Fréttablaðið - 10.10.2020, Blaðsíða 63
Faðir okkar, bróðir, afi og tengdafaðir,
Gunnar Sigurðsson
skotleiðbeinandi og prófdómari,
lést á Grand Canaria þann 02.10.2020.
Útför verður auglýst síðar.
Fjölskylda hins látna.
Elskulegur sonur, eiginmaður, faðir,
bróðir, tengdasonur og afi,
Björn Jónsson
tölvunarfræðingur,
lést laugardaginn 3. október.
Útförin fer fram þann 16. október í
Bústaðakirkju klukkan 13.
Vegna aðstæðna verða aðeins nánustu ættingjar og vinir
viðstaddir. Athöfninni verður streymt á slóðinni:
www.sonik.is/bjornj.
Hafdís Hlíf Sigurbjörnsdóttir
Anna Kristín Daníelsdóttir
Sigurður Björn Björnsson
Margrét Kristín Björnsdóttir Arnar Ingi Halldórsson
Hafdís Sól Björnsdóttir
Breki Björnsson
Heiða Dóra Jónsdóttir Julian Smith
Daníel Jón Jónsson
Óskar Örn Jónsson Gerður Ríkharðsdóttir
Sigmar Jónsson Birna Björg Másdóttir
Daníel Jón Kjartansson
og barnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Agnar Bjarnason
Kambsvegi 37, Reykjavík,
lést á Landspítalanum Fossvogi,
15. september.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Sigríður Helga Agnarsdóttir
Bjarni Jón Agnarsson Hanna Dóra Haraldsdóttir
Sigrún Agnarsdóttir Helgi Jónsson
barnabörn og fjölskyldur þeirra.
Okkar ástkæri eiginmaður,
faðir, tengdafaðir og afi,
Skúli Magnússon
húsasmiður,
Daggarvöllum 4a, Hafnarfirði,
áður Vogum á Vatnsleysuströnd,
lést á heimili sínu í faðmi fjölskyldunnar,
þriðjudaginn 6. október sl. Útförin fer fram í
Kálfatjarnarkirkju, Vatnsleysuströnd, föstudaginn
16. október. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu verða aðeins
nánustu aðstandendur viðstaddir útförina, en athöfninni
verður streymt. Upplýsingar um streymið má finna á
fésbókarsíðu Skúla.
Steinunn Helga Aðalsteinsdóttir
Sveindís Skúladóttir Guðmundur Hjálmarsson
Guðrún Skúladóttir
Magnús Skúlason Helga Sóley Kristjánsdóttir
Ingibjörg Skúladóttir Hermann Torfi Björgólfsson
barnabörn.
Ástkær og yndisleg móðir okkar,
tengdamóðir, amma, langamma,
og langalangamma,
Gyða Gísladóttir
Hvassaleiti 56,
lést þriðjudaginn 29. september á
Hrafnistu í Reykjavík.
Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju miðvikudaginn
14. október kl. 13.00. Vegna fjöldatakmarkana verða
aðeins nánustu ættingjar viðstaddir.
Streymt verður frá athöfninni á www.sonik.is/gyda
Ingibjörg Jakobsdóttir
Sigríður Jakobsdóttir Sveinn H. Gunnarsson
Ásdís Ó. Jakobsdóttir Daníel Jónasson
Ásgeir Már Jakobsson Ólafía B. Rafnsdóttir
Valgerður Jakobsdóttir Albert G. Arnarson
Gunnar Örn Jakobsson Olga S. Marinósdóttir
Gyða Haralz Halldór Haralz
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Guðlaug Sigurgeirsdóttir
lést þann 5. október á
Hjúkrunarheimilinu Grund.
Í ljósi aðstæðna verður útförin ekki
auglýst og mun hún fara fram með nánustu
aðstandendum. Aðstandendur senda sérstakar þakkir til
starfsfólks Vegamóta á Grund fyrir einstaka umönnun
síðustu árin.
Sigurgeir Sigmundsson Hildur Ásta Viggósdóttir
Sigríður Sigmundsdóttir Hermann Ársælsson
Guðrún Sigmundsdóttir Gylfi Óskarsson
og fjölskyldur.
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Signý Egilsdóttir
Bláskógum 13, Hveragerði,
lést á hjúkrunarheimilinu Ási,
Hveragerði, þriðjudaginn 6. október.
Elsa Backman Rúnar Skarphéðinsson
Helgi Backman
Marteinn Friðriksson Íris Blandon
Katrín Friðriksdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, sonur,
bróðir, mágur og tengdasonur,
Eiríkur Þór Vattnes Jónasson
kennari,
varð bráðkvaddur á bráðamóttöku
Landspítala Fossvogi 12. september.
Jarðarför Eiríks fór fram 7. október.
Innlegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát.
