Fréttablaðið - 17.10.2020, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 17.10.2020, Blaðsíða 31
Þó að vítamín og fæðubótar-efni séu ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða koma í staðinn fyrir fjölbreytt og hollt mataræði, getur verið gagnlegt að bæta þeim við til að efla varnir okkar og tryggja að við fáum örugglega allt sem við þurfum samhliða heilsusamlegum lífsstíl. Bio- Kult Mind „Ég mæli heils hugar með að fólk taki inn góðgerla daglega því þarma flóran gegnir gríðar- lega mikilvægu hlutverki í heilsufari okkar, hvort sem um er að ræða líkam- lega eða andlega heilsu. Rann- sóknir sýna að gagnlegir stofnar góðgerla geta dregið úr líkum á ýmsum kvillum. Virkni og almennt heil- brigði meltingarvegarins ræðst meðal annars af samsetningu örveiruflóru í þarmaflórunni. Ein leið til þess að styðja við heil- brigða þarmaflóru er að taka inn mjólkursýrugerla á hverjum degi,“ segir Kristín. „Bio-Kult Mind er nýjung í Bio-Kult línunni. Þessi einstaka samsetning hefur jákvæð áhrif á hugræna virkni. Rannsóknir hafa sýnt að tenging á milli heila og meltingarvegar (gut-brain-axis) er mikil og að þarmaflóran gegni þar lykilhlutverki.“ Bio-Kult Mind inniheldur auk lifandi góðgerla, sink, vínberja- og bláberjaþykkni. Neubria „Neubria vörurnar eru spennandi nýjung á markaðnum, sérstak- lega hannaðar af sérfræðingum í bætiefnum og jurtum, með það í huga að efla mótstöðu okkar gegn streitu og álagi. Vörulínan saman- stendur af fimm öflugum bæti- efnablöndum með mismunandi áherslum meðal annars að bæta svefn, auka orku, bæta minni og einbeitingu. Neubria Mood er í miklu uppáhaldi hjá mér, en sú bætiefnablanda er samsett af sér- völdum innihaldsefnum eins og saffrani, burnirót, túrmeriki og ashwaganda, sem eru sérstaklega valin til að stuðla að andlegri vel- líðan og jafnvægi. Auk þess inni- heldur varan daglegan skammt af nauðsynlegum vítamínum og steinefnum. Ekki spillir fyrir að allar vörurnar frá Neubria eru vegan.“ Better You D-Lux 3000 „Ég mæli eindregið með því að fólk taki D-vítamín daglega, því erfitt er að fá nóg D-vítamín úr fæðunni einni saman. D-vítamín gegnir lykil- hlutverki í viðhaldi beina og stuðlar að upptöku kalks og fosfórs og er einnig mikil- vægt fyrir meðal annars ónæmiskerfið og vöðva- starfsemi. Afleiðingar of lítillar neyslu á D-vítamíni til lengri tíma eru beinþynning og beinkröm. Þar sem bein eru lifandi vefur þarf stöðugt að passa að næringarefnin sem beinin eru byggð úr séu til staðar í fæðunni, ásamt því að taka inn bætiefni til að tryggja að við fáum nóg. D-LUX 3000 frá Better You er í munnúðaformi, skilar hámarksupptöku og er afar þægi- legt í notkun.“ Hair Volume „Ýmislegt getur valdið því að hárið þynnist og verður líf laust eins og til dæmis streita, hormónabreyt- ingar, erfðir, aldur, sjúkdómar og sum lyf og þá geta bætiefnin oft hjálpað. Hair Volume er eina varan á markaðnum sem inni- heldur náttúrulega vaxtarvakann Procyanidin-B2 sem unnin er úr eplum. Að auki inniheldur Hair Volume bíótín sem styður við hárvöxt og umfang hársins, kopar sem hjálpar við að viðhalda lit hársins ásamt amínósýrunni L-cysteine sem getur komið í veg fyrir hárþurrk og viðhaldið áferð og þykkt hárs. Einnig inniheldur Hair Volume sink og þykkni úr hirsi sem getur stuðlað að líf legra og fallegra hári.