Fréttablaðið - 17.10.2020, Blaðsíða 4
LOÐNUVEIÐAR Þrátt fyrir að Haf-
rannsóknastofnun hafi mælt með því
að engar loðnuveiðar verði leyfðar á
yfirstandandi fiskveiðiári eru útgerð-
armenn sannfærðir um að loðnan
muni finnast í næsta leiðangri.
Hafrannsóknastofnun tilkynnti á
föstudag að niðurstöður rannsóknar-
leiðangurs, sem stóð yfir frá 7. sept-
ember til 5. október, gefi ekki tilefni
til að mæla með loðnuveiðum.
Loðnubrestur hefur orðið síðustu
tvær vertíðir, en útflutningsverðmæti
afurðarinnar á hverju ári nemur allt
að 30 milljörðum króna. Útgerðar-
menn segja að mælingar Hafrann-
sóknastofnunar á ungloðnustofnin-
um gefi tilefni til bjartsýni, þrátt fyrir
að ekki hafi verið mælt með úthlutun
aflamarks að þessu sinni.
„Fregnir af andláti loðnustofnsins
eru stórlega ýktar,“ segir Gunnþór
Ingvarsson, framkvæmdastjóri Síld-
arvinnslunnar í Neskaupstað, sem
á tæplega 19 prósent af af lamarki
loðnu. Gunnþór bendir á ungloðnu-
mæling Hafró hafi verið sú næstbesta
í undanfarin 30 ár.
„Við höfum því þá vísbendingu
um að loðnustofninn sé sannarlega
sterkur, hún er þarna og næsta verk-
efni er að staðfesta það í samstarfi
við vísindamennina. Ég er bjartsýnn
á að vertíðin verði að veruleika,“ segir
hann, en stofnmæling ungloðnu
Hafró hljóðaði upp á 746 þúsund
tonn. Gunnþór bendir jafnframt á að
ungloðnumælingin síðasta haust hafi
bent til þess að aflamarks úthlutun
fyrir veiðistofn þessa árs hefði átt að
verða um 170 þúsund tonn.
Stefán Friðriksson, framkvæmda-
stjóri Ísfélags Vestmannaeyja, tekur
í svipaðan streng. Hann bendir á að
sökum veðurfars á miðunum og mik-
illar útbreiðslu hafíss hafi ekki verið
mögulegt að kanna allt svæðið sem
til stóð í rannsóknarferð Árna Frið-
rikssonar í september: „Það er full
ástæða til að gera sér góðar vonir um
að janúarmælingin verði betri, í ljósi
þess að mikið af hafís hindraði rann-
sóknirnar í september. Þar að auki
var veður slæmt,“ en næsta loðnu-
rannsóknarferð Hafró er fyrirhuguð
15. janúar næstkomandi.
Ísfélagið á um 20 prósent af afla-
marki loðnu. Stefán bendir jafn-
framt á að ekki sé endilega hyggilegt
að flýta næsta loðnuleiðangri Haf-
rannsóknastofnunar, þar sem best
sé að finna loðnuna þegar hún hefur
göngu í janúar.
Sigurgeir Brynjar Kristleifsson,
framkvæmdastjóri Vinnslustöðv-
arinnar, segir að ekki séu öll kurl
loðnuleitarinnar komin til grafar
enn. Ekki sé ástæða til að örvænta
enn sem komið er: „Ungloðnan var
einnig sterk í fyrra þannig að ég á
ekki von á öðru en að hún eigi eftir
að skila sér í janúarmælingunni.
Það jákvæða er auðvitað að við
erum að sjá þessa stóru árganga
koma aftur inn, um það verður
ekki villst,“ segir hann og bætir
við: „Það var mikill ís á svæðinu
þar sem þeir bjuggust við að finna
loðnuna. Loðnan er þarna og við
munum finna hana.“
thg@frettabladid.is
ÞJÓNUSTUVERKSTÆÐI, VARA- OG AUKAHLUTAVERSLUN
Pallbílahús frá ARE á alla USA pallbíla
Varahlutaverslun ÍSBAND býður upp á gott úrval vara- og aukahluta og
íhluta til breytinga. Allir helstu varahlutir í okkar vörumerkjum eru til á
lager. Sérpöntum varahluti í aðra USA bíla.
