Fréttablaðið - 17.10.2020, Qupperneq 82
Ífyrstu viku nóvember er væntanleg ný plata frá tón-listarmanninum Ólafi Arn-alds. Hún hefur hlotið heitið some kind of peace, og er að hans eigin sögn persónuleg-
asta efnið sem hann hefur gefið út
til þessa. Nú þegar er búið að gefa
út fjögur lög af plötunni, en í gær
kom út lagið Loom, sem hann vann
í samstarfi við hinn heimsþekkta
breska raftónlistarmann Bonobo.
„Platan og gerð hennar hefur átt
hug minn allan undanfarið. Ég var
hálfnaður með hana þegar COVID-
19 skall á og ég kláraði hana í fyrstu
bylgjunni, svona þegar allir voru
læstir inni. Ég fór aðeins út í þær
pælingar að gera eitthvað örlítið
persónulegra en ég hef gert áður.
Hingað til hef ég unnið meira í
kringum einhver þemu. Þannig að
þetta er í fyrsta sinn sem maður er
að vinna tónlist sérstaklega út frá
persónulegri líðan,“ segir Ólafur.
Hann viðurkennir að hafa forðast
það í gegnum tíðina að gerast of per-
sónulegur í tónsmíðum sínum.
„Ég var byrjaður að vinna plöt-
una, en svo upplifði ég það sem
nokkurs konar staðfestingu á því
að ég var að stefna í rétta átt þegar
COVID skall á. Hvað er það sem
við lifum fyrir hérna? Áður var ég
mikið að fela mig á bak við einhver
„concept“. Þar sem maður býr til
einhverjar stórar hugmyndir eða
einhvern heim. Núna ákvað ég að
sleppa öllu svoleiðis. Það er enginn
heimur sem ég bjó til hérna, þetta
eru bara hlutirnir sem ég er að upp-
lifa,“ segir hann.
Ólafur viðurkennir að það stressi
hann vissulega eilítið að bera svona
sálina í tónum.
„Já, það er alltaf smá stressandi
en þetta er nú alltaf temmilega
abstrakt enda „instrumental“ tón-
list. Þannig að ég segi aldrei neitt
beint út með orðum, en maður
heyrir samt alveg á tónlistinni að
þetta er miklu persónulegra en það
sem ég hef gefið út áður. Það eru alls
konar hlutir sem fólk getur rýnt í. Ég
opinbera áður óséðar hliðar.“
Stemningin dó hratt
Hann segist sjálfur hafa haft það
þokkalegt í gegnum þessa fordæma-
lausu tíma.
„Fyrst þegar faraldurinn skall á
var eins og þorri listafólks kæmist
í einhvern gír. Fólk vildi gera og
skapa rosalega mikið. Ég hef aldrei
fengið jafnmikið af uppástungum
um samstarf og ég fékk þá. Það
var eins og að allir hugsuðu: „Nú
er samkomubann og við ætlum að
nýta tíma til að gera ótrúlega mikið
af tónlist.“ Síðan breyttist það á
nokkrum vikum. Heimsfaraldur
sem er að ógna mannkyninu? Þetta
eru kannski ekki bestu aðstæð-
urnar til að vera skapandi. Þessi
stemning dó hratt út,“ segir Ólafur
og viðurkennir fúslega að hann
hafi verið í nákvæmlega sömu pæl-
ingum.
„Ég var eins fyrst og ætlaði að
nýta tímann í að skapa. Síðan áttar
maður sig hægt og rólega á alvar-
leika málsins. Þetta eru ekki endi-
lega aðstæðurnar sem maður getur
verið hvað mest skapandi í og þær
myndu í það minnsta lita mjög
efnið. Hættan yrði sú að hún yrði
f ljótt þreytt. Ég hef reynt að passa
mikið upp á þetta. Músíkin sem
maður gerir litast auðvitað alltaf
af aðstæðunum sem maður er í, en
ég reyni að tengja aldrei beint við
þetta ástand. Þetta líður hjá og eftir
þrjú ár nennum við ekkert að hlusta
á plötur um COVID. Við munum
frekar vilja gleyma þessu eins hratt
og við getum,“ segir hann.
