Fjölrit RALA - 20.01.1979, Blaðsíða 39
-33-
íslensku afbrigðin spíruðu mjög illa.
Sáð var með sáðhjóli (1/3 fræ + 2/3 sagdgrjón).
Áburður í tilraun: Græðir I (14-18-18) 1,5 tonn/ha
Borax 20 kg/ha
Þann 29/6 voru rófurnar vökvaðar með Lindasect.
Sáðmagn og sáningaraðferðir á gulrófum, (433-76).
Tilraun þessi hafði þann tilgang að athuga sáningaraðferðir og hve
miklu af sagógrjónum ætti að blanda saman við.
Notuð voru fræ af Kálfafellsrófum frá Hvammi (1974). Tilraunin
mistókst vegna lélegrar spírunar fræs.
Samanburður á Hálegg og Omd 8932, (1976).
Afbrigðin voru ræktuð samhliða í tveimur röðum og voru u.þ.b. 20
plöntur í hvorri röð. Þann 15. október voru plönturnar metnar. Háleggur
var með þétt allvelþroskuð höfuð 1-2 kg að þyngd en Omd 8932 var varla farið
að mynda höfuð og ekkert söluhæft finnanlegt.
Ræktun á hnúðkáli, (1976).
Nokkrar plöntur voru ræktaðar í pottum inni í gróðurhúsi og plantað
út jafnhliða öðru káli seint í maí. Þann 15. október voru plönturnar
teknar upp. Þær voru jafnar og fallegar, þyngd þeirra frá 0,1 - 0,6 kg en
flestar á bilinu 0,4 - 0,5 kg.
Athugun á grænkálsafbrigði 08483, (1976).
Þann 15. október var kálið metið. Það var lágvaxið, óx þétt og var
velhrokkið og í góðu ásigkomulagi.
Matlaukur, Kepalök Stamme II frá Noregi,(1975).
Tilgangur tilraunarinnar var að athuga hvernig Kepalök Stamme II
frá Noregi spjaraði sig og kanna áhrif myrkvunar. Helmingurinn naut
fullrar daglengdar en hinn hlutinn 11-11 1/2 tíma daglengdar.
Sáð var inni í gróðurhúsi hinn 7/5. Landið var úðað með Reglone +
Trit'on þann 14/6 og svo gróðursett hinn 18/6.
Uppskera Fjöldi Meðalþungi
g lauka
ómyrkvaðir 539 208 2,6
Myrkvaðir 508 199 2,6