Fréttablaðið - 17.10.2020, Page 2

Fréttablaðið - 17.10.2020, Page 2
Nú orðaði ég spurningarnar skýrar hvað varðar stúlkur undir 18 ára því athygli hefur verið vakin á að- gerðum á börnum. Líneik Anna Sævarsdóttir, þingmaður Fram- sóknarflokksins Veður Hæg suðlæg átt í dag, en suðvestan 8-13 NV-til seinni partinn. Skýjað veður og dálítil væta með köflum S- og V-lands. Hiti 3 til 9 stig að deg- inum, en heldur svalara á NA- og A-landi. SJÁ SÍÐU 40 Álftirnar snæddu á háborðinu Flætt hafði yfir gangstéttina við Reykjavíkurtjörn þegar ljósmyndari Fréttablaðsins átti leið hjá í gær. Þessar álftir nýttu tækifærið til að fá betri yfirsýn yfir Tjörnina við leit að mat og gæddu sér á kræsingum. Starfsmaður Reykjavíkurborgar sem Fréttablaðið ræddi við sagði að það væri ekk- ert nýtt að vatn f læddi yfir lægstu punkta gönguleiðarinnar en að það væri ekki svo algengt að grípa þyrfti til aðgerða. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK HEILBRIGÐISMÁL Enn þá hefur Landlæknisembættinu ekki tekist að fá upplýsingar frá lýtalæknum um aðgerðir á börnum, svo sem skapa barmaaðgerðir og brjósta- stækkanir. Aðgerðir sem taldar eru fegrunaraðgerðir og ekki greiddar af Sjúkratryggingum Íslands. Málið hefur verið bitbein á milli Landlæknis og lýtalækna um nokkurt skeið. Félag íslenskra lýtalækna hefur haldið því fram að fyrirspurnir séu of ítarlegar og brjóti persónuvernd sjúklinga og Persónuvernd hefur sagt að þörf sé á skýrari ákvæðum um heilbrigðis- skrár. Embættið óskaði eftir því í byrjun september á þessu ári að heilbrigðisráðuneytið hefji vinnu við endurskoða ákvæði um vinnslu persónuupplýsinga til að hægt verði að brjóta múrinn. Líneik Anna Sævarsdóttir, þing- maður Framsóknarflokksins, hefur haldið málinu á lofti í þinginu í gegnum árin en ekki tekist að fá upplýsingar um fjölda aðgerðanna, þar á meðal þeirra sem gerðar eru á stúlkum undir 18 ára aldri. Hún bar í þriðja skiptið á sjö árum fram fyrirspurn um þetta fyrr í vikunni. Segist hún fá spurningar frá heil- brigðisstarfsfólki, bæði hjúkrunar- fræðingum og ljósmæðrum, sem hafi áhyggjur af þessu. Segist Líneik efast um réttmæti þess að gera slíkar aðgerðir á börn- um en hafi þó séð viðtöl við lýta- lækna sem bendi til þess að þetta sé stundað. Einnig að auglýsingar frá lýtalæknum bendi til þess. Í ljósi skorts á tölulegum upplýsingum sé þó ekki hægt að fullyrða hvort aðgerðunum sé að fjölga. „Þegar ég talaði við ljósmæður árið 2013 var tilfinning þeirra sú að þessum aðgerðum hefði fjölgað,“ segir Líneik. „Ég hef ekki orðið mikið vör við kynningarefni frá lýtalæknum síðan fyrr en á þessu ári.“ Líneik lagði fyrst fram fyrirspurn árið 2013 um fjölda aðgerða, svo sem skapabarmaaðgerðir, legganga- þrengingar, endaþarmshvíttun og brjóstastækkanir. Kom þá fram að þó að Landlæknir hefði fengið starf- semisupplýsingar frá 90 prósentum sjálfstætt starfandi lækna, þá væru lýtalæknar ekki þar á meðal. Gilti einu hvort um væri að ræða stúlkur undir 18 eða ekki. Þegar hún bar fyrirspurnina aftur upp árið 2016, höfðu skil á upplýsingum ekki lagast. „Það er áhyggjuefni að Land- læknir fái ekki upplýsingar um þetta. Nú orðaði ég spurningarnar skýrar hvað varðar stúlkur