Fréttablaðið - 17.10.2020, Blaðsíða 37

Fréttablaðið - 17.10.2020, Blaðsíða 37
Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga Lausar stöður til umsóknar! Forstöðumaður Smiðjunnar Menntun Þroskaþjálfa- eða iðjuþjálfamenntun ellegar sambærileg menntun og reynsla er nýtist í starfi forstöðu vinnustaðar með fólki með skerta starfsgetu Náms- og starfsráðgjafi Menntun Starfsréttindi náms- og starfsráðgjafa Umsækjendur ofantalinna starfa hafi m.a. til að bera: góða samvinnu- og samskiptahæfileika, jákvæðni og frumkvæði, geti unnið sjálfstætt sem og i þverfaglegu samstarfi. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélaga. Skriflegar umsóknir um störfin er tilgreini menntun, starfsferil og umsagnaraðila, ásamt prófskírteini og sakavottorði berist undirrituðum sem jafnframt veitir frekari upplýsingar. Umsóknarfrestur er til 2. nóvember 2020 Sveinn Þór Elinbergsson, forstöðumaður Klettsbúð 4, 360 Snæfellsbær www.fssf.is; sveinn@fssf.is Össur er leiðandi alþjóðlegt fyrirtæki á sviði stoð- og stuðningstækja. Hjá félaginu starfa um 3.500 manns í 26 löndum. Gildi félagsins eru: Heiðarleiki – Hagsýni – Hugrekki. WWW.OSSUR.IS Við leitum að öflugum og framsæknum stjórnanda til að leiða upplýsingatæknisvið Össurar. Um er að ræða krefjandi starf sem felur í sér þróun og þjónustu tækniumhverfis, upplýsingakerfa og stafrænna lausna Össurar á alþjóðavísu. Össur er á stafrænni vegferð og þurfum við einstakling sem getur tengt saman viðskipti og tæknilausnir. Við leggjum áherslu á þverfaglega teymisvinnu, fagleg vinnubrögð og gott starfsumhverfi. HÆFNISKRÖFUR • Háskólagráða á meistarastigi sem nýtist í starfi. • Yfirgripsmikil og farsæl stjórnunarreynsla, leiðtogahæfni og drifkraftur. • Víðtæk þekking og reynsla af uppbyggingu innviða og kerfa í tækniumhverfi. • Haldbær reynsla í stýringu verkefna og breytingastjórnun. • Mjög góð enskukunnátta. • Framúrskarandi hæfni í samskiptum og samvinnu. Forstöðumaður upplýsingatæknisviðs VP of IT and GPMO Umsóknarfrestur er til og með 26. október 2020. Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna. Sótt er um starfið á vef Össurar, ossur.is/mannaudur. Athugið að velja viðeigandi starf. For English version please see the above webpage. Nánari upplýsingar veitir mannauðsdeild í síma 515 1300. STARFSSVIÐ • Stýrir upplýsingatæknisviði og alþjóðlegri verkefnastofu. • Þróar og leiðir stefnu upplýsingatæknisviðs í samvinnu við framkvæmdastjórn. • Ber ábyrgð á þróun og rekstri tölvukerfa og stafrænna lausna. • Leiðir öflugan hóp starfsmanna og drífur áfram verkefni. • Áhættustýring og öryggismál. Sérfræðingur í rannsóknateymi H N O TS K Ó G U R g ra fí sk h ön nu n Sérfræðingur óskast í fullt starf hjá Rannís. Starfið felur í sér umsjón með tveimur fagráðum Rannsóknasjóðs; raunvísinda og stærðfræði og verkfræði og tæknivísinda, umsjón með öðrum innlendum sjóðum og alþjóðlegum verkefnum á þessum fagsviðum. Menntunar- og hæfniskröfur: l Meistarapróf á sviði verkfræði eða raunvísinda er áskilið en doktorspróf er kostur l Reynsla af rannsóknum ásamt þekkingu á rannsóknaumhverfi er skilyrði l Mjög góð kunnátta í íslensku og ensku bæði tal- og ritmáli l Góð kunnátta í Norðurlandamáli er kostur l Mjög góð færni í töflureikni er skilyrði ásamt færni í helstu Office forritum eða sambærilegu l Mjög góð hæfni í greiningu og lausn vandamála er skilyrði l Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð ásamt góðri samskiptafærni áskilin l Metnaður til að ná árangri í starfi með því að sýna vönduð vinnubrögð, frumkvæði og veita góða þjónustu Upplýsingar um starfið veitir Ágúst Hjörtur Ingþórsson, sviðsstjóri rannsókna- og nýsköpunarsviðs, í síma 515 5830 eða netfanginu agust.hjortur.ingthorsson@rannis.is. Umsóknarfrestur er til og með 28. október 2020. Sækja skal um á vefsíðu Rannís, á www.rannis.is/starfsemi/laus-storf/. Þar er einnig að finna nánari upplýsingar um starfið. Umsækjendur eru beðnir um að kynna sér sérstaklega starfsemi Rannsóknasjóðs, sjá handbók sjóðsins fyrir 2021 á www.rannis.is/media/althjodasvid/RSJ-Handbok-2021.pdf. Rannís er líflegur vinnustaður með um 50 sérfræðingum sem starfa eftir gildum stofnunarinnar: Áhrif, fagmennska og samstarf. Hlutverk Rannís er að treysta stoðir íslensks samfélags með stuðningi við rannsóknir, nýsköpun, menntun og menningu og styðja þekkingarsamfélagið með rekstri samkeppnissjóða, aðstoð og kynningu á alþjóðlegum sóknarfærum og samstarfsmöguleikum. Rannís greinir og kynnir áhrif rannsókna, menntunar og menningar á þjóðarhag og þjónustar undirbúning vísinda- og tæknistefnu. Borgartúni 30, 105 Reykjavík, sími 515 5800, rannis@rannis.is www.rannis.is ATVINNUAUGLÝSINGAR 5 L AU G A R DAG U R 1 7 . O K TÓ B E R 2 0 2 0
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.