Fréttablaðið - 17.10.2020, Side 32
Ég elska þegar fólk sýnir af sér náunga kærleik og finnst dásamleg hugmynd að konur
setji sitt uppáhaldssælgæti í kassa
til að senda öðrum konum um
heimsbyggðina alla. Það sýnir hvað
fólk er gott og hvernig hjartalag
þess er, að gleðja ókunnuga, af engri
sérstakri ástæðu,“ segir Íris Davíðs-
dóttir, rekstrarstjóri hjá Raunvís-
indastofnun Háskóla Íslands.
Íris komst á snoðir um skemmti-
lega Facebook-grúppu þar sem
meðlimir skiptast á að senda
snakk og sætindi sín á milli,
hvaðanæva úr heiminum.
„Grúppan heitir „Sisterhood of
the International Snack Swap“ og
var stofnuð til að tengja saman
konur úr öllum heimshornum til
að býtta á sælgæti frá löndunum
sem þær búa í,“ upplýsir Íris. „Það
er leikur einn að vera með í grúpp-
unni; maður tilgreinir einfaldlega
hvað mann langar í, hvar maður er
staddur í heiminum og fyrir hvaða
upphæð maður vill kaupa nammi.
Þá bítur einhver á agnið, eða
maður bítur á agnið hjá öðrum, og
sælgætispakkar eru sendir á milli,
en allt er þetta byggt á trausti enda
er heiðarleiki hafður í hávegum í
þessum hópi,“ upplýsir Íris.
Eins og litlu jólin
Algeng viðmiðunarupphæð fyrir
nammi kaupin eru 30 Bandaríkja-
dalir, sem er um 5.000 krónur
íslenskar, en Íris segir allt opið í
þeim efnum.
„Ég komst fljótt í samband við
tvær konur í Bandaríkjunum og
Kanada og dreif mig í Bónus þar
sem ég keypti íslenskt sælgæti fyrir
eitthvað meira en 5.000. Ég ákvað
að velja eingöngu íslenskt gotterí:
súkkulaði, lakkrís, brjóstsykur,
karamellur og eitt og annað pipar-
húðað,“ segir Íris sem pakkaði
tveimur kílóum af íslensku nammi
ofan í kassa og sendi vestur um
haf, til Kanada og Ameríku.
„Ég verð sennilega ekki jafn
stórtæk næst og reyni að halda mig
undir tveimur kílóum, því send-
ingarkostnaðurinn slagaði upp í
sælgætiskostnaðinn. Pakkarnir
fóru svo af stað í júlí og bárust
f ljótt til Kananda en voru lengur á
leiðinni til Bandaríkjanna, senni-
lega vegna lítils f lugframboðs þar í
landi nú,“ segir Íris.
Allt komst þó til skila á end-
anum, líka til Írisar.
„Það var ofurspennandi að fá
pakkana að utan og nánast eins og
litlu jólin, ekki síst fyrir strákana
mína tvo,“ segir Íris sem fann bæði
freistandi og framandi góðgæti í
kössunum að vestan.
„Það var greinilegt að stöllurnar
höfðu valið sitthvað sérstakt frá
sínu heimasvæði. Kanadíska
nammið var margt unnið úr
hlynsírópi og frá Ameríku kom til
dæmis snakkpoki með tómatsósu-
bragði. Sú sending var verulega
rífleg og tók okkur margar vikur
að klára allt innihaldið,“ segir Íris.
Jólagóðgætið freistar nú
Íris kveðst vægur sælgætisgrís en
þó höll undir gott súkkulaði.
„Það var gaman að smakka
það sem kom upp úr sælgætis-
kössunum þótt ekki væri það allt
gott. Úr samskiptunum varð líka
til ánægjulegur kunningsskapur
við þessar indælu konur, því við
gerðumst vinkonur á Facebook,
eigum ýmislegt sameiginlegt og
önnur á stráka á sama aldri og ég.
Sú hefur lengi átt sér draum um
að koma til Íslands og ég sagði
henni að hafa samband ef hún
birtist þegar kórónaveiran víkur.
Ég sagði þeim líka að þær mættu
spyrja mig út í allt sem þær skildu
ekki á íslensku umbúðunum og þá
sagðist önnur vera mikil tungu-
málamanneskja og þegar búin
að kynna sér íslensku nöfnin og
hráefnið á Google Translate.“
Íris notar sælgætissendingarnar
líka til að lífga upp á landafræði-
kunnáttu sona sinna.
„Við fórum til dæmis á Google
Earth til að skoða húsin þeirra í
Ameríku og Kanada og átta okkur
á hversu langa vegalengd sælgætis-
kassarnir fóru til að komast heim
til okkar. Heimurinn er orðinn
svo lítill og aðgengilegur, og með
heimilisfang í höndunum er hægt
að sjá húsin í nærmynd og næstum
veifa,“ segir Íris og hlær.
Hún er í þann mund að setja inn
nýja færslu og óska eftir sælgætis-
býttum fyrir jól.
„Það væri skemmtilegt að fá
jólagóðgæti frá Norðurlöndunum
eða Evrópu þar sem mestar líkur
eru á að það næði til Íslands fyrir
hátíðina. Kannski karamellu-
húðuð jólaepli eða sænskt pipar-
kökunammi,“ segir Íris og lætur sig
dreyma.
