Fréttablaðið - 17.10.2020, Qupperneq 31
Þó að vítamín og fæðubótar-efni séu ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða koma
í staðinn fyrir fjölbreytt og hollt
mataræði, getur verið gagnlegt að
bæta þeim við til að efla varnir
okkar og tryggja að við fáum
örugglega allt sem við þurfum
samhliða heilsusamlegum lífsstíl.
Bio- Kult Mind
„Ég mæli heils
hugar með að
fólk taki inn
góðgerla daglega
því þarma flóran
gegnir gríðar-
lega mikilvægu
hlutverki í
heilsufari okkar,
hvort sem um er
að ræða líkam-
lega eða andlega
heilsu. Rann-
sóknir sýna
að gagnlegir
stofnar góðgerla
geta dregið úr líkum á ýmsum
kvillum. Virkni og almennt heil-
brigði meltingarvegarins ræðst
meðal annars af samsetningu
örveiruflóru í þarmaflórunni. Ein
leið til þess að styðja við heil-
brigða þarmaflóru er að taka inn
mjólkursýrugerla á hverjum degi,“
segir Kristín.
„Bio-Kult Mind er nýjung í
Bio-Kult línunni. Þessi einstaka
samsetning hefur jákvæð áhrif á
hugræna virkni. Rannsóknir hafa
sýnt að tenging á milli heila og
meltingarvegar (gut-brain-axis) er
mikil og að þarmaflóran gegni þar
lykilhlutverki.“
Bio-Kult Mind inniheldur auk
lifandi góðgerla, sink, vínberja- og
bláberjaþykkni.
Neubria
„Neubria vörurnar eru spennandi
nýjung á markaðnum, sérstak-
lega hannaðar af sérfræðingum í
bætiefnum og jurtum, með það í
huga að efla mótstöðu okkar gegn
streitu og álagi. Vörulínan saman-
stendur af fimm öflugum bæti-
efnablöndum með mismunandi
áherslum meðal annars að bæta
svefn, auka orku, bæta minni og
einbeitingu. Neubria Mood er í
miklu uppáhaldi hjá mér, en sú
bætiefnablanda er samsett af sér-
völdum innihaldsefnum eins og
saffrani, burnirót, túrmeriki og
ashwaganda, sem eru sérstaklega
valin til að stuðla að andlegri vel-
líðan og jafnvægi. Auk þess inni-
heldur varan daglegan skammt
af nauðsynlegum vítamínum og
steinefnum. Ekki spillir fyrir að
allar vörurnar frá Neubria eru
vegan.“
Better You D-Lux 3000
„Ég mæli eindregið með því að
fólk taki D-vítamín daglega, því
erfitt er að fá nóg D-vítamín úr
fæðunni einni saman. D-vítamín
gegnir lykil-
hlutverki í
viðhaldi beina
og stuðlar
að upptöku
kalks og
fosfórs og er
einnig mikil-
vægt fyrir
meðal annars
ónæmiskerfið
og vöðva-
starfsemi. Afleiðingar of lítillar
neyslu á D-vítamíni til lengri tíma
eru beinþynning og beinkröm.
Þar sem bein eru lifandi vefur þarf
stöðugt að passa að næringarefnin
sem beinin eru byggð úr séu til
staðar í fæðunni, ásamt því að taka
inn bætiefni til að tryggja að við
fáum nóg. D-LUX 3000 frá Better
You er í munnúðaformi, skilar
hámarksupptöku og er afar þægi-
legt í notkun.“
Hair Volume
„Ýmislegt getur valdið því að hárið
þynnist og verður líf laust eins og
til dæmis streita, hormónabreyt-
ingar, erfðir, aldur, sjúkdómar
og sum lyf og þá geta bætiefnin
oft hjálpað. Hair Volume er eina
varan á markaðnum sem inni-
heldur náttúrulega vaxtarvakann
Procyanidin-B2 sem unnin er
úr eplum. Að auki inniheldur
Hair Volume bíótín sem styður
við hárvöxt og umfang hársins,
kopar sem hjálpar við að viðhalda
lit hársins ásamt amínósýrunni
L-cysteine sem getur komið í veg
fyrir hárþurrk og viðhaldið áferð
og þykkt hárs. Einnig inniheldur
Hair Volume sink og þykkni úr
hirsi sem getur stuðlað að líf legra
og fallegra hári.“
Astaxanthin
„Astaxanthin frá Algalíf er eitt
af þessum bætiefnum sem ég hef
mikla trú á og tek inn daglega.
Þetta náttúrulega hágæða bætiefni
sem er framleitt
á sjálf bæran
hátt með hreinu
íslensku vatni
er unnið úr
örþörungum
sem kallast
Haema to-
coccus pluvi-
alis og er eitt
af öflugustu
andoxunar-
efnum sem
finnast í
náttúrunni.
