Fjölrit RALA - 06.11.1978, Blaðsíða 55
50.
Sáð var til rabarbara frá 19 stöðum víðs vegar að úr
heiminum í því skyni að leita að uppskerumiklum afbrigðum.
Verður sárstaklega leitað að einstaklingum með lágt hlutfall
oxalsýru í safanum.
FRÆRÆKT.
Unnið er samkvæmt áætlun, sem gerð var 1975. Á árinu var
sáð til fræræktartilrauna, þar sem könnuð eru áhrif ýmissa rækt-
unarþátta, svo sem sáðmagns, raðbils og áburðar á fræsetu. Sáð
var til stórrar samnorrænnar tilraunar í frærækt, sem skipulögð
var af vinnuhópi í frærækt á vegum N.J.F. í tilrauninni eru 11
afbrigði af vallarsveifgrasi og 9 stofnar af túnvingli, og var
þeim sáð til fræræktar á ýmsum stöðum á öllum Norðurlöndum. Á
tilraunastöðinni að Sámsstöðum var tilraunin lögð út á moldar-
jarðveg og sandjarðveg, og tókst sáningin vel. Markmið tilraun-
arinnar er að kanna, hvaða umhverfisþættir eru mikilvægastir við
ræktun fræs af norðlægum stofnum grasa, og komast að því, hvað
veldur því, hve illa hefur gengið að rækta þá til fræs.
Á sandjarðvegi virðist mega gera ráð fyrir allsæmilegri
uppskeru af vallarsveifgrasi þegar á fyrsta ári eftir sáningu.
Túnvingullinn er seinni til. Stefnt er að þv£ með tilraunum að
finna ræktunaraðferðir, sem breyti þessu þannig, að fræuppskera
fáist þegar árið eftir sáningu.
Á árinu var uppskorið fræ af litlum fjölgunarreitum af
vallarsveifgrasi og túnvingli auk nokkurra minni háttar tegunda.
Fengust um 30 kg af vallarsveifgrasi og 80 kg af túnvingli, og
verður þetta fræ éinkum notað í aukna frærækt. Alls hefur nú
verið sáð í um 12 hektara lands til fræræktunar. í mestan hluta
þessa svæðis var sáð túnvingli 1976, og fyrsta uppskera verður
því tekin sumarið 1978.
Haldið var áfram við að bæta aðstöðu til frævinnslu að til-
raunastöðinni að Sámsstöðum. Á árinu barst fræhreinsunar- og
flokkunartæki, og er nú stöðin brátt vel í stakk búin til vinnslu
stofnfræs. Gefi niðurstöður þeirra tilrauna, sem nú er unnið að,
tilefni til mikillar fræræktar, verður að ráðast í kaup stór-
virkari uppskeru-og vinnslutækja.