Fjölrit RALA - 20.01.1979, Blaðsíða 48
-42-
á sama reit, en ekki mismun reita á sama klippingartíma.
Hinn 27. september 1976 var mæld uppskera á 5 reitum af 4 stofnum af
hávingli þar sem illgresi var ekki ríkjandi. Klipptar voru í hverjum reit
tvær rendur 1.5 x 0.10 m. Notaðar voru rafmagnsklippur og breidd þeirra
látin ráða breidd randarinnar. Tilgangur athugunarinnar var einkum að prófa,
hvort unnt væri að beita þessari aðferð við uppskerumælingar. Reyndist það
auðvelt.
Stofn Þ.e., hkg/ha þ.e. !
Löken 6.2 26.6
Rossa 6.0 26.2
Boris 6.2 28.6
Winge Pajbjerg (2 reitir) 10.9 30.1
Meöalfrávik uppskerumælinga af sama stofni (ft. = 6 ) 1.22.
Winge Pajbjerg sker sig á margan hátt úr, en ýmislegt bendir til, að
þar hafi rýgresi verið sáð í staö hávinguls.
Sumarið 1977 kom í ljós, að tilraunalandið var mjög misjafnt og að
frjósemismunurinn skáskar allar blokkir. Framan í barði, sem liggur skáhallt
gegnum allar blokkirnar, er mikil gróska, sem nær til 2-3 reita í hverri
blokk. Norðaustan barðsins gengur landið yfir í harðan mel. Þetta tilrauna-
land er einstaklega gott dæmi um það, sem varast ber við val á tilraunalandi,
en verður oft ekki séð, nema það sé valið, áður en það er unnið. Uppskeru-
tölurnar eins og þær birtast eru í rauninni mjög lítil-s virði. Verði talin
þörf á að keza saman uppskeru stofnanna mætti t.d. styðjast við einkunnagjöf
fyrir grósku frá 8.6.'77 sem sambreytistærð (covariate).
Uppskerumælingu var með öllu sleppt á einum reit af Pétursey 1978 vegna
áburðarvöntunar, en áburðarlausar rendur voru í fleiri reitum. Slegið var
skömmu eftir seinni klippingartímann.