Fréttablaðið - 17.10.2020, Síða 64
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, amma, langamma
og langalangamma
Herdís Gunnlaugsdóttir
Holm
Helgadal, Mosfellsbæ
lést á líknardeild Landspítalans þriðjudaginn 13. október.
Útförin fer fram í Mosfellskirkju, föstudaginn 23. október
klukkan 15. Í ljósi aðstæðna verður aðeins nánasta
fjölskylda viðstödd útförina.
Streymi frá útförinni verður tilkynnt síðar.
Hreinn Ólafsson
Gunnlaugur Jón Hreinsson Lára Marelsdóttir
Svanhvít Hreinsdóttir Ingólfur Þór Baldvinsson
Garðar Hreinsson Hulda Jónasdóttir
Jóhanna Hreinsdóttir Guðmundur Magnússon
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir,
amma og dóttir,
Kristín Þóra Birgisdóttir
Markarflöt 25, Garðabæ,
lést mánudaginn 5. október á líknardeild
Landspítala. Útförin fer fram frá Vídalínskirkju
föstudaginn 23. október kl. 15. Streymt verður á:
www.facebook.com/groups/359010605218005/about
Óðinn Viðar Grímsson
Elsa Rut Óðinsdóttir Stefán Logi Magnússon
Óskar Freyr Óðinsson Bríet Birgisdóttir
Birgir Orri Óðinsson Auður Margrét Pálsdóttir
Isabella Ósk, Emelía Björk og Alexander Þór Stefánsbörn
Birgir Birgisson Guðrún J. Gunnarsdóttir
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta
í yfir 70 ár
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er.
Margrét Ásta GuðjónsdóttirSverrir EinarssonKristín Ingólfsdóttir
Minningarkort á hjartaheill.is
eða í síma 552 5744
Bókaútgáfa á tímum COVID
Héraðsbúinn Björg Björnsdóttir, mannauðsstjóri Skógræktarinnar, situr við að árita
sína fyrstu ljóðabók sem nefnist Árhringur – undirtitillinn er: Ljóðræna dagsins.
„Sem blaðamaður hafði ég verið með ákveðinn ramma að vinna í, nú ákvað ég að sleppa þeirri hugsun og örva skapandi flæði.
Því skrifaði ég daglega í eitt ár afmarkaðan texta,“ segir Björg um ljóðagerðina. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Eldgos hófst í Kötlu gömlu þennan
mánaðardag árið 1755. Þetta var stórt
gos og því fylgdi jökulhlaup og gríðar-
legt öskufall. Hlaupið olli litlu tjóni
á bújörðum þó það væri með allra
stærstu Kötluhlaupum en það skildi
eftir mikla hryggi úr ís og aur á sand-
inum sem voru lengi illfærir.
Gosið stóð í fjóra mánuði. Upp kom
1,5 km3 af gjósku sem gerir það að
einu af stærstu gjóskugosum á sögu-
legum tíma á Íslandi.
Um 30 cm gjóskulag féll í Skaftár-
tungu í 20 til 25 km fjarlægð frá eld-
stöðinni. En vegna gjóskufallsins fóru
um 50 jarðir í eyði og að minnsta kosti
tveir menn létust af völdum eldinga í
gosinu.
Þ E T TA G E R Ð I S T: 17. O K T Ó B E R 1755
Kröftugt gos hófst í Kötlu í Mýrdalsjökli
Við ætluðum að halda útgáfuhóf í þessari viku í bókaútgáfunni Bjarti en urðum að af lýsa því út af kófinu,“ segir Björg Björnsdóttir sem keyrði
frá Egilsstöðum til borgarinnar síðasta
sunnudag, til móts við nýja ljóðabók
sína, Árhringur. „Svo hugðist ég vera á
ákveðnum tímum í Eymundsson svo
fólk gæti komið þangað að sækja sér bók
en enginn vill verða valdur að hópsmiti
þannig að það var slegið af líka,“ heldur
hún áfram. „Við notum bara netið og ég
er með pantanir á um 300 bókum sem
ég er að árita.“
Björg kveðst dvelja í stéttarfélagsíbúð
og varla þora að hitta nokkurn mann.
