Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2020, Blaðsíða 24
24 FÓKUS 16. OKTÓBER 2020 DV
ÖRVHENT PRJÓNA
DROTTNING SLÆR
RÆKILEGA Í GEGN
Sjöfn Kristjánsdóttir, eigandi Stroffs verzlunar og
Stroff.is, og tónlistarkonan Salka Sól eru að gefa
saman út prjónabókina Una. Sjöfn fer yfir prjóna-
ævintýri sín og deilir fallegri uppskrift úr bókinni.
Guðrún Ósk
Guðjónsdóttir
gudrunosk@dv.is
S jöfn Kristjánsdóttir lýsir sér sem 39 ára hús-móður í Hvassaleitinu.
„Ég er voða venjuleg, elska að
vera heima hjá mér og gera
huggulegt í kringum mig. Ég
bý með Grétari Karli, unn-
usta til fjölda ára, og saman
eigum við þrjú dásamleg
börn. Sögu fjórtán ára, Ara
fjögurra ára og Kára tveggja
ára. Við byrjuðum með net-
verslunina stroff.is veturinn
2017 og opnuðum svo STROFF
verzlun í ágúst á þessu ári. Sú
búð er staðsett í Skipholti 25.
Þar vinnum við bæði og ótrú-
legt en satt þá höfum við enn
ekki fengið nóg af hvort öðru,“
segir Sjöfn og hlær.
„Við erum ólík, ég er algjört
fiðrildi með alla fálmara úti og
sífellt á flugi á meðan Grétar
er með báða fætur á jörðinni.
Þetta er kombó sem klikkar
ekki,“ segir Sjöfn. Hún er
að gefa út prjónabókina Unu
ásamt tónlistarkonunni Sölku
Sól Eyfeld en Sjöfn og Salka
kynntust í gegnum prjóna-
skap og hefur Salka sagt að
Sjöfn hafi kennt sér að prjóna
á ótrúlega skömmum tíma.
Byrjaði að prjóna tólf ára
„Ég byrjaði sjálf að prjóna
um tólf ára aldurinn. Ég er
örvhent og engum tókst að
kenna mér að prjóna. Það var
ekki fyrr en vinkona mömmu,
Didda, sem hafði þolinmæðina
að vopni, tók mig í kennslu og
úr varð fyrsta húfan mín. Síð-
an þá hef ég meira og minna
verið með prjónana á lofti,“
segir Sjöfn.
„Ég útskrifaðist með stúd-
entspróf af Hönnunar- og
textílbraut frá FB en tók svo
U-beygju og kláraði meistara-
próf í uppeldis- og menntunar-
fræði. Pabbi sagði nefnilega
að maður yrði aldrei ríkur á
því að prjóna. Ég er kannski
ekki orðin rík en maður lif-
andi hvað það er ómetanlegt
að geta unnið við það sem
maður elskar. Ég er samt
fegin að hann hafi rekið mig
af stað í háskólanám því án
þess væri ég ekki jafn fær
um að skrifa allar þessar upp-
skriftir.“
Fann prjónasálufélaga sinn
Sjöfn segir að stundum taki
lífið óvænta stefnu og lífið tók
svo sannarlega góða óvænta
stefnu þegar hún kynntist
Sölku Sól.
„Við Salka kynnumst í
gegnum Instagram þegar hún
var að taka sín fyrstu skref í
prjónaheiminum. Hún var að
prjóna eftir mig og ég fann
bara að þarna var eitthvað –
einhver eins og ég. Ég sagði
við hana um daginn að ég
hefði fundið prjónasálufélaga
minn. Því ég þekki engan sem
hellir sér jafnmikið og jafn
kröftuglega í verkefnin eins
og Salka og það hentaði mér
svo vel því ég hugsa um upp-
skriftir, prjón og garn allan
sólarhringinn. Ég er alltaf
að fá hugmyndir og bölva því
oft að vera ekki með fleiri
hendur. Við erum jafn æstar
í því sem við elskum að gera
og erum alltaf með hausinn á
fullu. Þú finnur ekki oft ein-
hvern sem er jafn æstur og þú
í svona sérhæfðu verkefni,“
segir Sjöfn.
„Við ætluðum nú bara að
gera eina peysu saman en
uppskriftirnar urðu tólf, allar
rafrænar og fást á stroff.is.
Þetta endaði svo sem 27 upp-
skrifta prjónabók. Hugmynd
að bók var eitthvað sem við
höfðum hugsað um en það
var ekki fyrr en Kristján hjá
Sögum útgáfu hafði samband
og vildi vinna með okkur í því
verkefni. Það kom aldrei hik á
okkur, bara búmm og áfram
gakk,“ segir hún.
„Una – nafnið á bókinni er
upphaflega frá dóttur Sölku,
Unu Lóu en svo er Una bara
svo fallegt nafn, stutt og hnit-
miðað og merkingin er falleg;
„hin hamingjusama“. Bókin
er full af hamingju, gleði og
góðri orku. Það eru nýjar upp-
skriftir í bland við gamlar
og allt frá hundaflíkum upp
í flíkur á fullorðna. Svo er
bókin stútfull af geggjuðum
myndum eftir vinkonu okkar,
Eygló Gísladóttur,“ segir
Sjöfn.
Bókin er farin í prentun og
komin í forsölu á stroff.is.
Áætlaður söludagur í búðum
er 5. nóvember. n
REX slefsmekkur
Efni
Katia Merino Sport
Það sem þarf
Hringprjónn nr. 5 (lengd skiptir ekki
máli)
Sokkaprjónar nr. 5
Nál til frágangs
Stærðir og magn af garni
Ein stærð. Í einn smekk fer sirka hálf
dokka af Katia Merino Sport
Gagnlegt
Þú getur séð myndband sem sýnir
hvernig hnútaprjónið er framkvæmt
á www.bit.do/hnutaprjon.
Prjónafesta
Prjónfestan í þessari uppskrift er sú
að 18 lykkjur á prjóna nr. 5 gera 10
sm með því að nota Merino Sport
frá Katia.
Þá gera:
36 lykkjur 20 sm
54 lykkjur 30 sm
Aðferð
Lesið vel yfir uppskrift áður en þið
byrjið. Smekkurinn er prjónaður
ofan frá og niður, fram og til baka.
Uppskriftin býður upp á tvenns
konar prjón, poppmynstur og garða
prjón.
Ég er kannski
ekki orðin rík en
það er ómetanlegt
að geta unnið við
það sem maður
elskar.
Sjöfn
Kristjáns-
dóttir lærði að
prjóna tólf ára
og hefur ekki
hætt síðan.
MYND/
SIGTRYGGUR ARI
MYNDIR/AÐSENDAR