Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2020, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2020, Qupperneq 10
10 FRÉTTIR 16. OKTÓBER 2020 DV Stundum missi ég mig í nördaskapnum B ragi Valdimar Skúla-son er ekki eins og fólk er flest. Sem betur fer. Hann lýsir sér sjálfum sem „skrýtna karlinum með þver- slaufuna í sjónvarpinu“. Hann er nú á skjánum alla föstu- daga, ásamt Björgu Magnús- dóttur, í þáttunum Kappsmáli á RÚV – með þverslaufuna. Þar leysa keppendur hinar ýmsu þrautir tengdar tungu- málinu og í síðasta þætti átti annað liðið til að mynda að giska á hvert eftirfarandi orða væri til í alvörunni: hælbeitir, frunti, ærufauti eða svekkill. „Þetta er í raun leikjaþáttur um tungumálið. Grunnhug- myndin er að tungumálið er skemmtilegt og maður á ekki að vera feiminn við að nota það. Það er svo leitt þegar fólk þorir varla að tjá sig á ís- lensku því það er alltaf verið að leiðrétta það og skamma. Tungumálið er okkar helsta tæki í lífinu og við þurfum að passa upp á það,“ segir Bragi sem býr sjálfur yfir litríkara orðfæri en flestir og leyfir sér jafnvel að sletta þegar vel viðrar. Stórkostleg eiginkona Áður sá Bragi um skemmti- og fræðsluþættina Orðbragð, ásamt Brynju Þorgeirsdóttur, og það var þá sem hugmyndin að leikjaþætti vaknaði. Aðal- starf hans er hins vegar hjá auglýsingastofunni Branden- burg þar sem hann er meðeig- andi. Hann er auk þess titlað- ur texta- og hugmyndasmiður en tekur í raun þátt í öllu sköp- unarferlinu eins og tíðkast á auglýsingastofum hér á landi. Brandenburg er ein af fáum auglýsingastofum sem hafa ráðið fólk í miðjum heims- faraldri og fagnar mikilli vel- gengni. Hér lætur Bragi þó ekki staðar numið því hann er einnig hluti af fjöllistahópnum Baggalúti, hefur gefið út þrjár barnaplötur, samið texta fyrir fjölda tónlistarmanna og þýtt heil ósköp. Nú síðast var hann að leggja lokahönd á nýja þýð- ingu leikverksins Taktu lagið, Lóa – sem nú heitir reyndar bara Lóa – og kemur vonandi á fjalir Borgarleikhússins fyrr en seinna. Ef COVID lofar. Hvernig geturðu eiginlega sinnt svona mörgum verk- efnum? „Ég er oft spurður að þessu. Galdurinn er að konan mín gerir allt á heimilinu.“ Bragi er augljóslega ekkert að grín- ast. Hann er giftur Heiðu, Þór- dísi Heiðu Kristjánsdóttur, og saman eiga þau þrjár dætur sem eru sjö, tíu og fimmtán ára. „Heiða er stórkostleg,“ segir hann af mikilli innlifun. „Þú ættir eiginlega að taka viðtal við hana. Hún er miklu skemmtilegri en ég.“ Heiða er tónmenntakennari og flakkar almennt milli skóla með skap- andi smiðjur en eðli málsins samkvæmt er það heldur tor- velt á tímum heimsfaraldurs. Las líka Ástarbréf til Ara Fimm ára gamall flutti Bragi með foreldrum sínum til Hnífsdals þar sem pabbi hans starfaði sem fiskifræðingur og mamma hans starfaði hjá Símanum. „Ég bjó þar þegar vídeóspólurnar mættu á svæðið. Ég tók auðvitað upp áramóta skaupið og horfði síðan á það átta þúsund sinn- um. Ég kom helst í borgina til að kaupa þungarokksboli og bætur á gallajakka. Þunga- rokkið yfirtók unglingamenn- inguna á Íslandi árin 1989 til 1991 og ég varð fyrir barðinu á því. Ég fór á tónleika Whi- tesnake í Reiðhöllinni og var mættur fremst í Laugardals- höllina þegar Iron Maiden hélt tónleika þar. Ég var svolítið í rokki og róli en það jafnaði sig.