Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2020, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2020, Blaðsíða 30
Ég hef ekki þorað að orða þessa spurningu við nokkurn mann og veit ekki alveg hvernig ég á að koma henni í orð öðruvísi en svona: Mér finnst makinn minn leiðinlegur. Hann er góður, hlýr, duglegur og allt sem flestir myndu óska sér. Við eigum bara mjög sjaldan djúpar og innihaldsríkar samræður. Oft talar hann um eitthvað sem mér finnst óáhugavert, ef hann á annað borð talar. Ef við förum út að borða þá koma vandræða- legar þagnir og ég get það ekki mikið lengur. Mér finnst ég svo vond að segja þetta svona, en get ég gert eitt- hvað til þess að þykja hann skemmtilegri? Þarf tvo til að bæta samband Sælar. Við verðum að vera sammála um að það gengur ekki til lengdar að þykja maki sinn leiðinlegur. Þú nefnir samt að það sé margt sem þú kannt verulega að meta við hann og það eru allt breytur sem skipta miklu máli, til dæmis góður, hlýr og dug­ legur. Ég sé því ekkert því til fyrirstöðu að þú/þið getið gert ýmislegt til þess að eiga dýpri og innihaldsríkari samræður og notið þess meira að spjalla saman. Í parsambandi er vandmeð­ farið að taka annan aðilann út fyrir sviga, það er að segja að láta hann laga sig og þá geti sambandið orðið gott. Það þarf yfirleitt alltaf tvo til þess að gera samband betra og þar eruð þið engin undantekning. Lítill tími fyrir nánd Það getur verið áhugavert að skoða ykkar „vanda“ út frá ykkar tengslum, ykkar hlustun og ykkar áhuga­ sviði. Því sterkari tengsl við fólk, því áhugaverðara og skemmtilegra getur okkur þótt það. Skýrasta dæmið, nokkuð sem mörg pör kannast við, lýsir sér þannig að þegar par hefur fjarlægst, hist lítið, haft lítinn tíma fyrir nánd og hvort annað, þá þykir því sömuleiðis minna hvoru til annars koma. Þetta er eitt­ hvað sem margir ungbarna­ foreldrar kannast við. Allt í einu fara öll smáatriði í taug­ arnar á fólki, hvernig hún raðaði í uppþvottavélina eða í hvaða föt hann klæddi krakk­ ann í morgun. Þegar öllu er á botninn hvolft, þá kemur í ljós að það er bara langt síðan for­ eldrarnir höfðu tíma til þess að vera par. Undir slíkum kringumstæðum verður allt erfiðara og leiðinlegra. Hvernig er staðan á ykkur þarna? Áttuð þið sterkari tengsl og þá fannst þér hann ekki svona leiðinlegur? Breyt­ ist það frá degi til dags hvort þér þyki samtöl hans áhuga­ verð? Getur verið að með því að setja fókusinn á nándina ykkar á milli þá verði sam­ tölin dýpri? Mikilvægt að hlusta Hlustun er gríðarlega mikil­ vægur þáttur í parsambandi og í hlustun felst svo ótrú­ lega margt. Í rauninni er góð hlustun tækni sem fólk er misfært í að tileinka sér. Sumir eiga auðvelt með að gera tvennt til dæmis hlusta og elda mat, aðrir þurfa að einbeita sér meira að hlustu­ ninni. Hvað hefur þú reynt varðandi hlustun þegar þú hlustar á manninn þinn? Get­ ur verið að hann finni hvað þér finnst hann leiðinlegur í gegnum lélega hlustun, verði óöruggur og fari að tala um hluti sem hann er öruggur með að ræða? Óöryggi fram­ kallar oft það leiðinlegasta í fólki. Þó þú segir að þú hafir ekki þorað að orða þennan vanda við nokkurn mann, þá er meira en líklegt að maðurinn þinn viti nákvæm­ lega hvað þér finnst. Að