lest annað,“ segir
Aðalsteinn, sem er samt á því að besti
parturinn af háskólanáminu hafi verið
félagsskapurinn. „Mér finnst skemmti-
legt að renna huganum yfir liðna daga,“
segir hann. „Það tilheyrir þessum aldri
að maður hugsar meira um fortíðina en
framtíðina.“ Honum finnst framvinda
þjóðfélagsins hafa verið á jákvæðum
nótum. „Allt mitt æviskeið hefur verið
framfaraskeið. Fyrsta alvöru bakslagið
er núna, en það er ekki okkur að kenna
og úr öllu rætist um síðir.“
Í lokin er Aðalsteinn inntur eftir fjöl-
skylduhögum. „Ég á konu og við eigum
saman tvö börn, annað býr á Akureyri
og hitt hér. Konan mín heitir Guðrún
Larsen og er jarðfræðingur. Við förum
kannski saman í smá jarðfræðileiðangur
í dag. Við troðum engum um tær þar,
það eru svo fáir á fjöllum.“
gun@frettabladid.is
Syndir, gengur og grúskar
Aldurinn fer vel í Aðalstein Eiríksson, kennara og skólameistara, sem fæddist þennan
mánaðardag 1940 og er því áttræður. Hann segir æviskeið sitt eitt framfaraskeið.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Guðmunda Stefánsdóttir
Krókatúni 6, Akranesi,
lést á dvalarheimilinu Höfða á Akranesi,
sunnudaginn 4. október 2020.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju
þriðjudaginn 13. október kl. 13, að viðstöddum nánustu
aðstandendum og vinum vegna aðstæðna í þjóðfélaginu.
Starfsfólki Höfða sendum við sérstakar þakkir fyrir
einstaka umönnun og hlýju. Blóm og kransar
afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hennar
er bent á Höfða, dvalar- og hjúkrunarheimili.
Magnús Magnússon Halla Bergsdóttir
Guðmunda Magnea Magnúsdóttir
Guðríður Ólafía Magnúsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Styrmir Hreinsson
Eyrargötu 26,
Eyrarbakka,
lést á hjúkrunarheimilinu Sólvöllum,
Eyrarbakka, sunnudaginn 4. október.
Útför hans fer fram frá Selfosskirkju þriðjudaginn
13. október klukkan 14. Vegna fjöldatakmarkana verða
aðeins nánustu ættingjar og vinir viðstaddir.
Athöfninni verður streymt á vef Selfosskirkju.
Ásdís Styrmisdóttir Magnús I. Guðjónsson Öfjörð
Gunnar Styrmisson Bára Hafliðadóttir
Hjalti Styrmisson Martha Rut Sigurðardóttir
Sólveig Styrmisdóttir Viðar Þór Pálsson
Ragnheiður Ásta Styrmisdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn,
Þorsteinn Friðriksson
fv. bankafulltrúi,
lést á Landspítalanum 1. október sl.
Útförin verður miðvikudaginn
14. október kl. 15, frá Langholtskirkju.
Vegna aðstæðna í samfélaginu verða
aðeins nánustu aðstandendur viðstaddir. Streymt verður
frá athöfninni á slóðinni: https://youtu.be/8ie0RN3BJBc
Guðrún Lýðsdóttir
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
Þorbjörg Samúelsdóttir
verkakona,
lést föstudaginn 2. október
á Hrafnistu Hafnarfirði.
Útför hennar fer fram þriðjudaginn
20. október klukkan eitt í Fríkirkjunni Hafnarfirði.
Vegna aðstæðna verða aðeins nánustu aðstandendur
viðstaddir. Athöfninni verður streymt á Facebook.
Stígur Tily Herlufsen
Harrý Samúel Herlufsen Kolbrún Þorleifsdóttir
Jens Sigursveinn Herlufsen Selma Ágústsdóttir
Eiríkur Herlufsen
Auðunn Helgi Herlufsen
Stígur Andri Herlufsen
barnabörn og barnabarnabörn.
1 0 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R30 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT