Fréttablaðið - 10.10.2020, Page 76

Fréttablaðið - 10.10.2020, Page 76
Lífið í vikunni 04.10.20- 10.10.20 VIÐ ÆTLUÐUM AÐ HAFA HÉRNA HEIL- MIKLA VEISLU MEÐ ÖLLUM SEM HAFA STUTT VIÐ HÚSIÐ OG STARFAÐ HÉRNA EN ÞAÐ VERÐUR AÐ BÍÐA BETRI TÍMA. SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@ frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is DALBY hægindastóll með skemli Nettur og fallegur hægindastóll úr svörtu PU-leðri ásamt skammeli, á frábæru verði. Fáanlegur bæði með krómuðum fæti eða svörtum. Stærð: 125 x 72 H: 108 cm. Fullt verð: 59.900 kr. Aðeins 41.930 kr. Við eigum afmæli og nú er veisla Láttu drauminn rætast SENDUM FRÍTT Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði Við sendum þér vörurnar frítt hvort sem þú kaupir á dorma.is eða í DORMA-verslun Nature’s REST LUXURY heilsurúm með Classic botni • Svæðaskipt poka- gormakerfi (20 cm háir) • 5 misjöfn lög af svampi • Sterkur botn • 320 gormar á m2 • Góðar kantstyrkingar Val um svart eða hvítt PU leður eða grátt áklæði á Classic botni. Verðdæmi á Nature’s Rest Luxury með Classic botni og fótum: 90 x 200 cm. Fullt verð: 69.900 Aðeins 55.920 kr. 160 x 200 cm. Fullt verð: 99.900 Aðeins 79.920 kr. 30% AFSLÁTTUR AFMÆLIS 20% AFSLÁTTUR AFMÆLIS ÆVINTÝRI UM SVEFN Bókin Svefnfiðrildin eftir Erlu Björnsdóttur er komin út. Í henni fléttar hún fræðslu um svefn fyrir börn og fullorðna inn í skemmtilegt ævintýri um hina fjörugu Sunnu. SÝNIR Á FORRÉTTABARNUM Sýning listamannsins Arons Levís Beck, Slökum á, stendur nú yfir á Forréttabarnum. Hann segir mikil- vægt að temja sér jákvætt hugarfar á þessum fordæmalausu tímum. FANN ENGA KRIMMA Í PÓLITÍKINNI Katrín Júlíusdóttir hefur gengist við sínum fyrstu skrefum á glæpa- brautinni með spennusögunni Sykri. Ólíkt því sem freistandi væri að ætla sækir hún lítinn innblástur í fjármála- heiminn og fyrri störf í stjórnmál- unum. JOHN LENNON HEFÐI ORÐIÐ ÁTTRÆÐUR Í GÆR Andrea Jónsdóttir segir minn- inguna um John Lennon aldrei hafa verið heimsbyggðinni jafn mikil- væga og núna. Bítillinn hefði orðið áttatíu ára í dag hefði hann lifað. Væri allt sem vera ber hefði verið glatt á hjalla í Tjarnarbíó í gær þegar tíu ár voru liðin frá því að menningarstarf hófst af fullum krafti þegar húsið var opnað á ný eftir gagngerar endurbætur. „Það náttúrlega stóð til að fagna þessum tímamótum almennilega en það er náttúrlega augljóst að það er ekki í boði í augnablikinu og við verðum bara að fagna síðar,“ segir Friðrik Friðriksson, framkvæmda- stjóri Tjarnarbíós. Þótt dökkt sé yfir menningarlíf- inu þessa mánuðina segir Friðrik starfsemina hafa verið blómlega frá enduropnuninni fyrir áratug. „Sagan er náttúrlega töluvert lengri og nær alveg aftur til 1913 þegar þetta var íshús og svo kvikmynda- hús sem var svo hægt og rólega í gegnum áratugina lagt undir sviðs- listina,“ segir Friðrik. Baráttan byrjaði á síðustu öld Friðrik segir baráttuna fyrir því að taka húsið í gegn og breyta því þannig að það þjónaði betur sjálf- stæðum atvinnusviðslistahópum hafa tekið sinn tíma. „Aðdrag- andinn var töluvert langur og mig minnir að það hafi verið eitthvað í kringum 1996 að það var byrjað að ræða þessa þörf fyrir húsnæði fyrir sjálfstætt starfandi sviðslistafólk. Umræðan byrjar sem sagt á síðustu öld.