undir 18 ára því athygli hefur verið vakin á aðgerðum á börnum,“ segir Líneik. Í svari frá Landlæknisembættinu til Fréttablaðsins segir að ungling- ar verði sjálfstæðir þjónustuþegar heilbrigðiskerfisins við 16 ára aldur. Þeir geti því leitað til heilbrigðis- starfsfólks án samþykkis eða vit- undar foreldra. „Embætti landlæknis er ekki kunnugt um ákvæði sem banna aðgerðir sem þessar á börnum en slíkt getur ekki verið gert án sam- þykkis foreldra,“ segir í svarinu. kristinnhaukur@frettabladid.is Óttast fjölgun aðgerða á kynfærum stúlkna Þar sem kynningarefni um fegrunaraðgerðir á kynfærum og brjóstum hefur aukist á árinu grunar þingmnn Framsóknarflokksins að aðgerðum á stúlkum fjölgi. Landlæknir biður um lagabreytingu svo fá megi svör frá lýtalæknum. Engin lög munu vera til sem banna fegrunaraðgerðir á börnum. MYND/GETTY • Málningarvinna • Flísa- og parketlögn • Múrviðgerðir • Tjón vegna myglu • Nýsmíði og viðhald • Vatnstjón • Rakaskemmdir 892 0688 NORÐURLAND Karlmaður á fertugs- aldri var í gær úrskurðaður í fimm vikna gæsluvarðhald, svokallaða síbrotagæslu, í Héraðsdómi Norður- lands eystra. Lögreglan rannsakar nú fjölmörg ofbeldisbrot mannsins, þar á meðal gegn unnustu, sambýlisfólki og nágrönnum í Hrísey. Telur lögregla að maðurinn haldi áfram brotum á meðan málum hans er ólokið. Hann var fluttur í fangelsið á Hólmsheiði. Hríseyingar sem Fréttablaðið hefur rætt við vegna mannsins hafa verið uggandi yfir stöðunni og segja þeir að afbrot þar megi flest, ef ekki öll, rekja til hans. RÚV á Norðurlandi greindi frá því í vikunni að lögreglan hygðist koma upp eftirlitsmyndavélum í Hrísey. Í svari Akureyrarbæjar segir að ekki sé hægt að tjá sig um einstök mál, en að málið sé í vinnslu. – ab Síbrotamaður úr Hrísey í gæsluvarðhald SAMFÉLAG Það sem af er ársins hafa að meðaltali 42,5 einstaklingar látist í hverri viku. Árin 2017-2019 dóu að meðaltali 43,3 á viku. Flestir sem dóu á þessu ári og á tímabilinu frá 2017-2019 voru að jafnaði 85 ára eða eldri. Flestir sem dóu á fyrstu 39 vikum þessa árs voru 83 ára. Tíðasti aldur látinna 2017- 2019 var 87 ára. 1.233 einstaklingar, 70 ára og eldri, hafa látist það sem af er ári. Er það 34 einstaklingum færri en þeir sem lét- ust í sama aldurshópi á sama tíma- bili 2019. Á fyrstu 39 vikum ársins 2018 létust 1.311 manns í aldurshóp i 70 ára og eldri . - bdj Færri dánir í ár en í fyrra COVID-19 Samkvæmt nýjustu sótt- varnaráðstöfunum er nú komin tveggja metra regla um allt land. Gerð er krafa um andlitsgrímur þar sem ekki er hægt að tryggja tveggja metra fjarlægð utan höfuðborgar- svæðisins. Þetta kom fram í minnisblaði sóttvarnalæknis sem heilbrigðis- ráðherra samþykkti. Sett hafa verið tuttugu manna fjöldatakmörk á viðburðum úti á landi. Íþróttalíf fær að halda áfram en án áhorfenda. Á höfuðborgarsvæðinu verður íþrótta- og tómstundastarf barna á leik- og grunnskólaaldri með snertingu og skólasund stöðvað. Iðkendur íþrótta sem ekki krefjast snertingar fá að halda sínu striki háð fjölda- og fjarlægðatakmörk- unum. – kpt Herða tökin á landsbyggðinni Alls hafa látist 1.233 sem voru sjötíu ára eða eldri á þessu ári. 1 7 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.