Fréttablaðið - 17.10.2020, Blaðsíða 70

Fréttablaðið - 17.10.2020, Blaðsíða 70
Skrýtlur Konráð á ferð og flugi og félagar 425 „Jæja þá, tvær nýjar sudoku gátur,“ sagði Kata glottandi. „Nú er ég orðin svo góð í að leysa sudoku gátur að við skulum koma í kapp um hver verður fyrstur til að leysa þær,“ bætti hún við. „Allt í lagi,“ sagði Konráð. „Til er ég.“ Lísaloppa var líka góð í að leysa sudoku gátur svo hún var alveg til í keppni. „Við glímum öll við þær báðar og þá kemur í ljós hversu klár þú ert orðin,“ sagði hún. „En ég vara ykkur við, ég er orðin mjög klár,“ sagði Kata montin. “Við getum byrjað á þessari léttari,“ sagði Lísaloppa. „Þeirri léttari fyrst,“ sagði Kata hneyksluð. „Ekki ég, ég byrja á þeirri erfiðari fyrst,“ sagði hún og glotti. „Ég yrði fljótari en þið bæði til samans þótt þær væru báðar þungar.“ Kata var orðin ansi klár. En skildi hún vera svona klár? Heldur þú að þú g etir ley st þessar sudoku gátur h raðar e n Kata? ? ? ? Dregið var nýlega úr réttum lausn- um í Ratleik Hafnarfjarðar 2020 og í f lokknum Göngugarpur Hafnar- fjarðar 2020 var Elísa Björt Ágústs- dóttir, tólf ára, sigurvegari. Hverju ertu stoltust af, Elísa Björt, þegar þú hugsar um göngugarps­ titilinn? Að hafa náð að klára átján pósta þetta sumar. Hvað fékkstu í verðlaun? Ég fékk svart 66°Norður-vesti. Er leikurinn bundinn við einn dag, eða f leiri? Hann er í gangi allt sumarið og getur tekið marga daga. Voru margir á þínum aldri? Maður veit aldrei hverjir taka þátt því fólk fer þegar það vill og getur. Ég fór alltaf með fjölskyldunni minni og við hittum ekki neina krakka á leið- inni en ég er viss um að sumir fara með foreldrum sínum eins og ég. Hefur þú tekið þátt áður? Já, þetta var í fjórða skipti sem ég tek þátt. Af hverju byrjaðir þú? Mér finnst þetta góð og skemmtileg útivera með fjölskyldunni. Er alltaf fundin ný og ný leið? Það eru merktir staðir sem þarf að finna, með hjálp frá landakorti, nýir á hverju ári og það er gaman að sjá nýja, f lotta staði sem maður vissi ekki af. Hefur þú einhvern tíma villst af leið? Ekki beint villst en stundum hef ég ekki fundið staðsetninguna sem er merkt á skiltinu, þá hef ég þurft að labba aftur annan dag. Hefur þú lent í ævintýrum? Ekki beint ævintýrum en þegar við vorum að leita að einu skilti gengum við yfir mikið og hvasst hraun og ég datt í hrauninu, þá kom hundurinn minn hlaupandi til að bjarga mér. Það var skemmtilegt. Ertu vön göngum – þó enginn rat­ leikur sé? Ég fer stundum með fjöl- skyldunni og hundinum mínum í fjallgöngur eða að labba einhvers staðar í náttúrunni. Systir mín gekk kringum landið í fyrrasumar og fjölskyldan er vön að ganga mikið. Hvað finnst þér best við göngur? Maður fær frískt loft og fær líka að sjá nýja og flotta staði. Hefur þú alltaf átt heima í Hafnar­ firði? Nei, ég átti einu sinni heima í Noregi rétt hjá Osló í fimm ár. Hver eru helstu áhugamálin þín? Mér finnst gaman í handbolta, fót- bolta og að syngja og leika við vini. Hvað langar þig helst að verða þegar þú verður stór? Atvinnu- maður í handbolta. Hundurinn kom að bjarga mér Göngugarpurinn Elísa Björt hefur fengið að kynnast hafnfirska hrauninu. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI SYSTIR MÍN GEKK KRINGUM LANDIÐ Í FYRRASUMAR OG FJÖLSKYLDAN ER VÖN AÐ GANGA MIKIÐ. Konan við manninn: Læknir- inn er kominn. Maðurinn: Ég vil ekki hitta hann, segðu honum að ég sé veikur! Maður fór til læknis og sagðist eiga við vandamál að stríða. Læknirinn: Hvert er vanda- málið? Maðurinn: Jú, sjáðu til, ég þarf alltaf að kúka klukkan átta á morgnana. Læknirinn: Er það eitthvert vandamál? Maðurinn: Já, ég vakna aldrei fyrr en klukkan níu! Í réttarsal: Dómarinn: Ertu sek? Sakborningurinn: Nei, herra dómari. Dómarinn: Hefurðu stolið einhverju áður? Sakborningurinn: Nei, þetta var í fyrsta skipti. Daman við kærastann: Það er svo góð lykt af þér í dag. Kærastinn: Já, ég fór í hreina sokka! Upphaf Rómaborgar Vissir þú að….. … Það voru tveir bræður sem sagan segir að hafi stofnað Rómaborg? …Þeir hétu Rómulus og Remus? …Þetta var árið 753 fyrir Krists burð? …Móðir þeirra var prins- essan Rhea Silvi? …Faðir þeirra var stríðs- guðinn Mars? …Þeim var hent í ána Tíber en flutu að bakka? …Mars sendi þeim úlfynju til bjargar sem ól þá upp? …Þeir stofnuðu borg við árbakkann? …Þeir börðust um að ráða yfir borginni? …Það var Rómúlus sem sigraði og varð konungur? 1 7 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R38 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð KRAKKAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.