Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2020, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2020, Blaðsíða 27
Öldruð ekkja fannst látin ofan í frystikistu á heimili sínu í ágúst 1997 í smábænum Carthage í Texas-fylki í Bandaríkj- unum. Ekkert hafði spurst til Marjorie Nugent, 81 árs, svo mánuðum skipti og voru aðstandendur hennar orðnir áhyggjufullir. Það voru sonur hennar og barnabarn sem fundu líkamsleifar hennar og var ljóst að andlát hennar hafði borið að með saknæm- um hætti. Það reyndist auðvelt fyrir lögreglu að upplýsa glæpinn. Fyrsti maðurinn sem var yfirheyrður vegna málsins, Bernie Tiede, sem hafði verið náinn vinur Marjorie um ára- bil, játaði afdráttarlaust að hafa ráðið Marjorie bana níu mánuðum fyrr. Málið virtist við fyrstu sýn nokkuð klippt og skorið. Morð hafði verið framið og morðinginn játaði verknað- inn á sig án nokkurra undan- bragða. Hins vegar var málið einstakt á heimsmælikvarða vegna þess að Bernie Tiede er ótrúlega viðkunnanlegur maður og var þekktur fyrir að vera með hjartað á réttum stað. Íbúar í Carthage elskuðu hann og dáðu og vildu ómögu- lega horfa á eftir þessum ynd- islega manni í fangelsi. Saksóknarinn í málinu hafði aldrei vitað annað eins og til að tryggja það að Bernie fengi þann dóm sem hann átti skilið þurfti að færa réttarhöldin í annað hérað þar sem enginn hafði heyrt minnst á Bernie Tiede, því annars hefði aldrei fengist kviðdómur sem væri tilbú- inn að sakfella þennan við- kunnanlega mann, fyrir þann svívirðilega glæp sem hann hafði játað á sig. Hvers manns hugljúfi Árið 1985 flutti Bernhardt Tiede II, betur þekktur sem Bernie, í smábæinn Carthage. Þar var honum tekið opnum örmum. Bernie var búldu- leitur maður og vinalegur. Nokkuð kvenlegur í fasi og þó hann væri ekki kominn út úr skápnum opinberlega, töldu margir ljóst að Bernie væri samkynhneigður. Ber- nie varð strax hvers manns hugljúfi í bænum. Hann var virkur í samfélaginu, kenndi í sunnudagaskólanum, sá um messur í fjarveru prestsins í bænum, var virkur í tónlist- ar- og leiklistarstarfi háskól- ans á svæðinu, söng í kórum og sönghópum og var í jóla- skreytinganefnd bæjarins. Bernie starfaði sem útfarar- stjóri. Hann sagði gjarnan að tilgangur hans í lífinu væri að hjálpa öðrum og birtist það vel í störfum hans, þar sem hann lagði mikla áherslu á að styðja Erla Dóra Magnúsdóttir erladora@dv.is aðstandendur hinna látnu í gegnum ástvinamissi, einkum aldraðar ekkjur, sem höfðu sérstakt dálæti á honum. Köld og fráhrindandi Það var einmitt þannig sem hann kynntist Marjorie Nu- gent. Eiginmaður Nugent lést árið 1990 og sá Bernie um út- förina. Marjorie var vellauð- ug en þótti köld og fráhrind- andi og í engu uppáhaldi hjá þorpsbúum í Carthage. Bernie tók Marjorie undir sinn verndarvæng eftir jarð- arförina. Urðu þau nánir vinir. Marjorie dekraði við hann með gífurlegum fjármunum sínum og bauð honum nýtt starf sem viðskiptastjóra fyrir sig. Nýja starfið veitti honum ótakmarkaðan aðgang að auð- æfum hennar og nýtti hann sér þá heimild óspart, jafnvel meira en Marjorie sjálf hefði kært sig um. Mörgum þótti undarlegt að þessi vinsæli og dáði maður hefði vingast við þessa fráhrindandi konu, en Bernie sagði þá gjarnan að hann væri sá eini sem Marjo- rie ætti að og hann gæti ekki skorast undan þeirri ábyrgð. Þau ferðuðust um heiminn saman, fóru á leiksýningar, á tónleika, í kirkju og töldu margir að þau væru elskendur. Skotin í bakið Í nóvember 1996 skaut Ber- nie Marjorie fjórum sinnum í bakið og kom henni fyrir í frystikistu. Um níu mánaða skeið hélt Bernie lífi sínu áfram eins og ekkert hefði í skorist og kom með hinar ýmsu lygar um fjarveru Marjorie. Eftir að Bernie játaði á sig