Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2020, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2020, Blaðsíða 30
H alló, halló. Barnið mitt er hamingju-samt og góðhjartað, en hins vegar hefur skóli þess og heilsugæsla gert athugasemdir við holdafar þess. Líklega er barnið mitt í bústnari kantinum, en það erum við foreldrarnir líka. Hins vegar hafa skólinn og heilsugæslan lýst yfir áhyggjum vegna þess og vilja að við gerum eitthvað í þeim málum. Barnið hefur ekki mikinn áhuga á hreyfingu og höfum við foreldrarnir hing- að til ekki viljað neyða það út í íþróttaiðkun sem það hefur ekki áhuga á. Barnið er heimakært og finnst best að vera í tölvuleikjum og finnst ægilega gott að borða. Við erum hrædd um að ef við förum að ráðum heilsugæsl- unnar fari barnið að upplifa neikvæðar tilfinningar og þrói með sér neikvæða lík- ams- og sjálfsmynd. Við for- eldrarnir erum sátt í okkar eigin líkama, en við viljum ekki stefna heilsu barnsins í hættu bara vegna þess að við kjósum að vera „large and in charge“. Er einhver leið til að „grenna“ barnið (guð ég hata meira að segja að skrifa þetta) eða bæta heilsu þess án þess að stofna sjálfs- myndinni í hættu? Ég vil ekki gefa upp kyn barns míns eða aldur, enda finnst mér það ekki skipta öllu máli, en get þó sagt að það er á grunn- skólaaldri. Afar viðkvæmt mál Sæl. Takk fyrir spurning- una. Ég viðurkenni að ég hef veigrað mér við að svara henni, fyrst og fremst vegna þess að ég vildi gera það vel, þetta er vandmeðfarið og það er gríðarlega erfitt að finna „rétta“ svarið. Það sem ég þó veit er að þið eruð á góðri leið, þið eruð að meta stöð- una, skoða og spyrjast fyrir og ykkur er annt um að gera vel. Er það ekki nákvæmlega þannig sem við viljum að for- eldrar geri? Hér er um viðkvæmt mál að ræða því við vitum að óraunhæfar útlitskröfur og stöðug umræða um holdafar hefur skaðleg áhrif á börn og ungmenni. Sömuleiðis vitum við að ofþyngd í sumum til- fellum getur haft heilsuspill- andi áhrif. Það er þó löngu sannað að það er hægt að vera hraustur í þungum lík- ama. Þá eru uppi afar mis- munandi kenningar um heil- brigt holdafar og hvernig það reiknast, margt mælir gegn BMI-þyngdarstuðlinum og annað bendir til þess að þarna spili inn í þörf sam- félagsins til þess að steypa öllum í sama form. Þetta fer s.s. allt í hringi og við getum lítið sagt nema út frá mynstri og meðaltölum. Að þessum formála sögðum vil ég leggja áherslu á að þið takið ein- staklingsmiðaða nálgun á ykkar barn, metið hvað vegur þyngst hverju sinni og mætið ykkar barni sem best hvað það varðar. Hræðsluáróður um holdafar Ég hjó eftir því í spurningu þinni að heilsugæslan og skól- inn hafa lýst yfir áhyggjum, en það eruð þið sem þekkið ykkar barn best og því velti ég fyrir mér hvort áhyggj- urnar hafi aldrei kviknað hjá ykkur í þessu sambandi? Ef ekki, þá finnst mér það mikilvæg breyta sem taka þarf með í reikninginn. Þið eruð augljóslega með- vitaðir foreldrar sem setjið líðan barnanna ykkar í for- grunn sem gefur mér ástæðu til þess að velta fyrir mér hvort það sé verið að kveikja áhyggjur og umræðu sem gæti verið ástæðulaus. Ef þið aftur á móti hafið haft áhyggjur af holdafari og líðan barnsins þá er kannski ástæða til þess að þiggja fag- legt samtal og aðstoð við því. Hér vil ég þó