Úrval af felgum fyrir
Jeep® og RAM
Upphækkunarsett
í Wrangler
Upphækkunarsett
í RAM
Falcon demparar
ÍSLENSK-BANDARÍSKA EHF • VERKSTÆÐI OG VARAHLUTAVERSLUN • SMIÐSHÖFÐA 5 • 110 REYKJAVÍK
SÍMI 590 2323 • THJONUSTA@ISBAND.IS • WWW.ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA KL. 07:45 - 18:00
ALMENNT BÍLAVERKSTÆÐI OG
SMURÞJÓNUSTA FYRIR ALLA BÍLA
ALLIR VINNA - ENDURGREIÐSLA VSK.
FIAT HÚSBÍLAR - ÁBYRGÐAR OG
ÞJÓNUSTUVERKSTÆÐI
BREYTINGAR Á JEEP®, RAM
OG ÖÐRUM USA PALLBÍLUM
ALLIR BÍLAR SÓTTHREINSAÐIR
STUTTUR BIÐTÍMI SÍMI 590 2323
UMBOÐSAÐILI
Sigrún Birna Steinarsdóttir
landfræðinemi
var kjörin for-
maður Ungra
Vinstri grænna á
landsfundi sem
fór fram í gegnum
fjarfundarbúnað.
Í ályktun segir
UVG tímabært að
ungt fólk fái raunverulegt sæti við
borðið og ekki sé komið fram við
það „eins og skrautmuni sem gott
er að auglýsa á tyllidögum“.
Þorgrímur Þráinsson
rithöfundur
braut reglur UEFA
þegar hann gekk
inn á Laugar-
dalsvöll til að
knúsa leikmenn
íslenska lands-
liðsins eftir leik
þeirra gegn Rúm-
enum. Þorgrímur, sem smitaðist af
COVID-19 og setti tólf starfsmenn
KSÍ í sóttkví, var hvorki á leik-
skýrslu í leiknum gegn Rúmenum
né Dönum og mátti því ekki stíga
inn á völlinn. Fyrir vikið var var
þjálfarateymið í sóttkví gegn
Belgum.
Össur Skarphéðinsson
fyrrverandi ráðherra
fékk fjölmörg
óvænt símtöl í
vikunni þegar
hlustendur
Útvarps Sögu
voru hvattir
til að hringja í
símanúmerið
hans og biðja hann um að skrifa
undir áskorun til að samþykkja
nýju stjórnarskrána. Þrátt fyrir að
símanúmerið hafi verið birt fyrir
slysni styður Össur verkefnið heils
hugar.
2.823
sæta nú sóttkví á Íslandi.
5
helsingjar með senditæki á
hálsinum eru flognir til vetrar-
stöðvanna í Skotlandi.
16.000
krónur er meðalverð á þriggja
rétta máltíð fyrir tvo í Reykjavík.
23.500
laxar veiddust á stöng í sumar,
margir oftar en einu sinni.
43
verslanir, minnst, í miðbænum
byggja afkomu sína að lang-
mestu leyti á ferðamönnum.
TÖLUR VIKUNNAR 11.10.2020 TIL 17.10.2020
Þrjú í fréttum
Nýr formaður,
reglubrot og
skakkt númer
Útgerðarmenn fullyrða að
loðnustofninn sé enn sterkur
Þrátt fyrir að Hafrannsóknastofnun hafi ekki séð sér fært að mæla með loðnuveiðum á yfirstandandi
vertíð telja útgerðarmenn að loðna muni finnast í næsta rannsóknarleiðangri í janúar. Mæling sýnir
stofnstærð ungloðnu sem þá næststærstu frá 1980. Fréttir af andláti loðnustofnsins sagðar mjög ýktar.
Útgerðarmenn fullyrða að loðnuveiðar séu að komast í gang eftir loðnubrest síðustu ára. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR
Fregnir af andláti
loðnustofnsins eru
stórlega ýktar.
Gunnþór Ing-
varsson, fram-
kvæmdastjóri
Síldarvinnslunnar í
Neskaupstað
Loðnan er þarna og
við munum finna
hana.
Sigurgeir Brynjar
Kristleifsson,
framkvæmda-
stjóri Vinnslu-
stöðvarinnar
1 7 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð