Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2020, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIR 30. OKTÓBER 2020 DV
ALLIR GETA ORÐIÐ FYRIR EINELTI
Margir þekktir og dáðir Íslendingar hafa
stigið fram og deilt reynslu sinni af einelti.
Einelti getur komið fyrir hvern sem er og
segir ekkert um persónu þolandans. Það
er hugrakkt að tjá sig um einelti og of-
beldi er aldrei réttlætanlegt. Fjöldi fólks
hefur tjáð sig um ofbeldi undir myllumerk-
inu #FOKKOFBELDI, auk þess sem þekktir
einstaklingar hafa stigið fram og fordæmt
einelti. Segjum frá og stöðvum einelti.
SALKA SÓL
Leik- og söngkonan Salka Sól
Eyfeld hefur greint frá einelti
sem hún varð fyrir í grunnskóla
og hefur í kjölfarið unnið að for-
varnaverkefni gegn einelti, Krakk-
ar með krökkum, í samstarfi við
Heimili og skóla og Vöndu Sigur-
geirsdóttur, sérfræðing í eineltis-
málum. Salka Sól varð móðir fyrr
á árinu og er ein eftirsóttasta
listakona landsins.
KATRÍN HALLDÓRA
Katrín Halldóra Sigurðardóttir er
einna þekktust fyrir stórkostlega
túlkun sína á söngkonunni Ellý
Vilhjálms í uppfærslu Borgarleik-
hússins á verkinu Ellý. Katrín var
þó ekki alltaf dýrkuð og dáð. Þeg-
ar hún flutti í Neskaupstað varð
hún utanveltu og segir það að
hafa verið feitur krakki og prests-
dóttir ekki hafa hjálpað til. Hún
var ekki tekin inn í hópinn og
lagði ekki í það að reyna að
sanna sig fyrir hinum krökk-
unum.
STEFÁN KARL
Einn vinsælasti leikari landsins,
Stefán Karl Stefánsson heitinn,
var ötull baráttumaður gegn ein-
elti og barðist kröftuglega gegn
því allt sitt fullorðinslíf. Stefán
Karl stofnaði samtök gegn ein-
elti, Regnbogabörn, og hélt mörg
hundruð fyrirlestra til að vekja
athygli á einelti. Hann lýsti einn-
ig á opinskáan hátt reynslu sinni
af einelti, bæði sem þolandi og
gerandi.
JÓN DAÐI
Jón Daði Böðvarsson, atvinnu-
maður í fótbolta, lenti í einelti sem
barn og skrifaði fallega orðsend-
ingu í athugasemd við Facebook-
færslu móður ungs drengs sem
hefur orðið fyrir skelfilegu einelti
í Garðabæ.
„Hæ Ólíver. Hvað segirðu félagi?
Eru strákar sem eru með minni-
máttarkennd að stríða þér og
leggja þig í slæmt einelti? Láttu
mig þekkja það vinur. Ég lenti
nákvæmlega í því sama og þú
á þínum aldri,“ skrifaði Jón og
sendi drengnum kveðju frá sér
og landsliðinu. „Þú veist innst
inni Ólíver að þú ert hæfileika-
ríkur og flottur gæi. Ég meina, mér
finnst þú vera það og okkur öllum
í landsliðinu. Og haltu áfram að
æfa þig í boltanum og vera dug-
legur. Fyrir þig. Þinn félagi – Jón
Daði Böðvarsson.“
DIDDÚ OG PÁLL ÓSKAR
Söngkonan stórkostlega Sigrún Hjálmtýsdóttir, betur
þekkt sem Diddú, lýsti því í viðtali við Morgunblaðið
1994 að hún hefði verið lögð í einelti þegar hún var
barn. „Sem barn var ég með svona þykkt, rautt hár og
mjög feit og var lögð í einelti.“ Hún lýsir því hvernig hún
var króuð af úti í horni og strítt mjög mikið. Þegar hún
varð eldri stofnaði hún ásamt þremur vinkonum sínum
saumaklúbb, þar sem þær bökuðu tertur og hlustuðu á
tónlist, í stað þess að svekkja sig á að vera ekki boðið í
partí. Bróðir hennar Páll Óskar Hjálmtýsson, poppgoð
og glimmerstjarna Íslands, lenti einnig í einelti. Hann
hefur lýst unglingsárum sínum sem lifandi helvíti og
eignaðist sína fyrstu vinkonu í níunda bekk.
ÁSGEIR JÓNSSON
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri sagði frá því í sjón-
varpsþættinum Mannamáli á Hringbraut að hann hefði
verið lagður í einelti sem barn vegna stams. Hann seg-
ist varla hafa getað komið upp einu orði vegna stams í
æsku og einelti vegna þess gat orðið ljótt. Reynslan af
eineltinu hafi hins vegar hert hann og gert hann sjálf-
stæðan, en ekki að viljalitlu hópdýri. Ásgeir Jónsson
er einn virtasti stjórnandi landsins og þykir bæði
skarpur og fær í mannlegum samskiptum.
MYND/AÐSEND
MYND/ANTON BRINK
MYND/GVA
MYND/EYÞÓRMYND/AÐSEND
MYND/SIGTRYGGUR ARI