“ Astaxanthin „Astaxanthin frá Algalíf er eitt af þessum bætiefnum sem ég hef mikla trú á og tek inn daglega. Þetta náttúrulega hágæða bætiefni sem er framleitt á sjálf bæran hátt með hreinu íslensku vatni er unnið úr örþörungum sem kallast Haema to- coccus pluvi- alis og er eitt af öflugustu andoxunar- efnum sem finnast í náttúrunni. Astaxanthin sem unnið er úr þessum þörungum hefur mun meiri andoxunargetu en það sem búið er til með öðrum aðferðum. Áhugi vísindamanna á áhrifum Astaxanthin á heilsuna er alltaf að aukast og hafa rannsóknir meðal annars sýnt fram á að það geti verndað húðina gegn sterkum útfjólubláum geislum sólarinnar og dregið úr ótímabærri öldrun. Talið er að öflug andoxunarefni geti meðal annars verndað og stuðlað að heilbrigði augna, heila, hjarta og vöðva. Íþrótta- fólk er farið að nota Astaxanthin í auknum mæli til að flýta fyrir endurheimt og betri árangri.“ Femarelle „Breyt- ingaskeið kvenna er eðlilegur gangur náttúr- unnar sem allar konur ganga í gegnum á ákveðnum aldri. Algengast er að þetta tímabil sé á aldursbilinu 45 til 55 ára, en það getur byrjað fyrr eða seinna. Mjög einstaklingsbundið er hversu mikil áhrif breytinga- skeiðið hefur á líðan kvenna, en flestar finna fyrir aukinni þreytu, svefntruflunum, depurð og kvíða. Í mínu starfi hef ég orðið vitni að ótrúlega skjótum árangri hjá mörgum konum á Femarelle, en Femarelle er náttúruleg lausn fyrir konur sem finna fyrir einkennum vegna hormónabreytinga. Kven- sjúkdómalæknar mæla í auknum mæli með Femarelle sem fyrstu meðferð gegn einkennum breyt- ingaskeiðsins og að auki hafa klínískar rann sóknir sýnt fram á að beinþéttni eykst með hjálp efnasambandsins DT56a sem er í Femarelle.“ Beetroot „Rauðrófan er afar vinsæl ofurfæða og ekki að ástæðulausu þar sem hún er stútfull af vítamínum, trefjum og andoxunar- efnum. Rauðrófur innihalda mikið magn af nítrötum sem hafa æðaútvíkk- andi og blóðflæðisaukandi áhrif. Aukið blóðflæði bætir súrefnis- upptöku, hefur góð áhrif á hjarta- og æðakerfi líkamans og getur aukið orku og úthald. Beetroot frá Natures aid er hluti af minni dag- legu rútínu, en þetta rauðrófuduft er unnið er úr lífrænum rauðrófum og kemur í hylkjum sem hægt er að taka inn eða opna og bæta út í drykki.“ Digest Spectrum „Af eigin reynslu og í starfi mínu sem næring- arþerapisti hef ég upp- lifað hvernig ensímin hafa algjörlega gert krafta- verk fyrir þá sem þurfa á að halda. Góð melting er lykillinn að góðri heilsu og öflug ensím geta hjálpað til við niðurbrot fæðunnar, auðvelda meltingu og upptöku á næringarefnum. Digest Spectrum hentar fólki sem upplifir óþægindi tengd meltingunni eða er með fæðuóþol. Ég er einstaklega hrifin af meltingarensímunum frá Enzymedica, en þau hafa slegið rækilega í gegn á Íslandi og hafa umbylt lífi fjölda fólks.“ Magnesíum Muscle „Magnesíum er eitt af mikil- vægustu steinefnum líkamans og er nauðsynlegt fyrir meðal annars eðlilega starfsemi hjarta, vöðva og taugakerfis. Margir vita ekki að við getum upptekið magnesíum í gegnum húðina, en það er mjög góð leið til að fylla á magnesíum- forðann, til dæmis eftir æfingar. Magnesium Muscle spreyið frá Better You inniheldur magnesíum- klóríð, sítrónuolíu, græðandi arniku og papriku, til að örva blóðflæðið og flýta fyrir endur- heimt vöðva eftir mikil átök. Full- komið að úða á þreytta vöðva eftir hlaup, jóga eða önnur átök til að draga úr stífleika, bólgum og harð- sperrum. Tilvalið fyrir íþróttafólk sem stundar langar og strangar æfingar. Þar sem magnesíum er einnig vöðvaslakandi er það mjög gott fyrir svefninn.“ Nýtum kraft náttúrunnar til að efla heilsu og varnir Kristín Steindórsdóttir næringarþerapisti hefur tekið saman lista yfir nokkur bætiefni sem hún mælir með og telur gagnleg heilsunni, hvort sem um er að ræða líkamlega eða andlega heilsu. FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 L AU G A R DAG U R 1 7 . O K TÓ B E R 2 0 2 0
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.