“ Það var svo á árunum 2006 og 2007 sem hreyfing komst á málið en þá reyndist hrunið handan við hornið og það setti vitaskuld stórt strik í reikninginn. „Endurbætur stóðu svolítið lengur en áætlað var þegar hrunið verður 2008 en þetta hafðist og Jón Gnarr, þáverandi borgarstjóri, opnaði húsið 1. október 2010.“ Frið- rik segir að það hafi komist dálítil hreyfing á málið með Besta flokkn- um en það hafi komið í hans hlut að fylgja málinu eftir og í höfn. Nokkrir forverar Jóns á borgar- stjórastóli hafi þó látið sig Tjarnar- bíó varða og því megi tala um að frá byrjun hafi ríkt þverpólitísk sátt um verkefnið. „Þannig að þetta er samstillt átak allra sem voru þá við stjórnvölinn og þá ekki síst allra þeirra sem hafa setið hérna í alls konar stjórnunar- störfum og barist fyrir húsinu. Það er dágóður hópur. Öll senan í raun- inni,“ segir Friðrik og bætir við að saga síðustu tíu ára sýni og sanni að þörfin fyrir húsið hafi verið mikil. Stöðugur vöxtur „Vöxturinn hefur enda verið gríðar- legur á undanförnum tíu árum. Fyrst um sinn þurfti að greiða leigu til borgarinnar og annað sem svona menningarrekstur gat ekki staðið undir. Það er ekki fyrr en í lok árs- ins 2013 að það fæst styrkur til rekstrarins og leigan er felld niður og þá fer þetta á f lug aftur og síðan hefur verið stöðugur vöxtur með fjölgun áhorfenda og verkefna,“ segir Friðrik og bendir á að Grímu- tilnefningar, áhorfendafjöldinn og margt annað í þeim dúr sýni fram á hversu blómlegur reksturinn hefur verið. „Við höfum þraukað núna síðustu mánuði en það er orðið erfiðara og við erum á síðustu dropunum hérna þannig að ég veit ekki hvað gerist í kjölfarið,“ segir Friðrik. „Við bara eins og allir vonum að þetta gangi yfir og við getum aftur farið að eiga einhvers konar eðlilegt líf. En við ætlum nú kannski ekki að láta þetta skyggja á þessi tímamót þótt við getum ekki haldið upp á þau. Við ætluðum að hafa hérna heilmikla veislu með öllum sem hafa stutt við húsið og starfað hérna en það verður að bíða betri tíma.“ Rafræn hátíðarhöld eru því látin duga í bili og Tjarnarbíó hefur látið taka saman myndskeið, litla stiklu, með yfirliti yfir verkin sem hafa lifnað við á sviðinu undanfarin tíu ár og nálgast má meðal annars á heima- og Facebook-síðu hússins. „Þessu verður að fagna og við gerum það á samfélagsmiðlum og okkar í millum og það er vonandi að áhorfendur sem hafa stutt okkur í gegnum árin taki þátt í þessum fögnuði með okkur á netinu.“ toti@frettabladid.is Tíu góð ár í Tjarnarbíó Sjálfstæða sviðslistasenan hefur vaxið og dafnað í endurreistu Tjarnarbíói í tíu ár en almennileg hátíðarhöld bíða betri tíma. Friðrik Friðriksson og hans fólk stendur á ánægjulegum tímamótum á erfiðum tímum og fagnar tíu góðum árum í endurreistu Tjarnarbíó á samfélagsmiðlum þangað til hægt verður að blása til alvöru veislu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN 1 0 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R44 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.