Hugsað í lausnum
Ólafur er gríðarlega farsæll tón-
listarmaður á erlendri grundu og
fylgir alla jafna plötum sínum eftir
með stórum tónleikaferðalögum.
Fresta varð um sextíu tónleikum
vegna heimsfaraldursins.
„Ég ætti að vera á tónleikaferða-
lagi akkúrat núna. Ef þú ferð inn á
síðuna mína stendur líklegast þar
að ég sé í París. Við frestuðum öllum
tónleikunum núna í haust um ár,
síðan verður að koma í ljós hvernig
það fer. Það er ekkert víst að það
verði hægt eftir ár heldur. Þetta er
búið að vera alveg ótrúlega áhuga-
vert ár upp á þetta að gera. Við
vissum það eiginlega strax í apríl að
ekkert yrði úr tónleikaferðalaginu.
Síðan þá erum við því búin að vera
stanslaust að pæla: Hvað gerum við
þá?“ segir hann.
Það sé alltaf vaninn að fara á tón-
leikaferðalag samhliða plötuútgáfu.
„Þetta er bara nokkurs konar
„lúppa“. Túrinn styður plötuna,
platan styður túrinn. Þannig virkar
bara einhvern veginn bransinn. Allt
í einu er þetta tekið af okkur. Maður
getur ekki orðið reiður því þetta er
engum að kenna. Þannig að ég fór
bara beint í það að velta fyrir mér
hvað ég ætti þá að gera. Þannig að
við höfum stanslaust hugsað um
það seinustu mánuðina hvernig
við komum fólki saman, þú veist,
að fólk upplifi eitthvað saman. Þessi
samupplifun er svo ótrúlega mikil-
væg á tónleikum. Og líka, hvernig
segjum við söguna? Tónleikar eru
svo mikið tækifæri tónlistarmanns-
ins til að segja söguna í músíkinni,“
segir hann.
Það sé því stór partur af upp-
lifuninni í tengslum við tónlistina
að fá að upplifa listamanninn flytja
verkið.
„Við veltum því mikið fyrir okkur
hvernig við kæmum þessu til skila.
Er það með myndböndum eða
streymi í beinni? Þannig að þetta er
búið að vera alveg ótrúlega áhuga-
vert ferli í rauninni, að reyna að
finna út úr þessu.“
Prísar sig sælan
Ólafur viðurkennir að hann sé einn
af þeim fáu heppnu íslensku tón-
listarmönnum sem gátu nokkurn
veginn treyst á tekjur ótengdar tón-
leikahaldi.
„Ég er heppinn miðað við marga.
Spilunin í raun bara jókst ef eitt-
hvað er, kannski passar músíkin
svona við ástandið,“ segir hann
og hlær. En ég finn mjög mikið til
með meira „lókal“ listamönnum,
íslensku tónlistarfólki að vinna
á Íslandi. Það er komin upp alveg
ótrúlega viðkvæm staða. Þegar
svona kemur upp þá er það nátt-
úrulega alveg hrikalegt. Það þarf að
finna eitthvað út úr þessu, annars
missum við þennan einstaka tón-
listarbransa sem við eigum,“ segir
Ólafur
Eins og áður kom fram nýtur
Ólafur þó nokkurrar velgengni á
erlendri grundu. Átti hann til að
mynda lag í The Hunger Games
þríleiknum, hlaut BAFTA-verðlaun
fyrir tónlist sína í bresku saka-
málaþáttunum Broadchurch og
var tilnefndur til Emmy-verðlauna
í ár fyrir titillagið í þáttunum De-
fending Jacob. Tilnefningin barst í
júlí og var Ólafi strax ljóst að hann
væri ekki á leið út á hátíðina.