„Annars tók ég tveggja metra prik með
til að halda örugg fjarlægðamörk,“ segir
hún glettin. „Hitti systur mína í gær, við
fórum bara í gönguferð og kölluðumst
á.“ Ég spyr hvort reynt hafi verið að
stemma stigu við f lakki hennar fyrir
austan. „Nei, en á Austurlandi er ekkert
smit og auðvitað viljum við halda því
þannig. Þar er mælst til að fólk sem á
brýn erindi til Reykjavíkur haldi sig til
hlés í hálfan mánuð eftir að það kemur
heim og ég hlíti því.“
Alltaf verið að skrifa
Árhringur – Ljóðræna dagsins er bók
upp á 40 síður. Í fyrri hlutanum sækja
ljóðin nöfn sín til gömlu mánaðaheit-
anna. Síðari hlutinn nefnist Hringur.
Jón Ágúst Pálmason sá um kápu-
hönnun. „Hann er listamaður, einn
þessara grafísku hönnuða sem kunna að
teikna fríhendis,“ bendir Björg á. Þetta er
hennar fyrsta bók en hún kveðst þó allt-
af hafa verið að skrifa, unnið smásagna-
samkeppni í menntaskóla og fengið birt
eftir sig í ljóðabók stúdenta þegar hún
var í háskólanum. „Svo lærði ég blaða-
mennsku í Frakklandi og starfaði hjá
Ríkisútvarpinu hér heima, bæði útvarpi
og sjónvarpi, var fréttaritari þess í Istan-
bul um tíma og fór svo til Parísar og vann
á stórblaðinu Le Figaro,“ rifjar hún upp.
Byrjaði að yrkja á fésbók
Björg er uppalin á Egilsstöðum og flutti
heim á æskuslóðirnar árið 2013. Þá hófst
nýr kafli. „Í gegnum Herborgu Eðvalds-
dóttur, vinkonu mína og leirlistakonu,
kynntist ég hugmyndinni um flæði. Í því
felst að hægt er að byrja á einhverju án
þess að hafa hugmynd um hvernig það á
að enda. Mér fannst það áhugavert. Sem
blaðamaður hafði ég verið með ákveðinn
ramma að vinna í, nú ákvað ég að sleppa
þeirri hugsun og örva skapandi flæði. Því
skrifaði ég daglega í eitt ár afmarkaðan
texta sem ég kallaði ljóðrænu dagsins og
fékk mikil viðbrögð á fésbók. Páll Vals-
son útgáfustjóri hjá Bjarti skrifaði að ef
ég vildi gera eitthvað meira með efnið
skyldi ég láta sig vita. Það kitlaði.“
Þegar Björg fór að vinna að bókinni
þóttu henni ljóðrænur dagsins misgóðar
og áhugaverðar, eins og dagarnir, að eigin
sögn. „Ég sökkti mér í efnið. Það sem mér
fannst standa upp úr er sú hringrás sem
árstíðirnar skapa og við stöðvum ekki,
hversu miklu sem við þykjumst geta
stjórnað. Ég fann líka hvað náttúran spil-
ar stórt hlutverk í okkar daglega lífi og að
við verðum ríkari eftir því sem tímanum
vindur fram, líkt og árhringir bætast í tré
og jarðlög í landi.“
Bókina Árhringur tileinkar Björg
föður sínum, Birni Þór Pálssyni, sem
lést árið 2012. „Síðari kaflinn, Hringur,
byrjar um jól og endar um jól. Það má
hugsa hann sem árstímabil en hann er
kannski meira æviskeið. Við erum bara
ferðalangar í tíma og ég velti fyrir mér
arf leifð kynslóðanna, hvað við fáum
frá öðrum og hverju við miðlum sjálf
áfram.“ gun@frettabladid.is
Gormánuður - fyrri hluti
Hann er kominn
Þessi morgun,
þegar himinninn
verður að dökkum striga
fyrir skugga trjánna,
fyrir fjallið sem ávallt vakir
og þig.
Rökkrið mjúk voð
sem ég hyl mig með.
Þannig búin held ég út.
Ósýnileg.
Vindurinn í fangið.
Trylltur haustlaufadans.
1 7 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R32 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT