Fréttablaðið - 17.10.2020, Blaðsíða 18
Eva Laufey segir einfald-leikann lykilatriði þegar kemur að bakstri með börnum, en hvetur fólk til að leyfa börnunum að njóta sín og fara sínar
eigin leiðir.
„Við bökum almennt mjög
mikið saman en í kórónafaraldr-
inum höfum við gefið í, erum
meira heima og okkur finnst mjög
gott að fá okkur kökur. Ég tók eftir
því að fólk var að sækja mun meira
í bakstursuppskriftir á vefsíðunni
minni og mér datt í hug að baka
með fylgjendum mínum í beinni á
Instagram í fyrstu bylgjunni og það
tókst ótrúlega vel,“ segir Eva Laufey,
en dætur hennar Ingibjörg Rósa og
Kristín Rannveig eru báðar liðtækar
í eldhúsinu þrátt fyrir ungan aldur.
Eva Laufey gaf fyrir fram upp
hráefnin sem þær mæðgur ætluðu
að nota í baksturinn svo aðrir þátt-
takendur gætu undirbúið sig, en
hvað ætti að baka kom bara í ljós
þegar hafist var handa.
„Móttökurnar voru frábærar
enda er fátt skemmtilegra en að
baka með börnum.“
Eva Laufey hafði bakað í beinni í
fyrstu bylgju faraldursins og fannst
tilvalið að endurtaka leikinn nú í
þeirri þriðju.
„Nú þegar við erum aftur komin
á þann stað að vera meira heima.“
Um síðustu helgi bökuðu þær
mæðgur pönnukökur í beinni og
hafa nú um 15 þúsund manns séð
baksturs-upptökuna og voru fylgj-
endur duglegir að senda inn eigin
myndir.
„Það var þvílíkt gaman að fá
myndir af snillingum sem bökuðu
með okkur. Bakstur er svo mikil
snilld, fyrir bæði börn og fullorðna.
Þetta er eitthvað sem ég kem klár-
lega til með að gera aftur og aftur,
ég og stelpurnar mínar höfum mjög
gaman af þessu.“
Fékk stundum fyrir hjartað
Eins og fyrr segir er aðstoðarkona
Evu, Ingibjörg Rósa, í yngri kant-
inum og ýmislegt getur komið upp
á í beinni útsendingu.
„Þetta er auðvitað í beinni og það
getur verið svolítið fjör, Ingibjörg
Rósa mín byrjaði til dæmis að þylja
upp ættartréð og ég fékk stundum
smávegis fyrir hjartað því ég veit
aldrei hvað þeim dettur í hug að
segja og ég get þá ekkert gert fyrst
við erum í beinni – en það gerir
þetta bara skemmtilegra,“ segir Eva
og hlær.
Þar sem fram undan er enn ein
helgin sem fjölskyldan ver saman
heima í samkomubanni er um að
gera að finna eitthvað skemmtilegt
að gera, eins og til dæmis að baka!
„Þessar uppskriftir eru tilvaldar
til þess að baka með börnunum
ykkar, þær eru fremur einfaldar
og það er lykillinn að bakstri með
börnum að mínu mati, að hafa
baksturinn ekki of f lókinn og ekki
of mörg hráefni.
Það getur verið gott að vera búin
að mæla hráefnin áður og setja í
skálar, þá eru færri skref í bakstrin-
um, en þolinmæðin ræður stundum
ekki við of mörg stig í bakstri, eins
og gengur og gerist, bæði hjá börn-
um og fullorðnum.
Svo er aðalmálið auðvitað að
hafa gaman af þessu og njóta þess
á meðan. Leyfa börnunum að njóta
sín og fara sínar leiðir, þó það kosti
aðeins meiri frágang þá er það vel
þess virði. Hér eru uppskriftir sem
eru einfaldar og góðar og börn eru
algjörir snillingar í að leika þær
eftir.“
Bakað með
börnunum
Eva Laufey Kjaran hefur í samkomubanni
tekið upp á því að stytta ungum fylgjend-
um sínum stundirnar ásamt sex ára dóttur
sinni, Ingibjörgu Rósu. Þær hafa bakað með
fylgjendum Evu í beinni á Instagram og
hafa mæðgurnar slegið rækilega í gegn.
