Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2020, Page 27
E ftir messu einn sunnudaginn árið 2003 kom sóknarfólkið saman í
kirkjunni og fékk sér kaffi
og kræsingar. Dale Anderson
var einn þeirra sem fengu sér
kaffibolla, en nokkrum mín
útum síðar bað hann eigin
konu sína að skutla sér heim.
Hann lýsti upplifun sinni
svona: „Við komum heim
eftir messuna og ég byrjaði
bara að æla lifur og lungum.“
Hann vissi þó ekki að á sama
tíma fundu aðrir kirkjugestir
fyrir svipuðum einkennum.
Andlát undirstrikaði
alvarleika málsins
Læknar héldu að um matar
eitrun væri að ræða, en með
ferðirnar sem þeir beittu
virtust gera lítið gagn. Þeg
ar hinn 78 ára gamli Walter
Morrill lést vegna eitrunar
innar, þá áttuðu læknarnir
sig á því að eitthvað grafal
varlegt væri í gangi. Öllum
hinum sem fundu fyrir ein
kennum, fimmtán talsins, var
komið á sjúkrahús í hvelli.
Á sjúkrahúsinu starfaði
Rose Tanguay, sem var að
læra hjúkrunarfræði. Hún
var fyrst til að gruna að
frumefnið hættulega arsen
ik væri skaðvaldurinn. „Ég í
rauninni púslaði þessu sam
an,“ sagði hún. „Útilokaði allt
nema arsenik.“
Rannsóknarlögreglumað
ur fór í kirkjuna og leitaði
að einhverju dularfullu við
bakkelsið sem hafði verið
boðið upp á, en hann fann
ekkert bitastætt. Hjúkrunar
fræðingur á sjúkrahúsinu átt
aði sig á því að allir þeir sem
lágu inni höfðu drukkið kaffi
og því var ákveðið að rann
saka það.
Móteitur fyrir tilviljun
Um það bil sólarhring eftir
messuna voru heilbrigðis
yfirvöld í Maine farin að
spyrjast fyrir um móteitur
gegn arseniki. Fyrir algjöra
tilviljun var slíkt til í fylkinu
og því komið í flýti á sjúkra
húsið. Heilbrigðisstarfsfólkið
var þó hikandi við að gefa
sjúklingunum móteitrið, en
væri grunur þeirra rangur,
um að arsenik væri skað
valdurinn, myndi móteitrið
hafa frekari skaðleg áhrif.
Tekin var ákvörun um að
gefa sjúklingunum móteitrið,
sem bjargaði lífi þeirra.
Nokkrum klukkustundum
síðar kom í ljós að vissulega
hefði verið arsenik í kaffinu.
Arsenikið var í verulegu
magni. Því var ljóst að ekki
var um neina tilviljun að
ræða, heldur hafði einhver
komið því fyrir viljandi.
„Þú eitrar ekki fyrir þeim“
„Allir eru gríðarlega sorg
mæddir. Allir þekkja þá
sem eru veikir. Allir þekkja
alla,“ sagði einn bæjarbúa á
meðan málið var í rannsókn,
en NýjaSvíþjóð í Banda
ríkjunum er álíka fámenn og
Seyðisfjarðarkaupstaður.
„Ég trúði því hreinlega ekki
að það væru einhver illindi á
milli þessa fólks. Ef þú ert
ósáttur við einhvern hérna, þá
gengur þú upp að viðkomandi
og segir: „Þú komst illa fram
við mig um daginn.“ „Þú eitr
ar ekki fyrir þeim,“ var haft
eftir öðrum bæjarbúa og enn
annar sagði: „Þetta er svo ná
inn hópur hérna. Svo eru svo
margir skyldir hver öðrum.“
„Ég var einn að verki“
Málið þótti afar dularfullt.
Enginn lá sérstaklega undir
grun, þangað til fimm dög
um eftir messuna. Danny
Bondeson, 53 ára, sem hafði
verið virkur í kirkjustarfinu,
fannst látinn á bóndabæ sín
um. Hann hafði framið sjálfs
víg og skilið eftir bréf, þar
sem hann játaði sök í málinu.
Bréfið hefur aldrei verið birt
almenningi, en litlir hlutar
úr því hafa birst opinberlega,
líkt og: „Ég var einn að verki.
Ég var einn að verki.“
Málið var talið óupplýst í
nokkur ár en var að lokum
talið upplýst og Danny sagð
ur sá seki, án þess að eiga
sér samverkamann. Aldr
ei hefur legið almennilega
fyrir hvers vegna Danny
á að hafa framið glæpinn.
Áðurnefndur Dale Anderson
sagði: „Einhver hafði gert
honum eitthvað. Og hann
ákvað að gera eitthvað til að
gera fólk veikt.“ Þá hefur því
verið haldið fram að minni
háttar ágreiningur innan
kirkjunnar hafi fengið hann
til að fremja glæpinn.
„Ég held að það séu fleiri
sekir þarna úti“
Einn þeirra sem veiktust
var Eric Margeson, vinur
Dannys. Sumir hafa haldið
því fram að hann tengist
ástæðu eitrunarinnar. Aðrir
telja að Danny Bondeson hafi
ekki verið einn að verki og
einhverjir þeirra seku gangi
lausir enn þann dag í dag.
Dale Anderson er þeirrar
skoðunar: „Það er eitthvað
meira þarna á bak við, en
bara Danny. Hann vissi
kannski eitthvað, en ég held
að það séu fleiri sekir þarna
úti.“
Ónafngreind kona sem
drakk kaffið lést nokkrum
árum síðar. Talið er að arsen
ikeitrunin hafi spilað stóran
þátt í dauða hennar. Þá segist
Dale Anderson aldrei hafa
náð fullri heilsu aftur. n
SAKAMÁL
Jón Þór
Stefánsson
jonthor@dv.is
Ég trúði því hreinlega ekki
að það væru einhver illindi
á milli þessa fólks.
KAFFIÐ Í KIRKJUNNI DREPUR
Í Mine-fylki í Nýju-Svíþjóð búa einungis um 500 manns. Allir þekkja alla og margir
eru tíðir kirkjugestir í hinni litlu kirkju bæjarins. Engan hefði grunað að kirkjuferð
myndi reynast lífshættuleg og falleg messa myndi hafa svo hræðilegar afleiðingar.
Lútherstrúar-
kirkja Gústafs
Adolfs Svía-
konungs er á
skrá yfir sögu-
legar bygg-
ingar í Banda-
ríkjunum.
Þrátt fyrir það
hefur kaffið
í kirkjunni
kostað fólk
lífið.
MYND/GETTY
FÓKUS 27DV 16. OKTÓBER 2020