Astaxanthin sem unnið er úr
þessum þörungum hefur mun
meiri andoxunargetu en það sem
búið er til með öðrum aðferðum.
Áhugi vísindamanna á áhrifum
Astaxanthin á heilsuna er alltaf
að aukast og hafa rannsóknir
meðal annars sýnt fram á að það
geti verndað húðina gegn sterkum
útfjólubláum geislum sólarinnar
og dregið úr ótímabærri öldrun.
Talið er að öflug andoxunarefni
geti meðal annars verndað og
stuðlað að heilbrigði augna,
heila, hjarta og vöðva. Íþrótta-
fólk er farið að nota Astaxanthin
í auknum mæli til að flýta fyrir
endurheimt og betri árangri.“
Femarelle
„Breyt-
ingaskeið
kvenna er
eðlilegur
gangur
náttúr-
unnar sem
allar konur
ganga í
gegnum á
ákveðnum
aldri.
Algengast
er að þetta
tímabil sé á
aldursbilinu
45 til 55
ára, en það getur byrjað fyrr eða
seinna. Mjög einstaklingsbundið
er hversu mikil áhrif breytinga-
skeiðið hefur á líðan kvenna, en
flestar finna fyrir aukinni þreytu,
svefntruflunum, depurð og kvíða.
Í mínu starfi hef ég orðið vitni
að ótrúlega skjótum árangri hjá
mörgum konum á Femarelle, en
Femarelle er náttúruleg lausn fyrir
konur sem finna fyrir einkennum
vegna hormónabreytinga. Kven-
sjúkdómalæknar mæla í auknum
mæli með Femarelle sem fyrstu
meðferð gegn einkennum breyt-
ingaskeiðsins og að auki hafa
klínískar rann sóknir sýnt fram
á að beinþéttni eykst með hjálp
efnasambandsins DT56a sem er í
Femarelle.“
Beetroot
„Rauðrófan er
afar vinsæl
ofurfæða
og ekki að
ástæðulausu
þar sem hún
er stútfull af
vítamínum,
trefjum og
andoxunar-
efnum.
Rauðrófur
innihalda
mikið magn
af nítrötum sem hafa æðaútvíkk-
andi og blóðflæðisaukandi áhrif.
Aukið blóðflæði bætir súrefnis-
upptöku, hefur góð áhrif á hjarta-
og æðakerfi líkamans og getur
aukið orku og úthald. Beetroot frá
Natures aid er hluti af minni dag-
legu rútínu, en þetta rauðrófuduft
er unnið er úr lífrænum rauðrófum
og kemur í hylkjum sem hægt er
að taka inn eða opna og bæta út í
drykki.“
Digest Spectrum
„Af eigin
reynslu og í
starfi mínu
sem næring-
arþerapisti
hef ég upp-
lifað hvernig
ensímin hafa
algjörlega
gert krafta-
verk fyrir þá
sem þurfa á
að halda. Góð
melting er
lykillinn að
góðri heilsu
og öflug ensím
geta hjálpað til við niðurbrot
fæðunnar, auðvelda meltingu og
upptöku á næringarefnum. Digest
Spectrum hentar fólki sem upplifir
óþægindi tengd meltingunni eða
er með fæðuóþol. Ég er einstaklega
hrifin af meltingarensímunum frá
Enzymedica, en þau hafa slegið
rækilega í gegn á Íslandi og hafa
umbylt lífi fjölda fólks.“
Magnesíum Muscle
„Magnesíum er eitt af mikil-
vægustu steinefnum líkamans og
er nauðsynlegt fyrir meðal annars
eðlilega starfsemi hjarta, vöðva og
taugakerfis. Margir vita ekki að
við getum upptekið magnesíum
í gegnum húðina, en það er mjög
góð leið til að fylla á magnesíum-
forðann, til dæmis eftir æfingar.
Magnesium Muscle spreyið frá
Better You inniheldur magnesíum-
klóríð, sítrónuolíu, græðandi
arniku og papriku, til að örva
blóðflæðið og flýta fyrir endur-
heimt vöðva eftir mikil átök. Full-
komið að úða á þreytta vöðva eftir
hlaup, jóga eða önnur átök til að
draga úr stífleika, bólgum og harð-
sperrum. Tilvalið fyrir íþróttafólk
sem stundar langar og strangar
æfingar. Þar sem magnesíum er
einnig vöðvaslakandi er það mjög
gott fyrir svefninn.“
Nýtum kraft náttúrunnar
til að efla heilsu og varnir
Kristín Steindórsdóttir næringarþerapisti hefur tekið saman lista yfir nokkur bætiefni sem hún
mælir með og telur gagnleg heilsunni, hvort sem um er að ræða líkamlega eða andlega heilsu.
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 L AU G A R DAG U R 1 7 . O K TÓ B E R 2 0 2 0