Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2020, Síða 31
KYNNING 31DV 18. SEPTEMBER 2020
Dagatölin slógu heldur betur í gegn enda vorum við að bjóða upp á verð sem sást alls ekki
hér á landi. Við komum líka strax
auga á mikið ósamræmi á verði á kyn-
lífstækjum almennt. Það var oft hátt
í 50% verðálagning hjá íslenskum
heildsölum ofan á það sem varan
kostar á til dæmis Amazon með
flutningi, sköttum og öllu því sem
það kostar einstakling að flytja inn
eina vöru. Því vatt þetta fljótt upp á
sig og síðan þá höfum við haft það að
leiðarljósi að bjóða upp á fyrsta flokks
kynlífstæki á frábæru verði. Í ár
fundum við algerlega sturluð kynlífs-
tækjadagatöl sem eiga heldur betur
eftir að slá í gegn í desember og lengi
eftir það,“ segir Vilhjálmur.
Forsölu lýkur í næstu viku
Í september hófst forsala á nýjum og
spennandi kynlífstækjadagatölum hjá
Hermosa og henni lýkur föstudaginn
23. október, í næstu viku. „Það er
ekki mikið magn sem við eigum eftir
að selja. Þetta á eftir að klárast mjög
fljótt og því er ráðlegt að þeir sem
hafa áhuga á að panta dagatölin geri
það sem fyrst.
Í fyrra fundum við ekkert dagatal
sem stóðst okkar kröfur, en núna
í ár höfum við landað tveimur frá-
bærum dagatölum sem henta alls
konar pörum. Þetta eru ótrúlega
vegleg dagatöl og það sem gerir þau
frábrugðin flestum öðrum er að þau
innihalda ekki bara vörur frá einum
framleiðanda. Hægt er að velja um
Premium kynlífstækjadagatal og svo
Classic dagatal.“
Úrvalsvörur í svefnherbergið
Premium dagatölin eru sérlega vegleg
með frábært úrval af hágæða kynlífs-
tækjum. Dagatalið kostar 39.990 kr.
en verðmæti varanna er um 150.000
kr. „Þetta eru 28 vörur sem þýðir að í
sumum gluggum er fleiri en ein vara.
Þá er meðalverðið á hverri vöru fyrir
sig 1.428 kr. sem er lægra verð en á
ódýrustu vörunni í dagatalinu. Við
erum að tala um Womanizer-vörur,
paratæki, alvöru leðurvörur, múffur,
titrara, sleipiefni og alls konar
unaðs tæki til þess að gera desember-
skammdegið að skemmtilegasta tíma
ársins.“
Sígildar unaðsvörur
Hitt dagatalið er alls ekki síðra.
Dagatalið er á 24.990 kr. en verðmæti
varanna er um 80.000 kr. „Vörurnar
í þessu eru mjög góðar og sígildar
en vörumerkin eru minna þekkt. Við
höfum þó verið að selja frábærar
vörur frá þessum aðilum og við
vitum að þetta eru flott vörumerki.
Þarna eru kegal-perlur, titrarar,
dildóar, sogtæki, BDSM-dót, typpa-
hringur og paratæki. Það verður
enginn svikinn af þessum munúðar-
pakka.“
Samdægurs sendingarþjónusta
„Við vinnum sífellt að því að bæta
þjónustuna hvar sem hægt er, en við-
Síðasti séns að næla sér í jóladagatöl
Hermosa er ein stærsta og farsælasta netverslun með kynlífstæki á Íslandi í dag. Upp-
hafið má rekja til þess að eigendurnir, Vilhjálmur Þór Gunnarsson og Kristín Björg Hrólfs-
dóttir, fluttu inn kynlífstækjadagatöl og komu auga á verðósamræmi á markaðnum.
skiptavinir okkar hafa kunnað vel að
meta góða verðið, fríu heimsending-
una og hvað vefsíðan er þægileg og
einföld í notkun. En okkar markmið
hefur alltaf verið að einskorða úrvalið
við fyrsta flokks vörur. Eins og við
segjum oft þá nennir enginn að skoða
300 dildóa í leit að þeim eina rétta. Við
erum búin að leggjast í rannsóknar-
vinnuna til að einfalda þér lífið.
Það nýjasta hjá okkur er að nú
bjóðum við upp á samdægurs heim-
sendingu, sækja á N1 á leið heim úr
vinnu eða í vöruhús. Ef pantað er
fyrir hádegi þá geturðu fengið vöruna
heimsenda samdægurs. Þetta er í
raun engu flóknara en að panta pitsu.
Þú færð sms þegar varan fer í bílinn
og svo annað þegar það eru 15-20
mínútur í að hún kemur til þín. Það
þarf því ekki að bíða heima í heilan
dag eftir heimsendingu. Ef fólk vill
sækja þá er hægt að sækja sendingar
frá klukkan 17.00 og fram á kvöld á
allar N1-stöðvar. Þessi kostur hentar
mörgum sem vilja kippa pakkanum
með sér heim úr vinnu og vilja ekki
þurfa að vera heima. Einnig er hægt
að sækja sjálfur í vöruhúsið fyrir
klukkan 17.00 á daginn.
Einnig höfum við bætt við lifandi
spjalli á síðuna okkar. Þá geta við-
skiptavinir náð í okkur á næstum
hvaða tíma sólarhringsins sem er. Við
erum nánast alltaf við því við getum
hvort heldur er svarað í tölvunni eða
símanum.“ n
Kristín og Vilhjálmur eru spennt að tilkynna að þau ætla að bjóða upp á algerlega sturluð kynlífstækjadagatöl í ár. MYND/VALLI
S o g t æk i n f r á
Womanizer hafa
tröllriðið kynlífs-
tækjamarkaðnum
undanfarið.
Fjarstýrðu eggin
frá Easy Toys
passa vel í nær-
buxurnar. Makinn
fær svo fjarstýr-
inguna og getur
kveikt á egginu
hvar og hvenær
sem er. Gefðu frá
þér stjórnina, þú
munt ekki sjá eftir
því.
Dagat ö l in eru
ótrúlega vegleg
og innihalda ekki
bara vörur frá ein-
um framleiðanda.
Fal legur para-
titrari frá We-Vibe
sem mun krydda
vel upp á kynlífið
í desember. Tækið
virkar í flestum
s te l l ingum og
veitir báðum að-
ilum unað.
Kíktu við á hermosa.is til að skoða úrvalið
og panta kynlífstækjadagatal.
Facebook: Hermosa.is
Instagram: hermosaisland