verknaðinn vildi þó enginn í Carthage trúa því að Bernie væri vondur maður. Marjorie hafði verið óvinsæl og töldu menn því að Bernie hefði haft góða ástæðu til að gera það sem hann gerði. Honum ætti því ekki að refsa og hann ætti að fá að halda áfram að auðga samfélagið. Saksóknari í málinu sá sér ekki annað fært en að fá rétt- arhöldin flutt frá Carthage, til að tryggja óvilhallan kvið- dóm. Kviðdómur í málinu tók sér aðeins 20 mínútur til að sakfella Bernie og dæma hann til ævilangrar fanga- vistar. Fjölmargir stuðn- ingsmenn Bernies voru við- staddir réttarhöldin og grétu þegar Bernie hlaut dóm sinn. Sérstakur aðdáendaklúbbur Bernies var stofnaður í Car- thage og þó í honum hafi fækkað nokkuð í dag er hann þó enn til. En hvers vegna myrti Ber- nie Marjorie? Sjálfur segir hann að Marjorie hafi kúgað sig og beitt sig harðræði. Hafi hann varla mátt fara úr augsýn hennar. Kvaðst hann ekki hafa séð sér aðra leið færa en að myrða hana til að sleppa undan valdi hennar. Líklega hefði Bernie komist upp með glæpinn hefði hann falið líkamsleifar Marjorie betur, en hann sagði eitt sinn í viðtali: „Ég gat ekki fengið það af mér að yfirgefa hana, ég var hennar eini vinur,“ og sagði enn fremur að hann hefði beðið færis eftir að veita henni almennilega útför. Aðstandendur Marjorie voru á öðru máli. Þeir telja að Bernie hafi verið svikari sem hafi svikið stórfé út úr ekkj- unni öldruðu. Hafi Marjorie komist á snoðir um svikin og því hafi Bernie myrt hana. Deildi ágóðanum Óumdeilt er að Bernie eyddi gífurlegu magni af auðæfum ekkjunnar. Hins vegar eyddi hann peningunum á óhefð- bundinn máta. Hann styrkti ungmenni í samfélaginu til há- skólanáms, keypti hús handa ungu pari í fjárhagserfið- leikum, gaf til góðgerðarmála, keypti bíla fyrir fólk í Car- thage, keypti verslun sem var á leið í þrot og hjálpaði manni að opna fataverslun. Og þetta eru aðeins fáein dæmi um hvernig Bernie nýtti fjármuni Marjorie í þágu annarra. Hann eyddi gífurlegum peningum í að auðga samfélagið og styðja við hina ýmsu menningar- og viðskiptastarfsemi. Kvikmynd um Bernie Mál Bernies vakti athygli kvikmyndagerðarmannsins Richard Linklate. Richard fór og heimsótti Bernie í fangelsi og gerði um mál hans kol- svörtu gamanmyndina Bernie sem vakti mikla athygli. Með- al þeirra sem kvikmyndin vakti áhuga hjá var lögmaður einn, sem taldi að Bernie hefði ekki fengið sanngjarna málsmeðferð fyrir dómi. Ber- nie hefði nefnilega verið mis- notaður sem barn. Því hefðu kúgunartilburðir Marjorie komið því til leiðar að Bernie fór í tímabundið geðrof og ekki verið vitandi vits þegar hann myrti Marjorie. Fallist var á endurupptöku málsins og var Bernie sleppt úr fangelsi á meðan málið var tekið fyrir að nýju. Hann flutti inn til Richards Link- late og fékk um frjálst höfuð að strjúka í tvö ár, áður en hann var að nýju dæmdur í ævilangt fangelsi árið 2016. Enn eru margir þeirra trúar að Bernie eigi ekkert erindi í fangelsi. Hann er fyr- irmyndarfangi og nýtur enn mikilla vinsælda, aðstand- endum Marjorie til mikillar mæðu, en þeir hafa ötullega barist fyrir því að endur- heimta mannorð Marjorie, sem er í kvikmynd Linklate máluð sem hið versta skass og margir þeirrar trúar að hún hafi hlotið makleg mála- gjöld. Bernie á rétt á reynslu- lausn árið 2029, hann verður þá 71 árs gamall. n SAKAMÁL GÓÐHJARTAÐI MORÐINGINN Bernie Tiede myrti 81 árs ekkju og kom henni fyrir í frystikistu. En enginn sem þekkti hann vildi sjá honum refsað fyrir brotið. Bernie þykir með eindæmum viðkunnanlegur. MYND/AP PHOTO Marjorie og Bernie voru nánir vinir áður en hið óhugsanlega átti sér stað. MYND/AP PHOTO FÓKUS 27DV 30. OKTÓBER 2020

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.