Fréttablaðið - 17.10.2020, Blaðsíða 37
Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga
Lausar stöður til umsóknar!
Forstöðumaður Smiðjunnar
Menntun Þroskaþjálfa- eða iðjuþjálfamenntun ellegar
sambærileg menntun og reynsla er nýtist í starfi forstöðu
vinnustaðar með fólki með skerta starfsgetu
Náms- og starfsráðgjafi
Menntun Starfsréttindi náms- og starfsráðgjafa
Umsækjendur ofantalinna starfa hafi m.a. til að bera:
góða samvinnu- og samskiptahæfileika, jákvæðni og
frumkvæði, geti unnið sjálfstætt sem og i þverfaglegu
samstarfi.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra
sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélaga.
Skriflegar umsóknir um störfin er tilgreini menntun,
starfsferil og umsagnaraðila, ásamt prófskírteini og
sakavottorði berist undirrituðum sem jafnframt veitir
frekari upplýsingar.
Umsóknarfrestur er til 2. nóvember 2020
Sveinn Þór Elinbergsson, forstöðumaður
Klettsbúð 4, 360 Snæfellsbær
www.fssf.is; sveinn@fssf.is
Össur er leiðandi alþjóðlegt fyrirtæki á sviði stoð- og stuðningstækja.
Hjá félaginu starfa um 3.500 manns í 26 löndum.
Gildi félagsins eru: Heiðarleiki – Hagsýni – Hugrekki. WWW.OSSUR.IS
Við leitum að öflugum og framsæknum stjórnanda til að leiða upplýsingatæknisvið Össurar.
Um er að ræða krefjandi starf sem felur í sér þróun og þjónustu tækniumhverfis, upplýsingakerfa og stafrænna
lausna Össurar á alþjóðavísu.
Össur er á stafrænni vegferð og þurfum við einstakling sem getur tengt saman viðskipti og tæknilausnir.
Við leggjum áherslu á þverfaglega teymisvinnu, fagleg vinnubrögð og gott starfsumhverfi.
HÆFNISKRÖFUR
• Háskólagráða á meistarastigi sem nýtist í starfi.
• Yfirgripsmikil og farsæl stjórnunarreynsla,
leiðtogahæfni og drifkraftur.
• Víðtæk þekking og reynsla af uppbyggingu innviða
og kerfa í tækniumhverfi.
• Haldbær reynsla í stýringu verkefna og
breytingastjórnun.
• Mjög góð enskukunnátta.
• Framúrskarandi hæfni í samskiptum og samvinnu.
Forstöðumaður upplýsingatæknisviðs
VP of IT and GPMO
Umsóknarfrestur er til og með 26. október 2020.
Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.
Sótt er um starfið á vef Össurar, ossur.is/mannaudur.
Athugið að velja viðeigandi starf.
For English version please see the above webpage.
Nánari upplýsingar veitir mannauðsdeild í síma 515 1300.
STARFSSVIÐ
• Stýrir upplýsingatæknisviði og alþjóðlegri
verkefnastofu.
• Þróar og leiðir stefnu upplýsingatæknisviðs
í samvinnu við framkvæmdastjórn.
• Ber ábyrgð á þróun og rekstri tölvukerfa og
stafrænna lausna.
• Leiðir öflugan hóp starfsmanna og drífur áfram
verkefni.
• Áhættustýring og öryggismál.
Sérfræðingur í rannsóknateymi
H
N
O
TS
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
sk
h
ön
nu
n
Sérfræðingur óskast í fullt starf hjá Rannís. Starfið felur í sér umsjón með tveimur fagráðum
Rannsóknasjóðs; raunvísinda og stærðfræði og verkfræði og tæknivísinda, umsjón með öðrum
innlendum sjóðum og alþjóðlegum verkefnum á þessum fagsviðum.
Menntunar- og hæfniskröfur:
l Meistarapróf á sviði verkfræði eða raunvísinda er áskilið en doktorspróf er kostur
l Reynsla af rannsóknum ásamt þekkingu á rannsóknaumhverfi er skilyrði
l Mjög góð kunnátta í íslensku og ensku bæði tal- og ritmáli
l Góð kunnátta í Norðurlandamáli er kostur
l Mjög góð færni í töflureikni er skilyrði ásamt færni í helstu Office forritum eða sambærilegu
l Mjög góð hæfni í greiningu og lausn vandamála er skilyrði
l Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð ásamt góðri samskiptafærni áskilin
l Metnaður til að ná árangri í starfi með því að sýna vönduð vinnubrögð, frumkvæði og veita
góða þjónustu
Upplýsingar um starfið veitir Ágúst Hjörtur Ingþórsson, sviðsstjóri rannsókna- og nýsköpunarsviðs,
í síma 515 5830 eða netfanginu agust.hjortur.ingthorsson@rannis.is.
Umsóknarfrestur er til og með 28. október 2020.
Sækja skal um á vefsíðu Rannís, á www.rannis.is/starfsemi/laus-storf/.
Þar er einnig að finna nánari upplýsingar um starfið. Umsækjendur eru beðnir
um að kynna sér sérstaklega starfsemi Rannsóknasjóðs, sjá handbók sjóðsins
fyrir 2021 á www.rannis.is/media/althjodasvid/RSJ-Handbok-2021.pdf.
Rannís er líflegur vinnustaður með um 50 sérfræðingum sem starfa eftir gildum stofnunarinnar: Áhrif, fagmennska og
samstarf. Hlutverk Rannís er að treysta stoðir íslensks samfélags með stuðningi við rannsóknir, nýsköpun, menntun
og menningu og styðja þekkingarsamfélagið með rekstri samkeppnissjóða, aðstoð og kynningu á alþjóðlegum
sóknarfærum og samstarfsmöguleikum. Rannís greinir og kynnir áhrif rannsókna, menntunar og menningar á þjóðarhag
og þjónustar undirbúning vísinda- og tæknistefnu.
Borgartúni 30, 105 Reykjavík,
sími 515 5800, rannis@rannis.is
www.rannis.is
ATVINNUAUGLÝSINGAR 5 L AU G A R DAG U R 1 7 . O K TÓ B E R 2 0 2 0