Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2020, Page 28
Spennandi
ráðgátur
skemmtilegastar
Gabriela Sif Ívarsdóttir Larota hefur unun af því
að lesa bækur. Uppáhaldsbækurnar hefur hún
lesið tíu og jafnvel fimmtán sinnum.
Ráðgáta um rauðanótt
eftir Ingibjörgu Möller
Útgáfuár: 1998
Ráðgáta um rauðanótt er verð-
launasaga eftir Ingibjörgu Möller.
Þetta er önnur barnabók Ingi-
bjargar. Sagan hlaut fyrstu verð-
laun í samkeppni um barnabókar-
handrit sem Bandalag kvenna í
Reykjavík efndi til í tilefni 80 ára
afmælis síns. Aðalsögupersón-
urnar eru fjórar, tvær stelpur og
tveir strákar. Annar strákurinn er
alvarlega veikur. Hann fær leyfi til
að fara með vinum sínum þremur
út í Engey þar sem margt ævin-
týralegt og óvænt ber við.
Olla og Pési
eftir Iðunni Steinsdóttur
Útgáfuár: 1987
Olla og Pési er saga með ævin-
týralegu ívafi. Hún gerist í Reykja-
vík. Olla elst upp hjá þremur sér-
vitringum sem búa á síðasta
bændabýlinu innan borgarmark-
anna. Vandamál kemur upp sem
fullorðna fólkið á erfitt með að
ráða við. Það stendur ekki eitt, því
að Skáldi, Málfríður og hesturinn
Rauður leggja sitt af mörkum.
Molly Moon og dáleiðslubókin
eftir Georgia Byng
Útgáfuár: 2002
Molly Moon er lítil stelpa sem
býr á munðarleysingjahæli ásamt
fleiri flækingum. Þar fylgist hin
grimmilega ungfrú Andersen
grannt með krökkunum en Molly
eyðir mestum tíma sínum í
drauma heimi.
Þegar Molly finnur dularfulla bók
um dáleiðslu á bæjarbókasafninu,
og lærir að koma fólki í trans, þá
fara ævintýrin að gerast. Fyrst dá-
leiðir hún alla sem koma á hæfi-
leikakeppni, og þannig vinnur hún
peningaverðlaunin sjálf.
Þetta er fyrsta bókin í bókaseríu
um Molly Moon.
Hungurleikarnir
eftir Suzanne Collins
Útgáfuár: 2008-2010
Hungurleikarnir er fyrsta bókin í
þessum vinsæla þríleik, önnur bók-
in heitir Eldar kvikna og sú þriðja
Hermiskaði.
Sögumaður Hungurleikanna er
hin sextán ára Katniss Everdeen.
Hún býr í ríkinu Panem sem reis á
rústum Norður-Ameríku. Kapítal,
höfuðborg ríkisins, er umkringd
tólf umdæmum og drottna valdhafar
hennar yfir öllum í Panem. Hungur-
leikarnir eru árlegur viðburður þar
sem drengur og stúlka á aldrinum
12 – 18 ára frá öllum umdæmunum
tólf eru tilnefnd í hlutaveltu, til að
etja kappi í beinni útsendingu upp
á líf og dauða. Reglurnar eru ein-
faldar: Sá sigrar sem heldur lífi.
Harry Potter
og fanginn frá Azkaban
eftir J.K. Rowling
Útgáfuár: 1999
Harry Potter er galdramaður sem
elst upp hjá móðursystur sinni
og eiginmanni hennar, en þau
eru muggar, fólk sem getur ekki
galdrað. Þegar hann var 11 ára
gamall var honum boðið að hefja
nám við galdraskólann, Hogwarts.
Þetta er þriðja bókin í einum vin-
sælasta bókaflokki í heimi. Hættu-
legasti fangi allra tíma, Sirius
Black, gamall félagi Voldemorts,
hefur sloppið úr hinu rammgerða
fangelsi Azkaban. Sirius var send-
ur í fangelsi fyrir að svíkja foreldra
Harrys til Voldemorts. Þegar Harry
loksins hittir Sirius kemst hann að
því að ekki er allt sem sýnist.
28 FÓKUS
G abriela Sif Ívarsdóttir Larota er í 6. bekk í Háteigsskóla í Reykja-
vík. Hún æfir handbolta með
Val, spilar á píanó og er mik-
ill lestrarhestur. „Mér finnst
skemmtilegast að lesa spennu-
sögur um ráðgátur,“ segir hún.
Hún er búin að sjá myndir
eftir öllum Harry Potter-bók-
unum sem hún hefur lesið,
en finnst bækur almennt
skemmtilegri en bíómyndir.
„Í bókum ímyndar maður
sér söguna betur og veit ekki
hvernig persónurnar líta út.“
Gabriela Sif les á hverjum
degi og finnst þægilegast að
lesa í herberginu sínu. „Mér
finnst best að lesa í rauðum
stól sem mamma hélt fyrst að
væri hræðilega óþægilegur
en er síðan bara mjög þægi-
legur,“ segir hún.
Gabriela Sif á tvær yngri
systur, Andreu Lind sem er
átta ára nemandi við Ísaks-
skóla og Júlíu Líf sem fæddist
12. ágúst. Hún er mjög stolt af
systrum sínum en segist ekki
lesa mikið fyrir þær því henni
finnist best að lesa í hljóði.
Flestar bækur sem henni
finnst skemmtilegar vill hún
lesa aftur og aftur og segir
að allar bækurnar sem hún
nefnir hér sem uppáhalds-
bækurnar sínar hafi hún lesið
tíu og jafnvel fimmtán sinnum
hverja. „Oft ef ég er nýbúin að
lesa bók þá les ég sömu bókina
aftur. Stundum er ég að lesa
tvær bækur í einu.“ n
Umsögn: Þess bók gerist á Íslandi
og úti í eyju sem heitir Engey. Hér
er fjallað um týndan strák og
bókin er mjög spennandi.
Umsögn: Olla og Pési þurfa að
leysa ráðgátu þegar ýmsir hlutir
fara skyndilega að hverfa úr
sumum búðum og þau reyna að
finna þessa hluti. Ollu og Pésa er
síðan rænt!
Umsögn: Þessi bók er um stelpu
sem lærir að dáleiða og lendir í
alls konar skemmtilegum vand-
ræðum.
Umsögn: Þetta eru þrjár bækur
sem gerast í framtíðinni og fjalla
um stelpu sem á hræðilegt líf. Hún
fer að keppa á Hungurleikunum þar
sem bara einn lifir af. Mjög spenn-
andi bækur.
Umsögn: Þetta er mjög skemmti-
leg bók. Hér hittir Harry Potter
guðföður sinn og margt spenn-
andi gerist.
Gabriela Sif er mikill lestrarhestur og vill gjarnan lesa sömu bækurnar aftur og aftur. MYND/STEFÁN
30. OKTÓBER 2020 DV
Erla
Hlynsdóttir
erlahlyns@dv.is