Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2020, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2020, Blaðsíða 28
Spennandi ráðgátur skemmtilegastar Gabriela Sif Ívarsdóttir Larota hefur unun af því að lesa bækur. Uppáhaldsbækurnar hefur hún lesið tíu og jafnvel fimmtán sinnum. Ráðgáta um rauðanótt eftir Ingibjörgu Möller Útgáfuár: 1998 Ráðgáta um rauðanótt er verð- launasaga eftir Ingibjörgu Möller. Þetta er önnur barnabók Ingi- bjargar. Sagan hlaut fyrstu verð- laun í samkeppni um barnabókar- handrit sem Bandalag kvenna í Reykjavík efndi til í tilefni 80 ára afmælis síns. Aðalsögupersón- urnar eru fjórar, tvær stelpur og tveir strákar. Annar strákurinn er alvarlega veikur. Hann fær leyfi til að fara með vinum sínum þremur út í Engey þar sem margt ævin- týralegt og óvænt ber við. Olla og Pési eftir Iðunni Steinsdóttur Útgáfuár: 1987 Olla og Pési er saga með ævin- týralegu ívafi. Hún gerist í Reykja- vík. Olla elst upp hjá þremur sér- vitringum sem búa á síðasta bændabýlinu innan borgarmark- anna. Vandamál kemur upp sem fullorðna fólkið á erfitt með að ráða við. Það stendur ekki eitt, því að Skáldi, Málfríður og hesturinn Rauður leggja sitt af mörkum. Molly Moon og dáleiðslubókin eftir Georgia Byng Útgáfuár: 2002 Molly Moon er lítil stelpa sem býr á munðarleysingjahæli ásamt fleiri flækingum. Þar fylgist hin grimmilega ungfrú Andersen grannt með krökkunum en Molly eyðir mestum tíma sínum í drauma heimi. Þegar Molly finnur dularfulla bók um dáleiðslu á bæjarbókasafninu, og lærir að koma fólki í trans, þá fara ævintýrin að gerast. Fyrst dá- leiðir hún alla sem koma á hæfi- leikakeppni, og þannig vinnur hún peningaverðlaunin sjálf. Þetta er fyrsta bókin í bókaseríu um Molly Moon. Hungurleikarnir eftir Suzanne Collins Útgáfuár: 2008-2010 Hungurleikarnir er fyrsta bókin í þessum vinsæla þríleik, önnur bók- in heitir Eldar kvikna og sú þriðja Hermiskaði. Sögumaður Hungurleikanna er hin sextán ára Katniss Everdeen. Hún býr í ríkinu Panem sem reis á rústum Norður-Ameríku. Kapítal, höfuðborg ríkisins, er umkringd tólf umdæmum og drottna valdhafar hennar yfir öllum í Panem. Hungur- leikarnir eru árlegur viðburður þar sem drengur og stúlka á aldrinum 12 – 18 ára frá öllum umdæmunum tólf eru tilnefnd í hlutaveltu, til að etja kappi í beinni útsendingu upp á líf og dauða. Reglurnar eru ein- faldar: Sá sigrar sem heldur lífi. Harry Potter og fanginn frá Azkaban eftir J.K. Rowling Útgáfuár: 1999 Harry Potter er galdramaður sem elst upp hjá móðursystur sinni og eiginmanni hennar, en þau eru muggar, fólk sem getur ekki galdrað. Þegar hann var 11 ára gamall var honum boðið að hefja nám við galdraskólann, Hogwarts. Þetta er þriðja bókin í einum vin- sælasta bókaflokki í heimi. Hættu- legasti fangi allra tíma, Sirius Black, gamall félagi Voldemorts, hefur sloppið úr hinu rammgerða fangelsi Azkaban. Sirius var send- ur í fangelsi fyrir að svíkja foreldra Harrys til Voldemorts. Þegar Harry loksins hittir Sirius kemst hann að því að ekki er allt sem sýnist. 28 FÓKUS G abriela Sif Ívarsdóttir Larota er í 6. bekk í Háteigsskóla í Reykja- vík. Hún æfir handbolta með Val, spilar á píanó og er mik- ill lestrarhestur. „Mér finnst skemmtilegast að lesa spennu- sögur um ráðgátur,“ segir hún. Hún er búin að sjá myndir eftir öllum Harry Potter-bók- unum sem hún hefur lesið, en finnst bækur almennt skemmtilegri en bíómyndir. „Í bókum ímyndar maður sér söguna betur og veit ekki hvernig persónurnar líta út.“ Gabriela Sif les á hverjum degi og finnst þægilegast að lesa í herberginu sínu. „Mér finnst best að lesa í rauðum stól sem mamma hélt fyrst að væri hræðilega óþægilegur en er síðan bara mjög þægi- legur,“ segir hún. Gabriela Sif á tvær yngri systur, Andreu Lind sem er átta ára nemandi við Ísaks- skóla og Júlíu Líf sem fæddist 12. ágúst. Hún er mjög stolt af systrum sínum en segist ekki lesa mikið fyrir þær því henni finnist best að lesa í hljóði. Flestar bækur sem henni finnst skemmtilegar vill hún lesa aftur og aftur og segir að allar bækurnar sem hún nefnir hér sem uppáhalds- bækurnar sínar hafi hún lesið tíu og jafnvel fimmtán sinnum hverja. „Oft ef ég er nýbúin að lesa bók þá les ég sömu bókina aftur. Stundum er ég að lesa tvær bækur í einu.“ n Umsögn: Þess bók gerist á Íslandi og úti í eyju sem heitir Engey. Hér er fjallað um týndan strák og bókin er mjög spennandi. Umsögn: Olla og Pési þurfa að leysa ráðgátu þegar ýmsir hlutir fara skyndilega að hverfa úr sumum búðum og þau reyna að finna þessa hluti. Ollu og Pésa er síðan rænt! Umsögn: Þessi bók er um stelpu sem lærir að dáleiða og lendir í alls konar skemmtilegum vand- ræðum. Umsögn: Þetta eru þrjár bækur sem gerast í framtíðinni og fjalla um stelpu sem á hræðilegt líf. Hún fer að keppa á Hungurleikunum þar sem bara einn lifir af. Mjög spenn- andi bækur. Umsögn: Þetta er mjög skemmti- leg bók. Hér hittir Harry Potter guðföður sinn og margt spenn- andi gerist. Gabriela Sif er mikill lestrarhestur og vill gjarnan lesa sömu bækurnar aftur og aftur. MYND/STEFÁN 30. OKTÓBER 2020 DV Erla Hlynsdóttir erlahlyns@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.