Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.10.2020, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 17.10.2020, Qupperneq 6
ATVINNULÍF „Við sem erum í forystu hér innan félagsins erum dálítið undrandi að við skyldum bara frétta þetta í fjölmiðlum,“ segir Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður Verka- lýðsfélags Vestfirðinga, um 3,3 milljarða króna fjárfestingu lífeyris- sjóðsins Gildis í Arnarlaxi. Fram hefur komið að Gildi og sjóður á vegum Stefnis, sjóðastýr- ingarfyrirtækis Arion banka, ásamt norskum fjárfesti, hafi verið horn- steinafjárfestar í hlutafjárútboði Arnarlax sem lauk á miðvikudag. Í tilkynningu frá kauphöllinni í Osló kom fram að umframeftirspurn hefði leitt til þess að útboðið var stækkað úr jafnvirði 6,5 milljarða íslenskra króna í 7,6 milljarða. Verkalýðsfélag Vestfirðinga á aðild að Gildi. Hátt á áttunda tug félagsmanna verkalýðsfélags- ins starfar hjá Arnarlaxi, að sögn Finnboga Sveinbjörnssonar. Alls eru starfsmenn Arnarlax um eitt hundrað. „Stóra fréttin er að fagfjárfestir skuli viðurkenna þessa starfsgrein og fara að fjárfesta í henni, meira að segja í landsfjórðungi þar sem líf- eyrissjóðir hafa almennt ekki verið mikið að fjárfesta í atvinnulífinu. Auðvitað finnst okkur það mjög jákvætt en okkur fannst skrítið, þótt það sé ekki nein skylda, að kanna ekki hjá stéttarfélaginu hvernig samskiptin við fyrirtækið séu, þegar um er að ræða atvinnugrein sem er að stækka svona mikið,“ segir Finn- bogi, sem bendir þó á að auðvitað eigi stjórnarmenn í lífeyrissjóðum að vera óháðir. „En yfirleitt þegar lífeyrissjóðir eru að fara að fjárfesta í fyrir- tæki sem er tiltölulega ungt en þó búið að festa sig í sessi og komið á markað, þá hefði maður haldið að þeir myndu kanna einmitt þennan samfélagslega þátt. Mér hefði ekki þótt óeðlilegt að lífeyrissjóðurinn hefði verið í sambandi til að kanna hvort þeir séu ekki með allt sitt á þurru gagnvart verkafólkinu sem er að vinna hjá þeim,“ segir Finnbogi. Þrátt fyrir þetta tekur Finnbogi fram að ef Gildi hefði spurt Verka- lýðsfélag Vestfirðinga um sam- skiptin við Arnarlax, hefði svarið verið að þau væru góð. „Við gætum í raun ekki sett út á neitt,“ undir- strikar formaðurinn. Nokkur núningur mun þó áður hafa verið til staðar milli Arnar- lax annars vegar og starfsmanna og verkalýðsfélagsins hins vegar. Finnbogi segir að greitt hafi verið úr slíku. „Það er ljóst að fyrirtækið metur það þannig að það sé betra að vera í góðum samskiptum við félagið og trúnaðarmennina. Það var farið í breytingar sem starfsfólkið er mjög ánægt með og þetta er allt önnur staða,“ segir hann. Aðspurður kveðst Finnbogi ekki endilega tengja breytinguna gagn- vart starfsfólkinu áðurnefndu hluta- fjárútboði. „Ég held að breytingin sem þeir gerðu hafi aðallega verið til að koma hlutum á hreint innan- húss, að það væri ekki þessi stöðuga barátta og núningur á milli stéttar- félags starfsmanna og fyrirtækisins,“ segir formaður Verkalýðsfélags Vest- firðinga. gar@frettabladid.is Það er ljóst að fyrirtækið metur það þannig að það sé betra að vera í góðum samskipt- um við félagið og trúnaðar- mennina. Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður Verkalýðsfélags Vestfirðinga NAGORNÓ-KARABAK Minnst 600 eru látnir vegna átaka Armena og Asera í Nagornó-Karabak. Þetta kemur fram í tölum héraðsstjórnarinnar og Asera, en Aserar gefa ekki upp hversu margir hermenn hafa fallið. Átökin eru orðin þau mannskæð- ustu frá því í stríðinu á tíunda ára- tugnum er 30 þúsund manns létust. Nikol Pashinyan, forsætisráð- herra Armeníu, sagði á miðvikudag vopnahlé ekki vera í augsýn. Mike Pompeo, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, sagði í vikunni að Banda- ríkin væru hlutlaus, en að vonandi gætu Armenar varist þar til komið væri á vopnahlé. Hann gagnrýndi Tyrki fyrir að styðja Asera. – ab Rúmlega 600 létust í árás Þrír létust í sprengjuárás á kirkju- garð í Aserbaísjan. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA Í leiðara Fréttablaðsins í gær sagði að borgarfulltrúi Samfylkingarinnar hefði sagt í fjölmiðlum að Reykjavíkurborg bæði ríkið um 50 milljarða fjárframlag til viðbótar við jafnhátt framlag sem Samband sveitarfélaga óskaði eftir. Hið rétta er að borgin óskar eftir 50 milljarða fjárstuðningi frá Seðlabankanum. ATHS. RITSTJÓRA COVID-19 Valtýr Stefánsson Thors, barnasmitsjúkdómalæknir, skrifar í minnisblaði til skóla- og frístunda- ráðs að flest barna sem hafa greinst í Reykjavík hafi verið fremur ein- kennalítil. Flest börnin fá væg einkenni; hálssærindi, hósta og hita. Í f lest- um tilfellum eru þetta skammvinn veikindi sem líða hjá á tveimur til þremur, kannski fjórum dögum. Valtýr bendir á að það sé býsna stór hópur þessara barna sem er algerlega einkennalaus og fái aldrei nein einkenni. Skóla- og frí- stundaráð hittist í vikunni til að fara yfir stöðu mála á vettvangi skóla- og frístundastarfs í Reykja- vík á tímum COVID-19, þar sem minnisblaðið var lagt fram. Áheyrnarfulltrúar skólastjóra og kennara í grunnskólum lögðu fram bókun á fundinum, um að starfsmenn hefðu upplifað kvíða og vanlíðan í þessu ástandi. „Mikilvægt er að hugað verði að starfsfólki við þessar aðstæður á raunsæjan hátt, það verður að finna fyrir jákvæðum stuðningi í önnum dagsins auk þess að fá upplýsingar um stöðu mála inni á sínum vinnustöðum,” segir í bók- uninni. Verkefni grunnskólanna í þessum aðstæðum sé stórt og enn allsendis óvíst um framtíðina. „Mikilvægi hreinskiptinnar, jákvæðrar og öflugrar mannauðs- stjórnar er algert um leið og allar aðgerðir verða að miðast við að hraða því ferli að samfélagssmit náist niður og að neyðarstigi sé aflétt.“ – bb Stór hópur smitaðra barna einkennalaus og flest einkennalítil Aukning er á smiti hjá börnum sem eru fædd 2008. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Verkalýðsfélagið ekki spurt áður en fjárfest var í Arnarlaxi Formaður Verkalýðsfélags Vestfirðinga, undrast að lífeyrissjóðurinn Gildi, sem félagið á aðild að, hafi ekki spurst fyrir um samskipti við Arnarlax áður en sjóðurinn fjárfesti 3,3 milljarða í fyrirtækinu. Sam- skipti starfsmanna og félagsins við Arnarlax séu þó reyndar góð, eftir að hafa verið lagfærð nýlega. HEILBRIGÐISMÁL Ekki hefur dregið úr komum í krabbameinsskimun hjá Krabbameinsfélaginu vegna kórónaveirufaraldursins, ólíkt því sem búist var við. „Í