Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2020, Qupperneq 30
Ég hef ekki þorað að orða þessa spurningu við nokkurn mann og
veit ekki alveg hvernig ég á
að koma henni í orð öðruvísi
en svona: Mér finnst makinn
minn leiðinlegur. Hann er
góður, hlýr, duglegur og allt
sem flestir myndu óska sér.
Við eigum bara mjög sjaldan
djúpar og innihaldsríkar
samræður. Oft talar hann
um eitthvað sem mér finnst
óáhugavert, ef hann á annað
borð talar. Ef við förum út að
borða þá koma vandræða-
legar þagnir og ég get það
ekki mikið lengur. Mér finnst
ég svo vond að segja þetta
svona, en get ég gert eitt-
hvað til þess að þykja hann
skemmtilegri?
Þarf tvo til að
bæta samband
Sælar. Við verðum að vera
sammála um að það gengur
ekki til lengdar að þykja maki
sinn leiðinlegur. Þú nefnir
samt að það sé margt sem þú
kannt verulega að meta við
hann og það eru allt breytur
sem skipta miklu máli, til
dæmis góður, hlýr og dug
legur. Ég sé því ekkert því til
fyrirstöðu að þú/þið getið gert
ýmislegt til þess að eiga dýpri
og innihaldsríkari samræður
og notið þess meira að spjalla
saman.
Í parsambandi er vandmeð
farið að taka annan aðilann út
fyrir sviga, það er að segja að
láta hann laga sig og þá geti
sambandið orðið gott. Það
þarf yfirleitt alltaf tvo til þess
að gera samband betra og þar
eruð þið engin undantekning.
Lítill tími fyrir nánd
Það getur verið áhugavert
að skoða ykkar „vanda“ út
frá ykkar tengslum, ykkar
hlustun og ykkar áhuga
sviði. Því sterkari tengsl við
fólk, því áhugaverðara og
skemmtilegra getur okkur
þótt það.
Skýrasta dæmið, nokkuð
sem mörg pör kannast við,
lýsir sér þannig að þegar par
hefur fjarlægst, hist lítið,
haft lítinn tíma fyrir nánd
og hvort annað, þá þykir því
sömuleiðis minna hvoru til
annars koma. Þetta er eitt
hvað sem margir ungbarna
foreldrar kannast við. Allt í
einu fara öll smáatriði í taug
arnar á fólki, hvernig hún
raðaði í uppþvottavélina eða í
hvaða föt hann klæddi krakk
ann í morgun. Þegar öllu er á
botninn hvolft, þá kemur í ljós
að það er bara langt síðan for
eldrarnir höfðu tíma til þess
að vera par. Undir slíkum
kringumstæðum verður
allt erfiðara og leiðinlegra.
Hvernig er staðan á ykkur
þarna? Áttuð þið sterkari
tengsl og þá fannst þér hann
ekki svona leiðinlegur? Breyt
ist það frá degi til dags hvort
þér þyki samtöl hans áhuga
verð? Getur verið að með því
að setja fókusinn á nándina
ykkar á milli þá verði sam
tölin dýpri?
Mikilvægt að hlusta
Hlustun er gríðarlega mikil
vægur þáttur í parsambandi
og í hlustun felst svo ótrú
lega margt. Í rauninni er
góð hlustun tækni sem fólk
er misfært í að tileinka sér.
Sumir eiga auðvelt með að
gera tvennt til dæmis hlusta
og elda mat, aðrir þurfa að
einbeita sér meira að hlustu
ninni. Hvað hefur þú reynt
varðandi hlustun þegar þú
hlustar á manninn þinn? Get
ur verið að hann finni hvað
þér finnst hann leiðinlegur í
gegnum lélega hlustun, verði
óöruggur og fari að tala um
hluti sem hann er öruggur
með að ræða? Óöryggi fram
kallar oft það leiðinlegasta í
fólki. Þó þú segir að þú hafir
ekki þorað að orða þennan
vanda við nokkurn mann,
þá er meira en líklegt að
maðurinn þinn viti nákvæm
lega hvað þér finnst. Að
hann skynji það einfaldlega
á hlustun þinni.
