Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.10.2020, Qupperneq 43

Fréttablaðið - 17.10.2020, Qupperneq 43
AUGLÝSING UM FORVAL Sveitarfélagið Árborg lýsir eftir áhugasömum aðilum til þess að taka þátt í forvali um lokað alútboð vegna hönnunar og byggingar annars áfanga Stekkjaskóla á Selfossi. Í forvalinu verður hæfni væntanlegra bjóðenda metin og þeim sem standast hæfniskröfurnar verður boðið að taka þátt í lokuðu alútboði. Á grundvelli þess lokaða alútboðs verður gerður verksamningur við þann aðila sem býður lægsta verð í verkefnið. Hæfniskröfur og vægi matsþátta forvalsins: Tæknileg og fagleg geta til þess að standast þau tímamörk sem sett eru. Vægi: 65% - Væntanlegur bjóðandi skilar inn tímaáætlun og lýsingu á því hvernig hann mætir tímamörkum. Tímaáætlunin skal bundin eftirfarandi verkhlutaskilum: a) skil á aðaluppdráttum og umsókn um byggingarleyfi, b) uppsteypa sökkla og botnplötu lokið, c) afhending byggingareininga á byggingarstað, d) húsnæði er fokhelt, e) húsnæði er tilbúið til notkunar. - Væntanlegur bjóðandi leggur fram yfirlýsingu frá fjármála- stofnun um að sett verði sérstök trygging fyrir verkskilum. - Auk þessa skal væntanlegur bjóðandi leggja fram almennar upplýsingar um hæfi bjóðanda sbr. ákvæði laga nr. 120/2016 um opinber innkaup með síðari breytingum. Tæknileg og fagleg geta til þess að skila þeim gæðum sem óskað er eftir. Vægi: 35% - Bjóðandi skilar inn gæðalýsingu á meginhlutum mann- virkis. Af þessum 35% fást 20% með því að bjóða vistvottaðar byggingareiningar og/eða vistvottun á framkvæmd (Svansvottun, BREEAM vottun o.s.frv.) Um verkið: Verkið verður unnið í alverktöku og inniheldur eftirfarandi verkhluta: 1. Fullnaðarhönnun á skólabyggingu og gerð allra aðal- og séruppdrátta fyrir hana. Verktaki annast umsókn um byggingarleyfi. Verkkaupi mun ráða sjálfstæða hönnunar- og byggingar- stjóra sem munu sjá um lögboðið eftirlit með hönnun og framkvæmd. 2. Bygging skólabyggingarinnar. Um er að ræða u.þ.b. 900 fermetra hús á einni hæð sem standa skal á nýrri lóð í Björkurstykki á Selfossi. Verklok eru 30. júlí 2021. Skilyrði þátttöku eru nánar útskýrð í forvalsgögnum. Forvalsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með miðvikudeginum 21. október 2020. Þeir sem hyggjast taka þátt í forvalinu skulu hafa samband við Eirík Stein Búason hjá Verkís hf. á Selfossi með tölvupósti í netfangið verkis.selfoss@verkis.is og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang sitt og fá forvalsgögnin í kjölfarið send í tölvupósti. Gögnum þátttakenda skal skila með tölvupósti til Verkís hf., verkis.selfoss@verkis.is fyrir kl. 11.00 miðvikudaginn 4. nóvember 2020. Niðurstöður úr hæfnismati verða kynntar í þeirri sömu viku. Mannvirkja- og umhverfissvið Árborgar Ný útboð í auglýsingu hjá Reykjavíkurborg: • Rammasamningur um vinnuföt og persónuhlífar fyrir Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur- borgar, EES útboð nr. 14868. • Gullborg - Færanlegar kennslustofur, Alútboð nr. 15025. • Rauðavatn - Stígagerð, útboð nr. 15032. Nánari upplýsingar er að finna á www.reykjavik.is/utbod Innkaupaskrifstofa Sími 411 1111 ÚTBOÐ Fjármála- og efnahagsráðherra hefur afhent óbyggða nefnd kröfur íslenska ríkisins um þjóð- lendur í Ísafjarðarsýslum, á svonefndu svæði 10B. Óbyggðanefnd kallar nú eftir kröfum þeirra sem kunna að eiga öndverðra hagsmuna að gæta. Kröfulýsing ráðherra og fylgigögn, m.a. kort, eru tiltæk á vef óbyggða nefndar: obyggdanefnd.is, og á skrif stofu nefndar innar. Gögnin hafa einnig verið send við komandi sveitar félögum með beiðni um að hafa þau aðgengileg, þ.e. Ísa fjarðar bæ, Bolungar- víkur kaupstað, Súðavíkurhreppi og Stranda byggð, sem og skrif stofum sýslu mannsins á Vestfjörðum á Patreks firði, Ísafirði og Hólma vík. Tilkynning um kröfuna var birt í Lögbirtingablaðinu 9. október sl. skv. 2. mgr. 10. gr. laga nr. 58/1998. Skorað er á þá sem telja til eignarréttinda á land svæð um sem falla innan þjóðlendu­ kröfusvæða