Fjölrit RALA - 06.11.1978, Side 47

Fjölrit RALA - 06.11.1978, Side 47
42 . Væntanlega verður samin og gefin út reglugerð við lög þessi árið 1978. Ætti þá starfsemi Fóðureftirlits ríkisins að geta komizt í fastari skorður og geta náð tilgangi sínum með til- komu framkvæmanlegra starfsreglna, en bæði lögin frá 1968 og þó enn frekar reglugerðin frá 1974 eru í mörgum atriðum óviðunandi. Á árinu voru rannsökuð 317 sýni af fóðurblöndum. Nokkuð er um, að samsetning þeirra sé breytileg, og sannar það nauðsyn eftirlits. 168 sýni af graskögglum voru efnamæld. Endurskoðun á reglum um mat og flokkun á framleiðslu graskögglaverksmiðjanna stendur yfir, og er þess að vænta, að framleiðsla þeirra árið 1978 verði metin og flokkuð eftir nýjum reglum. GRÓÐURRANNSÓKNIR OG GRÖÐURKORTAGERÐ. Rannsóknir á þessu sviði skiptust árið 1977 í eftirfarandi meginverkefni: 1. gróður-og jarðakortagerð á láglendi og í byggð. 2. gróðurmælingar, 3. áburðartilraunir á úthaga, 4. tegunda-og stofnaprófanir til landgræðslu, 5. tilraunir með bindiefni, 6. rannsóknir á Grænlandi, 7. útgáfustarfsemi. 1. Gróðurkortagerð. Unnið var að því jöfnum höndum að kortleggja gróður afrátta í mælikvarða 1:40.000 og gróður og ræktunarhæfni í byggð í 1:10.000 og 1:20.000. Einkum var unnið að þessu verkefni á eftirtöldum svæðum: Melrakkasléttu, Axarfirði og Kelduhverfi, Suður-Þing- eyjarsýslu austan Skjálfandafljóts, Kjósarsýslu og Árnessýslu. Auk þess var unnið að gróðurkortagerð fyrir Orkustofnun vegna hugsanlegra virkjanaframkvæmda austan Snæfells. Ekki var unnt að sinna öllum þeim beiðnum, sem borizt hafa um kortagerð frá sveitarfélögum, einstaklingum og öðrum aðilum, en slxkum beiðnum fer fjölgandi með hverju ári.

x

Fjölrit RALA

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.