Skapa dýpra samtal
Jákvæð styrking virkar allt
af betur en neikvæð styrking.
Í því felst að þú getur styrkt
skemmtilegt samtal milli þín
og maka. Með því að sýna já
kvæð viðbrögð þegar hann
talar um það sem þér þykir
skemmtilegt, í stað þess að
þú sýnir honum til dæmis
svip þegar hann talar um það
sem þér þykir leiðinlegt. Ef
þú hlustar af áhuga, þá er lík
legt að hann muni tala aftur
um það sem þú sýndir áhuga.
Ég hvet þig til þess að skoða
mismunandi aðferðir til þess
að skapa dýpra samtal til
dæmis spurningar, leiki og
spil (dr. google getur komið
að góðum notum þarna). Ein
faldar spurningar eins og
„hvað myndirðu taka með
þér á eyðieyju?“, „hvenær
hefur þú orðið hræddastur
í lífinu?“, „ef þú ættir eina
ósk, hver væri hún?“. Svona
spurningar geta kallað á um
ræðu sem þið hafið aldrei átt.
Finna sameiginleg
áhugamál
Annað gæti reynst ykkur
vel, en það er að skoða ykkar
sameiginlega áhuga betur.
Getur verið að maki þinn sé
alls ekki leiðinlegur, heldur
hafi bara önnur áhugasvið en
þú? Þarna er hægt að lyfta
grettistaki. Fólk getur sam
einast svo mikið í gegnum
sameiginleg áhugamál og í
nútíma samfélagi er svo ótrú
lega margt í boði að það getur
næstum háð fólki.
Nú veit ég ekki hvort þið
eigið börn en oft geta foreldr
ar sameinast um áhuga sinn
á þeim og umræðuefnin á til
dæmis stefnumótum oft verið
um hvað þau eru frábær. Það
getur ekki skaðað neinn. Aft
ur á móti sýnir þessi barna
umræða okkur að það sem
fólk á sameiginlegt dýpkar
samtalið og færir fólk nær
hvort öðru. Það er því ekki
að ástæðulausu að pör kaupa
sér stundum útivistarfatnað í
stíl og byrja að stunda stífar
göngur, golf, skíði eða aðra
útivist, þegar börnin flytja
að heiman. Bæði gerir fólk
meira saman og það hefur
eitthvað að tala um. Getið þið
fundið ykkur eitthvað nýtt og
sameiginlegt sem þið gerið
saman, skapar umræðu og
færir ykkur meiri gleði? Það
er að minnsta kosti til mikils
að vinna.
Að lokum, við erum mis
opin. Sumir spjalla stans
laust, aðrir hlusta meira og
hafa minni þörf fyrir að setja
allt í orð. Ef við værum öll
eins hvað þetta varðar þá
væri stanslaust fuglabjarg
umhverfis okkur. Kannski
þurfið þið parið að njóta
þagnarinnar betur? Kannski
leynist ykkar lausn í því að
gera meira og tala minna?
Kannski þurfið þið að vinna
meira í tengslunum ykkar á
milli svo þið njótið betur sam
veru við hvort annað?
Eitt er víst, ef eitthvað af
þessu virkar þá leyfi ég mér
að fullyrða að þið verðið
bæði glaðari, hamingjusam
ari og skemmtilegri. Góða
skemmtun. n
Við hvetjum lesendur til að senda
spurningar og vangaveltur sínar til
Kristínar í tölvupósti á:
hjonabandssaela@gmail.com.
Spurningunum verður svo svarað
hér í Fjölskylduhorninu, að sjálf-
sögðu nafnlaust og í fullum trúnaði.
30 FÓKUS
Fjölskylduhornið
Kristín Tómasdóttir hjónabandsráðgjafi
svarar spurningum lesenda um málefni
er varða fjölskylduna, börnin og ástina
í Fjölskylduhorni DV. Að þessu sinni
svarar Kristín spurningu lesanda sem
er kominn með nóg af maka sínum.
MÉR LEIÐIST MAKINN MINN
Sérfræðingur svarar
MYND/GETTY
30. OKTÓBER 2020 DV
Fólk getur
sameinast
svo mikið
í gegnum
sameiginleg
áhugamál...