Fjölrit RALA - 10.03.1980, Page 24
Sámsstaðir 1979
-16-
Tilraunir nr. 487-77-78-79. Samnorrænar tilraunir í frærækt (RL 71).
I ár var nokkrum afbrigðum af túnvingli og vallarsveifgrasi
af norðlægum uppruna sáð á Geitasandi. Sáningin tókst nokkuð
vel en tilraunin spratt lítið vegna þurrka og kulda. Sáð var
29. maí. Eldri tilraunirnar voru ekki skornar upp í ár en reynt
var að fá hugmynd um fræsetu með þvx að telja stöngla á flatar-
einingu í hverjum reiti.
Tilraunin leit best út á Geitasandi efra og þar má ætla, að
uppskera hefði verið bærileg af flestum stofnum. Á Sámsstaðatúni
var fræseta einnig mikil, en reitir mjög spilltir af aðkomnu
grasi; einkum háliðagrasi. Á Geitasandi neðra voru reitir grisj-
aðir af kali og fræseta lítil. Sömu sögu er að segja af Þverár-
bökkum, en þar var fræseta lökust í tilrauninni.
Eftirtaldir stofnar báru flesta stöngla:
Túnvingull
Leik (norskur)
Jo. 0140 (finnskur)
0305 (íslenskur)
Fæsta stöngla báru:
Túnvingull
Wilton (sænskur)
Vallarsveifgras
Sving (sænskt)
03 (íslenskt)
Hja 20/14 (finnskt)
Vallarsveifgras
Fylking (sænskt)
Fræfjölgunarreitir frá árunum 1975-1978, sem slegnir voru
haustið 1979 (sáningarár í sviga).
1. Geitasandur hjá Gunnarsholti:
Túnvingull 0305 (1977) 2.500
Túnvingull 0305 (1976) 600 m2 o
Vallarsveifgras 9 línur (1976) 1.220 m2
Vallarsveifgras 7 línur (1977) 4.870 m2
Vallarsveifgras P 50 (1978) 1.500 m^
Fjallafoxgras 100 m^
Fjallasveifgras 100 m2
2. Geitasandur, land Sámsstaða:
Túnvingull 0301 (1978) 1.000 m^
Vallarsveifgras 10 línur (1978) 8.700 m2
3. Sámsstaðir:
Snarrót 500 m^
Vallarsveifgras P 07 10.540 m2
Vallarsveifgras P 20 6.200 m2
4. Þorvaldseyri:
Vallarfoxgras, safnað á skurðbakka 50 m2
Alls 37.880 m2