“ Og þá fórstu yfir í kántríið. „Já, kántrí og Barböru Streisand,“ segir Bragi sem hefur allt annað en fyrir- sjáanlegan smekk og hlustaði á uppáhaldsbarnaplötuna sína, Hrekkjusvínin, langt fram á fullorðinsaldur. Ólíkt því sem einhverjir kynnu að halda lá Bragi ekki yfir forníslenskum ritum sem barn heldur las Ástarbréf til Ara eins og aðrir ungling- ar. Honum fannst þó bæk- urnar um Frank og Jóa öllu skemmtilegri og fór seinna að lesa bækur eftir Alistair Mac- Lean. „Það er líka gott að lesa það sem manni finnst ekki endilega skemmtilegt. Þú ert þá að neyta textans, myndar þér smekk og greinir hvað er gott og hvað er slæmt. Fólk ratar alltaf á endanum á góða stöffið.“ Giftu sig í Vegas Fjölskylda Braga flutti til Erla Hlynsdóttir erlahlyns@dv.is Reykjavíkur skömmu áður en hann byrjaði í Mennta- skólanum við Hamrahlíð. Þar kynntist hann mörgum af sínum bestu vinum enn í dag, og þar kynntust líka þau Heiða. „Við vorum saman í Hamrahlíðarkórnum, þeirri góðu hjónabandsmiðlun. Við fórum ekki að vera saman fyrr en seinna, áttum marga sameiginlega vini, og erum nú gift með þrjár stelpur.“ Heiða og Bragi höfðu verið saman í yfir áratug þegar þau gengu í formlegt hjónaband þar sem enginn annar en Elvis Presley vígði hjónin, eða alla- vega staðgengill hans. „Já, við fórum til Vegas þar sem Elvis var ræstur út.“ Giftingin fór fram 7. september 2013 – sjö, níu, þrettán – og skelltu þau sér til Bandaríkjanna ásamt vinapari sem gekk í hjóna- band á sama tíma. „Ég get ekki sagt að þetta sé endilega dæmigert fyrir okkur. Við erum almennt róleg í tíðinni en temmilega spontant.“ Bragi segir fjölskylduna sannarlega vera sér innblást- ur – sem dæmi hafi dæturnar allar fengið sína barnaplötu sem hann gerði með Memfis- mafíunni. „Sú elsta fékk Gilli- gill, miðjan fékk Diskóeyjuna og sú yngsta fékk Karnivalíu. Nú bíð ég bara eftir barna- börnunum til að gera nýja barnaplötu. Þó þessar plötur hafi verið hugsaðar sem barnaplötur var þetta ekki endilega sérstök barnatón- list. Ég veit í raun ekki einu sinni hvað það er. Barnatón- list á ekki að vera öðruvísi en önnur tónlist. Þarna var mikill metnaður á ferð og frábærir tónlistarmenn sem koma við sögu. Það þarf að vera gleði og við þurfum að smita henni áfram. Hættum að smita CO- VID og smitum fólk frekar af gleði.“ Allir komnir á Youtube Hann segir þau hjónin vissu- lega halda íslensku að dætr- unum en að þau séu ekkert að fara yfir beygingarfræði við matarborðið. „Við leggj- um áherslu á að þær séu að lesa. Ég held að lesturinn sé Bragi hefur afar fjölbreytt- an tónlistar- smekk. Sem unglingur hlustaði hann á Metallica og Iron Maiden, áður en hann færði sig yfir í kántrí og Barböru Streisand. MYND/VALLI Bragi Valdimar Skúlason hefur afskaplega gaman af orðum. Hann er einn vinsælasti textasmiður og tónskáld landsins og virðist hafa mun fleiri klukku- tíma í sólarhringnum en við hin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.