íslenska ríkis ins í Ísafjarðarsýslum að lýsa kröfum skriflega í síðasta lagi 1. febrúar 2021 fyrir óbyggðanefnd, Skugga sundi 3, 101 Reykjavík, postur@obyggdanefnd.is. Upplýsingar um málsmeðferð og leiðbeiningar um frágang kröfu lýsinga fást á vefsíðu og skrifstofu óbyggða nefndar. Að kröfulýsingarfresti liðnum verða heildarkröfur kynntar. Óbyggðanefnd rannsakar svo málin sem felur m.a. í sér umfangsmikla gagnaöflun í samvinnu við Þjóðskjalasafn Íslands. Að lokinni gagnaöflun og rannsókn á eignarréttarlegri stöðu svæðanna úrskurðar óbyggðanefnd um fram komnar kröfur. Óbyggðanefnd er sjálfstæð úrskurðarnefnd á stjórnsýslustigi. Hlut verk hennar er skv. 7. gr. laga nr. 58/1998 að: a) kanna og skera úr um hvaða land telst til þjóðlendna og hver séu mörk þeirra og eignarlanda, b) skera úr um mörk þess hluta þjóðlendu sem nýttur er sem afréttur og c) úrskurða um eignarréttindi innan þjóðlendna. Áskorun frá óbyggðanefnd Borgartúni 7c, 105 Reykjavík Sími 530 1400 www.rikiskaup.is ÁTVR – Leiguhúsnæði óskast fyrir Vínbúð Ríkiskaup f.h. Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins óska eftir að taka á leigu um 450-550 m² húsnæði fyrir Vínbúð í Reykjavík. Svæðið afmarkast í grófum dráttum af Kringlumýrarbraut, Skipholti, Barónstíg og Sæbraut. Húsnæðið mun skiptast að u.þ.b. 2/3 hlutum í verslunarsvæði og 1/3 hluta í lager og starfsmannaaðstöðu. Húsnæðið þarf að fullnægja eftirfarandi kröfum: 1. Vera á skilgreindu verslunarsvæði. 2. Liggi vel við almenningssamgöngum 3. Umferð að og frá húsnæðinu sé greið. 4. Húsnæðið skal vera á jarðhæð. 5. Aðkoma að húsnæðinu fyrir flutningabíla og/eða lyftara með vörur skal vera góð bjóða upp á að vöruhurð opnist beint út á bak- eða hliðarsvæði. 6. Góð aðkoma sé að húsnæðinu fyrir viðskiptavini og næg bílastæði (allt að 30 stæði sem nýst geta Vínbúðinni). 7. Lögð er áhersla á gott aðgengi af bílaplani fyrir hreyfi- hamlaða og jafnframt þurfa að vera bílastæði fyrir starfsfólk. 8. Verslunarrýmið sé sem næst rétthyrnt og mega súlur, veggir eða annað ekki hamla yfirsýn um verslunarhluta húsnæðisins. 9. Húsnæðið verður að fullnægja öllum kröfum sem opin- berar eftirlitsstofnanir og umsagnaraðilar gera til slíks og vera samþykkt af þeim. Leigutími húsnæðisins er 8-10 ár. Húsnæðið skal afhenda samkvæmt samkomulagi og ræðst afhendingartími nánar af ástandi þess við afhendingu. Leigutilboðum skal skila rafrænt í rafræna útboðskerfin TendSign eigi síðar en kl. 12:00, mánudaginn 2. nóvember 2020. Ekki verður tekið við tilboðum eftir að tilboðsfresti lýkur, hvort sem er með rafrænum hætti eða bréflega. Bjóðendur eru því hvattir til að skila tilboðum tímanlega. Álag getur verið á rafræna kerfinu. Það er á ábyrgð fyrirtækis að svör berist innan tímafrests. Fyrirspurnatíma lýkur 25. október 2020 og svarfrestur er til 28. október 2020. Gögn sem fylgja skulu tilboði þurfa a.m.k. innihalda eftir- farandi upplýsingar: 1. Staðsetning. 2. Teikningar af húsnæði. 3. Stærð húsnæðis 4. Mögulegur afhendingartími. 5. Ástand húsnæðis við afhendingu. 6. Heildarleiguverð pr. m2 án vsk. og skal það innifela allan kostnað annan en rafmagn og hita fyrir hið leigða rými. 7. Fyrirsjáanlegar breytingar sem gætu haft áhrif á kröfuliði 1- 9 að ofan á leigutímanum. 8. Kvaðir sem kunna að hafa áhrif á starfsemi Vínbúðar á svæðinu. Leiga á grundvelli þessarar auglýsingar er undanskilin lögum um opinber innkaup nr. 120/2016, sbr. a. lið 1. mgr. 11. gr. Útboðskerfi Ríkiskaupa má finna á www.tendsign.is. Leiðbeiningar varðandi útboðskerfið er að finna á heimasíðu Ríkiskaupa. Nánari upplýsingar má finna á www.utbodsvefur.is ÓSKAST TIL LEIGU Er verið að leita að þér? Viðskiptavinir Ráðum fela ráðgjöfum okkar oft að finna starfsmenn án þess að auglýsa stöðuna. Skráðu þig í gagnagrunninn okkar til að tryggja að við finnum þig þegar rétta starfið býðst. ATVINNUAUGLÝSINGAR 11 L AU G A R DAG U R 1 7 . O K TÓ B E R 2 0 2 0
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.