Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.10.2020, Qupperneq 84

Fréttablaðið - 17.10.2020, Qupperneq 84
Þetta er ótrúlega f ljótt að líða,“ segir Reynir Traustason, blaðamað-ur og rithöfundur, sem gerði stormandi lukku í jólabókaflóðinu 2004 með Sonja – Líf og leyndardómar Sonju W. Benjamínsson de Zorrilla. Bókin er nú gengin í endurnýjun líf- daga í upplestri útvarpsstjörnunnar Sigurlaugar Margrétar Jónasdóttur og er á einni viku meðal vinsælustu íslensku bókanna á Storytel. „Þetta er bara ánægjulegt. Bæk- urnar eru náttúrulega löngu farnar úr sölu og allt það, þannig að nú fá þessar sögur nýtt líf og ég er í sjálfu sér alveg sáttur við það,“ segir Reyn- ir og bætir við að allar hafi þessar bækur fyrir löngu skilað sínu. Séu löngu uppseldar og jafnvel illfáan- legar. Sonja vekur enn umtal „Það er bara svoleiðis, en það var náttúrlega svolítið mikið til af Sonju á tímabili vegna þess að hún var prentuð í eitthvað yfir tíu þúsund eintökum. Hún hefur alveg haldið vinsældum og er mikið umtöluð enn þá. En þetta er allt að baki og svo veit ég svo sem ekkert um pen- ingahliðina á þessu. Ég held það sé nú ekkert mikið sem þetta gefur manni en eitthvað kannski,“ segir Reynir og hlær. „Þetta eru fjórar bækur frá mér sem eru komnar þarna inn. Sonja, Ragna á Laugabóli, sem reyndar seldist aðeins meira en Sonja á sínum tíma og vakti gríðarlega athygli,“ segir Reynir um bókina Ljósið í Djúpinu - Örlagasaga Rögnu Aðalsteinsdóttur frá 2006. Hina r bæk u r na r t vær er u Skuggabörn, blaðamannabók um ungt fólk sem er fast í of beldisfull- um heimi fíkniefna, og Afhjúpun, sem ef til vill er best lýst sem ein- hvers konar starfsævisögu Reynis í blaðamennsku. Meira drama Ævisögur alls konar fólks eru hryggjarstykkið í höfundarverki Reynis en hann sýndi á sér aðra og jafnvel nokkuð óvænta hlið í smá- sagnasafninu Þorpið sem svaf, sem kom út fyrir tveimur árum. Þá situr hann nú við skriftir fjarri veirufári þéttbýlisins og þótt hann gefi ekki mikið upp má ætla að hann muni koma úr enn einni áttinni með næstu bók. „Ég held mig afsíðis enda get ég unnið hvar sem er,“ segir Reynir sem ritstýrir Man.is, Mannlíf i á vefnum, í hálfu starfi. „Þetta verður samt alltaf einhvern veginn meira en 50% vinna,“ segir hann og bendir á að það sé ærið verk að fóðra hungraðan vef, þótt prentuð útgáfa tímaritsins liggi í ótíma- bundnum dvala. Reynir lætur hins vegar f ljóta með að hann sé að skrifa bók en gefur lítið upp þegar hann er spurður um efni hennar. „Það er ekki opinbert en það er ákveðin sagnfræði og mikið drama í þessu á köflum,“ segir blaðamaðurinn og rithöfundurinn, sem hefur margar fjörurnar sopið á löngum ferli en þyrstir þó enn í dramatískar sögur af áhugaverðu fólki. toti@frettabladid.is Lífið í vikunni 11.10.20- 17.10.20 SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@ frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is Reynir leitar í drama Reynir Traustason er kominn á Storytel með fjórar bækur þar sem sextán ára metsölubók hans um Sonju de Zorrilla ber hæst. „Hún er skemmtileg og les Sonju með sinni fínu rödd,“ segir Reynir Traustason ánægður með að útvarpsstjarnan Sigurlaug Margrét Jónasdóttir hafi verið fengin til þess að lesa bókina um Sonju Zorrilla. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI HEIMSENDING Í ÞYRLU Jón Þór Þorleifsson hreifst af hugmyndinni um 101 Mathöll á vefnum og þar sem hann er þyrlu- flugmaður bíður hann spenntur eftir tækfæri til að senda mat heim eins og fuglinn fljúgandi með þyrlu. SÖGUR AF FÓLKI Almar Örn Hilmarsson, fyrrverandi forstjóri Sterling og Iceland Ex- press, nýtur þess að vera búa í Prag þar sem styttir sér stundir með því að ræða við áhugavert fólk í hlað- varpi sem hann kallar The Bunker. ENGIN DISNEY-MYND Þriðja þáttaröð Venjulegs fólks hóf göngu sína í Sjónvarpi Símans og sem fyrr eru vinkonurnar Vala og Júlíana í forgrunni og Júlíana segist hafa notað nokkrar sögur eigin lífi í þættina og það er ekkert Disney. HREKKJAVÖKUÓVISSA Fólk er víða byrjað að undirbúa hrekkjavöku í skugga COVID. Almannavarnir telja þó of fljótt að taka afstöðu til Halloween og bíða eftir endurskoðun sam- komutakmarkana á mánudaginn. Heimskonan Sonja D u lúði n s em ha f ði umlukið líf Sonju Wen- del Benjamínsson de Zorrilla varð síst til þess að draga úr almennum áhuga á bók Reynis um heimskonuna, sem gat ekki sætt sig við þær skorður sem líf ið í Reykjavík setti henni og lagði ung af stað út í heim. Hún dvaldist í Þýska- landi á valdatíð Hitlers og kynntist þar bæði verðandi fyrirmönnum o g fór n a rlömbu m . Skömmu síðar hélt hún til London þar sem hún lifði hinu ljúfa lífi innan um hina ríku og frægu. Í París komst Sonja í kynni við ýmsa frægustu tískuhönnuði heims en eftir að heimsstyrjöldin síðari brast á komst hún með naumindum með skipi til New York. Þar bjó hún lengst af ævinnar og haslaði sér völl í karlaveldinu á Wall Street. DALBY hægindastóll með skemli Nettur og fallegur hægindastóll úr svörtu PU-leðri ásamt skammeli, á frábæru verði. Fáanlegur bæði með krómuðum fæti eða svörtum. Stærð: 125 x 72 H: 108 cm. Fullt verð: 59.900 kr. Aðeins 41.930 kr. Við eigum afmæli og nú er veisla Láttu drauminn rætast SENDUM FRÍTT Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði Við sendum þér vörurnar frítt hvort sem þú kaupir á dorma.is eða í DORMA-verslun Nature’s REST LUXURY heilsurúm með Classic botni • Svæðaskipt poka- gormakerfi (20 cm háir) • 5 misjöfn lög af svampi • Sterkur botn • 320 gormar á m2 • Góðar kantstyrkingar Val um svart eða hvítt PU leður eða grátt áklæði á Classic botni. Verðdæmi á Nature’s Rest Luxury með Classic botni og fótum: 90 x 200 cm. Fullt verð: 69.900 Aðeins 55.920 kr. 160 x 200 cm. Fullt verð: 99.900 Aðeins 79.920 kr. 30% AFSLÁTTUR AFMÆLIS 20% AFSLÁTTUR AFMÆLIS 1 7 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R52 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.