hann skynji það einfaldlega á hlustun þinni. Skapa dýpra samtal Jákvæð styrking virkar allt­ af betur en neikvæð styrking. Í því felst að þú getur styrkt skemmtilegt samtal milli þín og maka. Með því að sýna já­ kvæð viðbrögð þegar hann talar um það sem þér þykir skemmtilegt, í stað þess að þú sýnir honum til dæmis svip þegar hann talar um það sem þér þykir leiðinlegt. Ef þú hlustar af áhuga, þá er lík­ legt að hann muni tala aftur um það sem þú sýndir áhuga. Ég hvet þig til þess að skoða mismunandi aðferðir til þess að skapa dýpra samtal til dæmis spurningar, leiki og spil (dr. google getur komið að góðum notum þarna). Ein­ faldar spurningar eins og „hvað myndirðu taka með þér á eyðieyju?“, „hvenær hefur þú orðið hræddastur í lífinu?“, „ef þú ættir eina ósk, hver væri hún?“. Svona spurningar geta kallað á um­ ræðu sem þið hafið aldrei átt. Finna sameiginleg áhugamál Annað gæti reynst ykkur vel, en það er að skoða ykkar sameiginlega áhuga betur. Getur verið að maki þinn sé alls ekki leiðinlegur, heldur hafi bara önnur áhugasvið en þú? Þarna er hægt að lyfta grettistaki. Fólk getur sam­ einast svo mikið í gegnum sameiginleg áhugamál og í nútíma samfélagi er svo ótrú­ lega margt í boði að það getur næstum háð fólki. Nú veit ég ekki hvort þið eigið börn en oft geta foreldr­ ar sameinast um áhuga sinn á þeim og umræðuefnin á til dæmis stefnumótum oft verið um hvað þau eru frábær. Það getur ekki skaðað neinn. Aft­ ur á móti sýnir þessi barna­ umræða okkur að það sem fólk á sameiginlegt dýpkar samtalið og færir fólk nær hvort öðru. Það er því ekki að ástæðulausu að pör kaupa sér stundum útivistarfatnað í stíl og byrja að stunda stífar göngur, golf, skíði eða aðra útivist, þegar börnin flytja að heiman. Bæði gerir fólk meira saman og það hefur eitthvað að tala um. Getið þið fundið ykkur eitthvað nýtt og sameiginlegt sem þið gerið saman, skapar umræðu og færir ykkur meiri gleði? Það er að minnsta kosti til mikils að vinna. Að lokum, við erum mis­ opin. Sumir spjalla stans­ laust, aðrir hlusta meira og hafa minni þörf fyrir að setja allt í orð. Ef við værum öll eins hvað þetta varðar þá væri stanslaust fuglabjarg umhverfis okkur. Kannski þurfið þið parið að njóta þagnarinnar betur? Kannski leynist ykkar lausn í því að gera meira og tala minna? Kannski þurfið þið að vinna meira í tengslunum ykkar á milli svo þið njótið betur sam­ veru við hvort annað? Eitt er víst, ef eitthvað af þessu virkar þá leyfi ég mér að fullyrða að þið verðið bæði glaðari, hamingjusam­ ari og skemmtilegri. Góða skemmtun. n Við hvetjum lesendur til að senda spurningar og vangaveltur sínar til Kristínar í tölvupósti á: hjonabandssaela@gmail.com. Spurningunum verður svo svarað hér í Fjölskylduhorninu, að sjálf- sögðu nafnlaust og í fullum trúnaði. 30 FÓKUS Fjölskylduhornið Kristín Tómasdóttir hjónabandsráðgjafi svarar spurningum lesenda um málefni er varða fjölskylduna, börnin og ástina í Fjölskylduhorni DV. Að þessu sinni svarar Kristín spurningu lesanda sem er kominn með nóg af maka sínum. MÉR LEIÐIST MAKINN MINN Sérfræðingur svarar MYND/GETTY 30. OKTÓBER 2020 DV Fólk getur sameinast svo mikið í gegnum sameiginleg áhugamál...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.