Hjördís Lóa Ingþórsdóttir
Óliver Freyr Eiríksson
Emma Lóa Eiríksdóttir
Jónas Helgason Eyþóra Vattnes Kristjánsdóttir
Ingunn Vattnes Jónasdóttir Sverrir Óskarsson
Kristján Vattnes Jónasson
Ingþór Arnórsson Guðný Sigríður Sigurbjörnsdóttir
Innilegar þakkir við andlát og útför
ástkærrar systur okkar og frænku,
Ástu Kristínar Þorleifsdóttur
frá Naustahvammi, Neskaupstað,
Hlévangi, Reykjanesbæ.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hrafnistu í
Hlévangi fyrir alúð og góða umönnun.
Stefán Þorleifsson Guðbjörg Þorleifsdóttir
Guðrún Þorleifsdóttir Vilhjálmur Norðfjörð Þorleifsson
systkinabörn og fjölskyldur.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Helen Þorkelsson
sjúkraliði,
Víðilundi 24, Akureyri,
andaðist þriðjudaginn 29. september á
Sjúkrahúsinu á Akureyri.
Útför hennar fer fram í Akureyrarkirkju þriðjudaginn
12. október klukkan 13.30. Í ljósi aðstæðna í samfélaginu
munu eingöngu nánustu ættingjar vera viðstaddir,
streymt verður frá athöfninni á facebook-síðunni.
Jarðarfarir í Akureyrarkirkju-beinarútsendingar.
Jóhann Björgvinsson Ásthildur Sverrisdóttir
Erla Björg Þorkelsson
Halla B. Þorkelsson Sigurður G. Sigurðarson
Emma Agneta Björgvinsdóttir
Ásta Hrönn Björgvinsdóttir Guðjón Steindórsson
ömmu og langömmubörnin öll.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Helgi Hallgrímsson
fyrrverandi vegamálastjóri,
lést fimmtudaginn 8. október á
líknardeild Landspítalans.
Útför fer fram fimmtudaginn 15. október.
Margrét G. Schram
Hallgrímur Helgason Þorgerður Agla Magnúsdóttir
Nína Helgadóttir Kjartan Valgarðsson
Ásmundur Helgason Elín G. Ragnarsdóttir
Gunnar Helgason Björk Jakobsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæra
Auður Bessadóttir
Sóleyjarima 7,
er lést á líknardeild LSH
í Kópavogi 27. september sl.,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju
mánudaginn 12. október kl. 13.00.
Aðeins munu nánustu ættingjar verða viðstaddir.
Athöfninni verður jafnframt streymt á www.kirkja.is
og https://youtu.be/dLFI1oLj6Og
Feruccio Marinó Buzeti
Vésteinn Hilmar Marinósson Margrét Á. Ósvaldsdóttir
Hólmfríður B. Marinósdóttir Halldór Rósi Guðmundsson
Bragi Þór Marinósson Erla Sigrún Sveinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elsku eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Hörður Adolfsson
Fellahvarfi 15, Kópavogi,
lést á Landspítalanum 6. október
síðastliðinn.
Hann verður jarðsunginn í Vídalínskirkju
föstudaginn 16. október, kl. 13.00. Í ljósi aðstæðna verða
aðeins nánustu aðstandendur viðstaddir. Streymt verður
frá athöfninni og hægt að nálgast linkinn á mbl.is/andlat.
Blóm og kransar eru afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast
hans er bent á Ljósið.
Nanna María Guðmundsdóttir
börn, tengdabörn og barnabörn.
Það er mér hjartans mál á geðheil-brigðisdegi að upplýsa að einstakt hús í Kópavogi verður miðstöð
fræðslu og þjálfunar á sviði geðræktar,“
segir dr. Anna Elísabet Ólafsdóttir, sér-
fræðingur lýðheilsumála í bænum. Í
byrjun verður áhersla lögð á 1. stigs sál-
fræðilegan stuðning við börn og ung-
menni sem glíma við andleg vandamál,
að hennar sögn. „Allt verður gert í sam-
starfi við mennta- og velferðarkerfið,
en það er gott fyrir krakka að fara út úr
skólaaðstæðum til að ræða um líðan
sína. Svo verður húsið líka staður fyrir
eldri íbúa bæjarins sem glíma við ein-
semd og kvíða.“
Húsið stendur við strönd Kópavogs.
Það var teiknað af Guðjóni Samúels-
syni og Hringskonur létu byggja það
sem hressingarhæli fyrir útskrifaða
berklasjúklinga árið 1926. „Segja má
að þetta hús hafi verið nýtt fyrir heil-
brigðisvandamál hvers tíma. Nú er kvíði
ein helsta ástæða skertra lífsgæða og í
nýlegri skýrslu frá Unicef kemur fram að
Andleg heilsa verður í öndvegi í húsinu
Anna Elísabet Ólafsdóttir, sérfræðingur
lýðheilsumála í Kópavogi.
Húsið hefur frá upphafi tengst heil-
brigðismálum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
íslensk 15 ára ungmenni vermi neðsta
sætið í Evrópu hvað varðar félagsfærni,“
segir Anna Elísabet. Hún tekur fram
að umhverfi hússins bjóði upp á hug-
ræktargöngur og núvitundaræfingar
utan dyra. – gun
T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 31L A U G A R D A G U R 1 0 . O K T Ó B E R 2 0 2 0