Fréttablaðið - 17.10.2020, Side 35

Fréttablaðið - 17.10.2020, Side 35
Þjóðkirkjan – Biskupsstofa leitar að jákvæðum, framsýnum, og skipulögðum leiðtoga til þjónustu við Hafnarfjarðarprestakall. Viðkomandi þarf að hafa brennandi áhuga á málefnum þjóðkirkjunnar og vera tilbúinn til að leiða gróskumikið safnaðarstarf í Hafnarfjarðarprestakalli. Framúrskarandi samskiptahæfileikar og skilningur á mikilvægi góðrar þjónustu eru lykilatriði. Um er að ræða áhugavert og krefjandi starf í skemmtilegu umhverfi. Í Hafnarfjarðarprestakalli starfa alls 7 einstaklingar, sóknarprestur auk 6 annarra. • Mótar stefnu og framtíðarsýn kirkjunnar í samvinnu við sóknarnefnd og ber ábyrgð á að framfylgja henni. • Frumkvæði að fjölbreyttu helgihaldi og annarri þjónustu kirkjunnar. • Stuðlar að traustu samstarfi, samskiptum og upplýsingagjöf við sóknarnefnd. • Byggir upp sterka liðsheild á meðal starfsfólks prestakallsins. • Leitar tækifæra til að auka fjölbreytni í starfi sóknarinnar og skapa tengingar við nærsamfélagið. • Þátttaka í að efla starf innan sóknarinnar svo sem barna- og unglingastarf, sálgæslu og aðra þjónustu fyrir nærsamfélagið. • Embættispróf frá guðfræðideild Háskóla Íslands eða frá viðurkenndri guðfræðideild eða guðfræðiskóla. Biskup Íslands leitar umsagnar guðfræðideildar Háskóla Íslands um hið síðarnefnda. • Önnur almenn skilyrði til ráðningar í prestsstarf skv. 38. gr. laga nr. 78/1997, sbr. lög nr. 153/2019. • Reynsla af því að leiða hóp og skapa sterka liðsheild. • Vilji til að þjóna og mætir fólki af skilningi og virðingu. • Hæfileiki til að tjá sig í ræðu og riti á áhugaverðan og sannfærandi hátt. • Áhugi á starfi og uppbyggingu Þjóðkirkjunnar. • Framúrskarandi samskiptahæfileikar. • Vilji til að mynda tengsl og vera virkur í hafnfirska samfélaginu. • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi. • Innsýn og áhugi á ólíkum samskiptamiðlum. SÓKNARPRESTUR Í HAFNARFIRÐI Umsóknarfrestur er til og með mánudagsins 9. nóvember. Nánari upplýsingar gefur sr. Þórhildur Ólafs í síma 694 8655, Magnús Gunnarsson, formaður sóknarnefndar, s 665 8910 og Biskupsstofa, s. 528 4000 eða mannaudur@biskup.is. Sækja ber rafrænt um starfið á vef kirkjunnar, www.kirkjan.is, og leggja fram tilskilin fylgigögn á rafrænu formi ásamt öðrum þeim gögnum er umsækjandi kann að vilja leggja fram. Starfssvið: Menntunar- og hæfniskröfur: Í Hafnarfjarðarprestakalli, sem tilheyrir Kjalarnesprófastsdæmi, er fjölmenn sókn með um átta þúsund sóknarbörn. Í prestakallinu er ein kirkja, Hafnarfjarðarkirkja sem er eitt af megin kennileitum Hafnarfjarðar og á sér langa og viðburðarríka sögu innan samfélagsins. Kirkjan sjálf er afar vel staðsett í hjarta Hafnarfjarðar og er allur aðbúnaður og aðstaða til mikillar fyrirmyndar. Gróskumikið starf er unnið innan kirkjunnar og má þarf nefna barna- og unglingastarf sem hefur verið í miklum vexti undanfarin ár. Fjárhagsstaða kirkjunnar er sterk. Vinnvinn | Kringlan 7 | 103 Reykjavík Sími 552 1212 | vinnvinn@vinnvinn.is | www.vinnvinn.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.