benda á að það hefur ákveðinn hræðslu- áróður einkennt umræðu um holdafar á undanförnum áratugum sem hefur leitt til rörsýnar sem hefur líka náð til fagfólks. Þarna vantar helst upp á mat á ávinningi af inngripum þegar kemur að holdarfari. Afleiðingar af slíku geta nefnilega verið skaðlegar og jafnvel skað- legri en holdafarið sjálft. Þar ber helst að nefna áhættuna á hvers konar átröskunum sem hafa svo aftur í för með sér óheilbrigðar matarvenjur, kvíða, laka sjálfsmynd og svona mætti lengi telja. Heilbrigðar lífsvenjur Nú vil ég alls ekki gera lítið úr starfi heilsugæslu og skóla og tel að ábendingar þaðan séu yfirleitt af hinu góða og það ýtir undir trúverðugleika að athugasemdirnar koma frá báðum aðilum í ykkar tilfelli. Aftur á móti tel ég mikil- vægt að ef skóli og heilsu- gæsla hafa komið með svona ábendingar að benda á úr- ræði og lausnir fyrir ykkur. Bauðst ykkur eitthvað slíkt? Og ef svo er, hvernig er ár- angurinn metinn og er stillt af fyrir aðra þætti sem geta komið upp í kjölfarið? Þú nefnir hvort það séu einhverjar aðrar leiðir til þess að „grenna“ barnið og ég skil afar vel hvað þér er illa við orðið, en orð eru ein- mitt mikilvæg í þessu sam- hengi. Orðræða um mataræði og holdafar og umræða um slíkt á heimilinu getur verið lykillinn að heilbrigðri lík- amsmynd barns. Megrun er margrannsakað mein, en heilbrigð umræða um heil- brigðar lífsvenjur er allt ann- að. Barnið þitt mótar sínar fyrstu hugmyndir um mat og líkama með því að líta til þín. Það væri því ágætt í þessu samhengi að skoða hvernig umræða og samband ykkar foreldra er við mat og heil- brigðar lífsvenjur og hvort þar megi gera breytingar. Börn læra það sem er gert fremur en það sem er sagt, svo mögulega þarf bara að stramma af nokkrar einfald- ar skrúfur í heimilishaldinu og barnið mun fylgja með. Sjálfsmyndarvinna Að lokum vil ég árétta að sjálfsmynd barna saman- stendur af mörgum áhrifa- þáttum. Sem dæmi má nefna fjölskyldan, vinátta, áhuga- mál og nám geta spilað þar stóra rullu. Við getum æft okkur að verða betri vin- konur, við getum æft okkur að vera góð í fótbolta og við getum lagt mikið á okkur til þess að læra erfiða alg ebru. Útlitinu breytum við ekki svo glatt og það fær að vega allt of þungt þegar kemur að sjálfs- mynd barna og unglinga. Get- ur verið að nýtt áhugamál eða að bjóða vinum í heimsókn eftir skóla geti styrkt sjálfs- mynd barnsins þíns meira en vigtin hjá skólahjúkrunar- fræðingnum? Ef svo er, nú þá væri ráð að setja fókusinn á eitthvað slíkt. Ég þakka þér fyrir ögrandi og góða spurningu sem við öll, sem komum að starfi og uppeldi barna, höfum gott af því að velta fyrir okkur. n Við hvetjum lesendur til að senda spurningar og vangaveltur sínar til Kristínar í tölvupósti á: hjonabandssaela@gmail.com. Spurningunum verður svo svarað hér í Fjölskylduhorninu, að sjálf- sögðu nafnlaust og í fullum trúnaði. 30 FÓKUS 16. OKTÓBER 2020 DV Fjölskylduhornið Kristín Tómasdóttir hjónabandsráðgjafi svarar spurningum lesenda um málefni er varða fjölskylduna, börnin og ástina í Fjölskylduhorni DV. Að þessu sinni svarar Kristín spurningu lesanda sem hefur áhyggjur af þyngd barnsins síns. Barnið mitt er bústið ER ÞAÐ ENDILEGA VANDAMÁL? Sérfræðingur svarar MYND/GETTY

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.