„Það er auðvitað engu líkt að
eiga fullan kassa af dýrindis sæl-
gæti frá öðrum heimshornum til
að njóta á nammidegi og prófa
eitthvað nýtt. Mér fannst spenn-
andi að vita hvað vinkonum
mínum vestra þótti um íslenska
nammið. Sú ameríska fór með
íslenska gottið í vinnuna og það
vakti mikla lukku, sérstaklega
lakkrísinn, en Kananum þótti
piparnammið heldur of sterkt.
Sú bandaríska skrifaði til mín:
„I really liked your rice balls,“ og
ég skildi hvorki upp né niður, en
þá var um að ræða uppáhalds
nammið mitt sem eru Hrískúlur
frá Freyju, þessar í grænu og gylltu
pokunum.“
Þetta sýnir hvað
fólk er gott, að
gleðja ókunnuga, af
engri sérstakri ástæðu.
Það var svo ofurspenn-
andi að fá nammipakk-
ana að utan og nánast
eins og litlu jólin.
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@frettabladid.is
Heimsdömur býtta á sælgæti
Það er viðeigandi á nammidegi að segja frá hjartnæmum gotteríbýttum heimshorna á milli og
Íris Davíðsdóttir staðfestir að það sé ævintýri að eiga framandi og freistandi sælgæti í kassavís.
Freistandi gott og snakk frá Kanada.
Sendingin frá
Bandaríkjunum
var svo ríflega
útilátin að
það tók Írisi
og fjölskyldu
langan tíma að
gæða sér á öllu
gotteríinu.
Í Kína eru sæbjúgu þekkt sem heilsubótarfæði og notuð til bóta við hinum ýmsu meinum.
Kínverjar kalla sæbjúgu gjarnan
„ginseng hafsins“ og til eru sagnir
um notkun sæbjúgna þar fyrir
meira en þúsund árum. Arctic
Star sæbjúgnahylkin innihalda
yfir fimmtíu tegundir af nær-
ingarefnum sem geta haft jákvæð
áhrif á lífeðlisfræðilega starfsemi
mannslíkamans, til dæmis er
mikið kollagen í þeim, en það er
eitt helsta uppbyggingarprótein
líkamans.
Finnur mikinn mun á sér
Á síðustu árum hefur Arctic
Star sérhæft sig í þróun á fæðu-
bótarefnum, svo sem framleiðslu,
markaðssetningu og sölu á hágæða
sæbjúgnahylkjum. Hylkin eru
framleidd úr íslenskum, hágæða,
villtum sæbjúgum sem eru veidd í
Atlantshafinu.
Sæbjúgnahylkin eru bylting
Magnús Friðbergsson mælir með sæbjúgnahylkjum frá Arctic Star, en hann finnur mun á sér
eftir að hann fór að nota þau. Sæbjúgu innihalda fimmtíu tegundir af næringarefnum.
Magnús hefur
góða reynslu
af vörunum frá
Arctic Star.
Magnús Friðbergsson, verkefna-
stjóri hjá Landspítala, hefur tekið
sæbjúgnahylkin frá Arctic Star
undanfarin tvö ár. „Vinur minn
kynnti mig fyrir sæbjúgnahylkj-
unum og þar sem ég hafði lengi
verið slæmur í hnjám, með liðverki
og lítið getað beitt mér, ákvað ég
að prófa. Tveimur
til þremur vikum
seinna fann ég
mikinn mun.
Nú hef ég tekið
sæbjúgnahylkin
í tvö ár og fer
allra minna ferða
án óþæginda.
Það er algjör
bylting frá því
sem áður var.
Nú get ég gert
hluti eins og
að fara í langar
gönguferðir, sem
ég gat varla gert
áður. Að minnsta kosti gerði ég
það ekki með bros á vör og það
tók mig langan tíma að jafna mig
eftir álag,“ útskýrir hann. Magnús,
sem er 69 ára gamall í dag, hafði
fengið að heyra frá lækni að mikið
slit væri í hnjám hans og ekki væri
von á að það gengi til baka. „Hann
sagði mér að kíkja á fæðingar-
daginn minn og að ég gæti ekki
búist við að fara aftur í tíma. Mér
fannst vont að heyra þetta og var
því tilbúinn að prófa ýmislegt
sem gæti mögulega lagað þetta.
Sæbjúgnahylkin frá Arctic Star
virka mjög vel á mig og ég mæli
með að fólk prófi þau.“
Framleiðandi sæbjúgna er Arctic
Star ehf. Allar nánari upplýsingar
fást á arcticstar.is. Arctic Star sæ-
bjúgnahylki fást í flestum apó-
tekum og heilsubúðum og í
Hagkaupum.
Íslenskt sælgæti þykir lostæti.
Íris Davíðs-
dóttir heillaðist
af fagurri
hugmyndinni
sem býr að baki
býtti grúppunni,
þar sem góður
hugur, gleði og
náungakær-
leikur stýrir för.
MYND/KRISTINN
INGVARSSON
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 7 . O K TÓ B E R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R