Eva Laufey viðurkennir að hafa stundum fengið fyrir hjartað í beinni ásamt dóttur sinni Ingibjörgu Rósu, enda viti
hún aldrei hvað henni detti í hug að segja og til að mynda hafi hún farið að þylja upp ættartré sitt. MYND/AÐSEND
Björk
Eiðsdóttir
bjork@frettabladid.is
Döðlukaka með karamellusósu
5 msk. sykur
120 g smjör, við stofuhita
2 egg
100 g hveiti
100 g ristaðar kasjúhnetur
210 g döðlur
1 tsk. matarsódi
½ tsk. kanill
½ salt
1 tsk. vanilludropar eða -sykur
1½ tsk. lyftiduft
Hitið ofninn í 180°C og smyrjið
hringlaga kökuform.
Setjið döðlurnar í pott og látið
vatn fljóta yfir, þegar vatnið nær
suðu takið pottinn af hitanum
og látið hann standa í 3 – 4
mínútur.
Blandið matarsóda við
döðlumaukið og blandið því vel
saman.
Leyfið blöndunni að standa í
svolitla stund eða þar til blandan
kólnar, hún má ekki fara heit
saman við smjörið (trúið mér
– ég hef brennt mig á þeim mis-
tökum nokkrum sinnum).
Þeytið smjör og sykur saman
þar til blandan verður létt og
ljós, bætið einu og einu eggi
saman við og þeytið í mínútu á
milli.
Setjið þurrefnin saman við
ásamt vanillu.
Þeytið í smástund og bætið
síðan döðlumaukinu saman
við í þremur skömmtum ásamt
ristuðum kasjúhnetum.
Hellið deiginu í smurt form
og bakið við 180°C í 35 – 40
mínútur.
Hitið öll sósuhráefnin í potti
þar til karamellan fer að sjóða,
hrærið reglulega í pottinum, eða
þar til þið hafið náð ágætri þykkt
á karamellunni.
Heimsins besta
karamellusósa
120 g smjör
1½ dl rjómi
120 g púðursykur
Berið kökuna fram með rjóma
eða ís... eða hvorutveggja!
Amerískar
pönnukökur
2 egg
5 dl hveiti
3 tsk. lyftiduft
Salt á hnífsoddi
3 msk. brætt smjör
3 dl hrein AB-mjólk
3 – 4 dl mjólk
1 tsk. vanillusykur eða -dropar
1 msk. sykur
Bræðið smjör á pönnu, setjið öll
hráefnin í skál og hellið smjörinu
saman við.
Hrærið vel í deiginu og ef ykkur
finnst það of þykkt þá bætið þið
meiri mjólk saman við.
Þegar deigið er orðið slétt og silki-
mjúkt er það tilbúið.
Á þessu stigi má gjarnan bæta út í
deigið öllu því sem hugurinn girnist
til dæmis bláberjum, súkkulaði-
bitum eða öðru góðgæti.
Hitið smjör á pönnu og steikið
pönnukökurnar á báðum hliðum þar
til þær verða gullinbrúnar.
Dúnmjúkar
súkkulaðismákökur
140 g púðursykur
200 g sykur
200 g smjör, við stofuhita
2 egg
2 tsk. vanilludropar eða sykur
375 g hveiti
1/2 tsk. lyftiduft
1 tsk. matarsódi
Salt á hnífsoddi
150 g rjómasúkkulaðidropar
150 g suðusúkkulaðidropar
Þeytið saman sykur og smjör
þar til blandan er létt í sér.
Bætið eggjum saman við, einu
í einu og þeytið vel á milli.
Blandið þurrefnum og van-
illu út í og hrærið áfram, gott
að skafa meðfram hliðum að
minnsta kosti einu sinni.
Í lokin blandið þið súkku-
laðinu saman við.
Gott að kæla deigið í klst. (það
má samt sem áður baka strax en
lögunin á kökunum verður betri
ef deigið fær aðeins að kólna)
Forhitið ofninn í 180°C.
Mótið kúlur með höndunum
og setjið á pappírsklædda ofn-
plötu.
Bakið við 180°C í 12 mínútur.
Kökurnar eru fremur mjúkar
eftir þann tíma og því gott að
leyfa þeim að kólna á plötunni í
rólegheitum.
Berið strax fram og njótið!
1 7 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R18 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
HELGIN