„Ég fylgdist bara með í sófanum
heima í náttfötunum, á Zoom í
beinni. Hátíðinni var streymt í ár
og það yfir fjögur kvöld svo það yrði
ekki bara eitt fimm tíma streymi.
Fyrir þá sem voru tilnefndir voru
Zoom-hittingar, til að skapa ein-
hverja baksviðsstemningu. Þetta
var allt svona hálfþvingað og stíft,“
segir hann og hlær.
Vann með Sam Smith
Undanfarið hefur Ólafur verið að
vinna að tónlistarmynd í samstarfi
við franskan leikstjóra og Íslenska
dansflokkinn.
„Þetta var svolítið mín lausn við
þessari stóru pælingu í kringum
það hvað maður getur gert núna til
að vera skapandi og miðla tónlist-
inni. Þetta er í raun mynd sem mun
fylgja plötunni. Hún segir söguna
samhliða plötunni,“ segir hann.
Ólafur kemur fram á Iceland
Airwaves-hátíðinni sem fer fram í
gegnum streymi í ár.
„Ég hef spilað nokkrum sinnum
á hátíðinni áður. Planið í ár er að
vera í frekar kósí stemningu, þetta
verður smá svona heima-í-stofu
fílingur.“
Inntur eftir hans draumasam-
starf i, segist hann hafa verið
svo heppinn að hafa unnið með
mörgum af þeim sem hann dreymdi
um að vinna með.
„Ég hef verið svo heppinn að fá
að vinna með mörgum af þeim síð-
ustu árin. Ég vann til dæmis með
Sam Smith í sumar og Bonobo er á
plötunni minni. Síðan er JFDR líka
á plötunni, hún er ein af mínum
uppáhaldslistamönnum, nokkurn
tímann. Ég hef átt í svo frábæru
samstarfi að ég vil eiginlega ekki
segja neitt, svo ég „jinxi“ þetta ekki.“
Góður andi á Balí
Ólafur er búsettur á Balí og á
Íslandi.
„Ég hef ekki komist til Balí síðan
í febrúar og ég veit ekki hvenær ég
kemst næst. Landið er eiginlega
lokað. Upphaf lega kynntist ég
Balí í gegnum vini sem höfðu flust
þangað. Þá fór ég að heimsækja þá
og fann fljótt hvað mér leið vel þar.
Ég fæ innblástur frá menningunni
og sögunni, ég fæ alltaf eitthvað
„boost“ þegar ég er þarna.“
Smám saman eignaðist hann
fleiri og fleiri vini á eyjunni.
„Einhvern veginn sjálfkrafa var
maður allt í einu kominn með hús
þarna. Þetta var einhvern veginn
svo lítil ákvörðun. Kærastan mín
ólst þarna upp líka. Hún er búin að
vera hérna hjá mér eftir að faraldur-
inn skall á, komst hingað áður en að
landamærunum var lokað. Þannig
að við erum nokkurn veginn bund-
in þessum stað þar til við komumst
aftur út,“ segir Ólafur.
Some kind of peace er væntanleg
6. nóvember.
steingerdur@frettabladid.is
ÞETTA LÍÐUR HJÁ OG
EFTIR ÞRJÚ ÁR
NENNUM VIÐ EKKERT AÐ
HLUSTA Á PLÖTUR UM COVID.
VIÐ MUNUM FREKAR VILJA
GLEYMA ÞESSU EINS HRATT OG
VIÐ GETUM.
Persónulegri
Ólafur Arnalds
Tónlistarmaðurinn Ólafur Arnalds gefur út
sína fimmtu breiðskífu, some kind of peace,
í byrjun nóvember. Hann varð að fresta
rúmlega sextíu tónleikum núna í haust út
af heimsfaraldrinum. Ólafur var tilnefndur
til Emmy-verðlauna á dögunum og fylgdist
með úrslitunum heima á náttfötunum.
Ólafur var
hálfnaður með
gerð fimmtu
breiðskífu
sinnar þegar
heimsfaraldur-
inn skall á.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGRTRYGGUR ARI
1 7 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R50 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