Fréttablaðið - 17.10.2020, Page 10

Fréttablaðið - 17.10.2020, Page 10
REYK JAVÍK Vigdís Hauksdóttir, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, hyggst senda fyrirspurn á borgar- lögmann til að kanna hvort yfir- stjórn borgarinnar haf i verið heimilt að skipta upp greiðslum borgarinnar til Vinnustofu Kjarvals milli sviða. Líkt og Fréttablaðið greindi frá í gær keyptu yfirstjórn og starfsmenn áfengi fyrir rúma hálfa milljón króna á Vinnustofu Kjarvals í gegn- um eins árs samning við borgina. „Tilraunin að semja við Kjarvals- stofu í stað þess að vera með starfs- daga og fundi víða, hefur gengið vel og hefur líklega leitt til sparnaðar fyrir borgina þótt endanlegt upp- gjör á því liggi ekki fyrir,“ segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri. „Varðandi áfengiskaup hjá starfs- fólki borgarinnar þá eru 500 þús- und hjá tíu skrifstofum og sviðum yfir nánast heilt ár til marks um ábyrgð og hófsemi. Það er eðlilegt í hvaða starfsemi sem er að halda starfsdaga og ef la liðsandann. Útgjöld og áfengiskaup þurfa að vera í hófi og það eru þau hjá borg- inni,“ segir Dagur. Björn Gíslason, fulltrúi Sjálf- stæðisf lokksins í innkaupa- og framkvæmdaráði, segir að tilviljun ein hafi ráðið því að kjörnir full- trúar hafi frétt af samningum. „Allir samningar borgarinnar sem eru yfir eina milljón króna fara fyrir innkauparáð, þessi samn- ingur er fyrir 1,6 milljónir króna, en þar sem upphæðinni var skipt milli sviðanna þá sjáum við aldrei greiðslurnar,“ segir Björn. „Við frétt- um þetta fyrir tilviljun og sendum inn fyrirspurn, þá var þetta búið að vera í gangi í marga mánuði.“ Vigdís Hauksdóttir segir borgina hafa skipt greiðslunum milli sviða til að þurfa ekki að segja frá þessu. Hyggst hún leita svara hjá borgar- lögmanni um hvort þetta sé heimilt. „Það er einn lögaðili sem gerir samninginn, það er borgin, síðan er þessu dreift milli sviða til að þetta lendi aldrei fyrir augum kjörinna fulltrúa. Ég tel víst að þetta sé brot á innkaupareglum. Þetta er óhuggu- legt, það gæti verið að það séu, eða hafi verið, f leiri svona samningar í gangi,“ segir Vigdís. Tveir sviðsstjórar borgarinnar eru ekki með aðgangskort að Vinnustofu Kjarvals. Regína Ást- valdsdóttir, sviðsstjóri velferðar- sviðs, taldi að ekki væri þörf á því. „Ég taldi ekki þörf á því, velferð- arsvið er til dæmis með fjölmargar félagsmiðstöðvar fyrir eldri borgara víða um borgina og við nýtum þær oft fyrir fundi,“ segir Regína. Ómar Einarsson, sviðsstjóri íþrótta- og tómstundasviðs, segir það sama eiga við um sig. „Ég taldi að ég, eða ÍTR, hefði ekki þörf fyrir svona þjónustu sem þarna er í boði,“ segir Ómar. arib@frettabladid.is Það er eðlilegt í hvaða starfsemi sem er að halda starfsdaga og efla liðsandann. Dagur B. Eggerts- son borgarstjóri Hlutverk sjóðsins er að stuðla að varðveislu og viðhaldi friðlýstra og friðaðra húsa og mannvirkja, sbr. reglur um úthlutun úr húsafriðunarsjóði nr. 577/2016. Veittir verða styrkir úr sjóðnum til: • viðhalds og endurbóta á friðlýstum og friðuðum húsum og mannvirkjum, og öðrum húsum og mannvirkjum, sem hafa menningarsögulegt, vísindalegt eða listrænt gildi. • byggingarsögulegra rannsókna, þar með talið skráningu húsa og mannvirkja, og miðlun upplýsinga um þær. • sveitarfélaga til að vinna tillögur að verndarsvæði í byggð, í samræmi við ákvæði laga nr. 87/2015 og reglugerðar nr. 575/2016 um verndarsvæði í byggð og til verkefna innan verndarsvæða í byggð. Umsóknir eru metnar m.a. með tilliti til varðveislugildis, t.d. vegna byggingarlistar, menningarsögu, umhverfis, upprunaleika og tæknilegs ástands ásamt gildis fyrir varðveislu byggingararfleifðarinnar. Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar, m.a. úthlutunarreglur, er að finna á vef Minjastofnunar Íslands, www.minjastofnun.is. Umsóknarfrestur er til og með 1. desember 2020. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur koma ekki til álita við úthlutun styrkja. Minjastofnun Íslands hefur eftirlit með að styrkt verkefni séu viðunandi af hendi leyst og í samræmi við innsend umsóknargögn. Bent er á leiðbeiningarit um verndarsvæði í byggð og um viðhald og endurbætur friðaðra og varðveisluverðra húsa sem finna má á vef Minjastofnunar Íslands (undir Gagnasafn). Í Húsverndarstofu í Árbæjarsafni er veitt endurgjaldslaus ráðgjöf um gerð styrkumsókna og viðhald og viðgerðir á gömlum húsum (sjá nánar á heimasíðu safnsins www.borgarsogusafn.is). Suðurgötu 39,101 Reykjavík Sími: 570 1300 www.minjastofnun.is husafridunarsjodur@minjastofnun.is Minjastofnun Íslands auglýsir eftir umsóknum um styrki úr húsafriðunarsjóði fyrir árið 2021 Alþjóðlegur baráttudagur gegn fátækt EAPN á Íslandi minnir á að í dag, 17. október, er alþjóðlegur baráttudagur gegn fátækt. Af því tilefni bjóðum við upp á samtal um fátækt á Íslandi á Samstöðinni, róttækri netsjón- varpsstöð en við verðum með skipulagða dagskrá frá kl 12 til 17 með fróðlegum viðtölum við ýmsa aðila sem ýmist hafa búið við fátækt eða lagt baráttunni lið. samstodin.is facebook.com/samstodin Hálf milljón í áfengi til marks um hófsemi Borgarstjóri segir tilraun með aðstöðu í Kjarvalsstofu líkega hafa sparað fé. Borgarfulltrúi Miðflokksins spyr hvort heimilt sé að deila greiðslum milli sviða. Tilviljun að „uppvíst“ varð um samninginn að sögn fulltrúa Sjálfstæðisflokks. 1 7 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R10

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.