Fjölrit RALA - 20.01.1979, Blaðsíða 9
-3-
II. KARTÖFLUR Á KORPU ÁRIN 1973-1978.
Skýrslur þær sem hér birtast eru niðurstöður nokkurra athugana
og tilrauna á Korpu undanfarin ár. Umfangsmestar eru tilraunir þar
sem uppskera ýmissa afbrigða er borin saman. Greinilegt er, að afbrigðið
Gullauga gefur einna mesta uppskeru en afbrigðið T-67-42-89, 58-4-11,
Sequoia, Helga,1730 Chieftain, Alaska Frostless og Evergood eru einnig
uppskerumikil.
í sambandi við afbrigðatilraunirnar hefur uppskera, annars vegar undir
glæru plasti og hins vegar án plastyfirbreiðslu, verið borin saman. 1
öllum tilfellum er uppskera án plastyfirbreiðslu u.þ.b. helmingur af uppskeru-
magni undir plastyfirbreiðslu, ætla má því að óhætt sé að hvetja til
aukinnar "plastræktunar" kartaflna t.d. þar sem land er takmarkað og lítill
eða enginn vélakostur tiltækur við ræktunina.
Árið 1975 var í gangi tilraun með stærð útsæðiskartaflna. Stærstu
útsæðiskartöflurnar 50 gr kartöflur, gáfu mestu uppskeru. Þetta vekur þá
spurningu hvort algengasta útsæðisstærðin 30-40 gr kartöflur sé ekki of
smá-
Árið 1973 var fengið útsæði annars vegar úr Eyjafirði en hins vegar
frá Þykkvabæ í Rangárvallasýslu og borið saman uppskerumagn og gæði.
Enginn erfðafræðilegur grundvöllur er talinn fyrir því að uppskera fari
minnkandi ár frá ári ef útsæði er notað úr eigin garði en ýmsir ræktendur
sunnanlands telja að svo sé og endurnýja því útsæði sitt með jöfnu
árabili með útsæði úr Eyjafirði. Tilraunirnar sem framkvæmdar voru á
árunum 1973-1977 var því ætlað að mæla þennan mismun ef einhver væri.
Nokkur uppskerumunur reyndist eftir uppruna á fyrsta ári en enginn eftir
það. Sama gilti ef um plastyfirbreiðslu var að ræða.
Ekkert verður um það sagt hvað veldur því að uppskera reynist meiri
af útsæði ræktuðu í Eyjafirði en í Þykkvabæ en getum má að því leiða að um
lægri sjúkdómstíðni sé að ræða en einnig hugsanlegt að mismunandi meðferð
og geymsla hafi sín áhrif.