vor fundum við fyrir minni mætingu áður en ákveðið var að skimun yrði hætt tímabundið vegna COVID-19,“ segir Sigríður Sólan Guðlaugs- dóttir, kynningarstjóri Krabba- meinsfélagsins. Komum kvenna í skimun fjölg- aði mjög á milli áranna 2018 og 2019. Komum í brjóstaskimun hjá konum á aldrinum 40 -69 fjölgaði um 24 prósent, úr 16.540 í 20.580. Komum í leghálsskimun hjá konum á aldrinum 23-65 ára fjölgaði um 15 prósent milli ára, úr rúmum nítján þúsund komum í rúmar 22 þúsund. Þá segist Sigríður telja líklegt að ef ekki væri fyrir áhrif faraldursins á starfsemi Krabbameinsfélagsins mætti sjá svipaða aukningu og síð- ustu tvö ár fyrir árið 2020. „Ef frá er talið tímabundið hlé á skimunum vegna COVID-farald- ursins síðastliðið vor sést að fjöldi koma í skimun er áþekkur fjöld- anum árið 2019 svo árangurinn er varanlegur. Mjög aukin aðsókn var í skimanir þegar Leitarstöð var opnuð aftur eftir lokun vegna COVID, svo það náðist að vinna upp hluta þeirra koma sem höfðu fallið niður,“ segir Sigríður. Áhrif faraldursins segir hún helst vera vegna sóttvarna innan Leitar- stöðvarinnar þar sem passa þurfi bæði starfsfólk og viðskiptavini, „og endurskipuleggja starfsemina ef einhver þarf að fara í sóttkví“. Krabbameinsfélagið hefur verið til umræðu undanfarið vegna mis- taka við greiningu sýna úr legháls- skimunum. Sigríður segir að þrátt fyrir fréttir um atvikið hafi ekki dregið úr komu kvenna í skimun hjá félaginu. Nokkurt álag hafi þó verið vegna fyrirspurna í síma og tölvupósti. Hú n seg ir au k na þát t tök u kvenna í skimun afar ánægjulega og leggur áherslu á mikilvægi þess að konur nýti sér boð í skimun og dragi það ekki að leita til lækna þrátt fyrir faraldurinn, hafi þær einkenni sem geti bent til krabba- meins. „Reynslan sýnir að umræða um skimanir eykur komur í skimun enda hafa konur lýst því í þjónustu- könnun Leitarstöðvar að helsta ástæðan fyrir því að þær mæta ekki í skimun sé framtaksleysi, svo áminningar hafa áhrif.“ – bdj Ekki hefur dregið úr komum í krabbameinsskimun Aukning hefur orðið á komum í brjóstaskimum. MYND/GETTY Arnarlax sem stóraukið hefur umsvifin á undanförnum árum er með vinnslu á Bíldudal í Arnarfirði. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR SKIPULAGSMÁL „Bæjarráð Mosfells- bæjar mótmælir harðlega þeim yfir- gangi sem Reykjavíkurborg hefur sýnt Mosfellingum við f lutning á iðnaðarstarfsemi á Esjumela,“ segir í samþykkt frá bæjarráðsfundi í Mos- fellsbæ. Yfirgangurinn er meðal annars sagður felast í heimild til uppbygg- ingar tveggja malbikunarstöðva, án þess að tillit sé tekið til áhrifa á Mos- fellsbæ og hagsmuni Mosfellinga. Áformin og aðalskipulag á Esjumel- um séu á skjön við skipulagsreglu- gerð. Mosfellsbær munu leita allra leiða til að gæta hagsmuna sinna. „Sveitarfélagið hefur nú í annað skipti neyðst til þess að kæra skipu- lag á Esjumelum til Úrskurðarnefnd- ar umhverfis- og auðlindamála auk þess sem kvörtun hefur verið send til umboðsmanns Alþingis sem snýr að stjórnsýslu Reykjavíkurborgar á Esjumelum.“ – gar Saka borgina um yfirgang Ásgeir Sveinsson, formaður bæjar- ráðs Mosfells- bæjar. 1 7 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.