Fjölrit RALA - 15.11.1988, Blaðsíða 19
9
Sámsstaðir 1987
Tilraunir með aiaskalúpínu. (RL 437)
A. Sáning.
Allt fræ var smitað með Rhizobium og þurrkað með ”Faxe jordbrugskalk" fyrir sáningu
(sjá nánari aðferðalýsingu i jarðræktarskýrslunni frá 1986).
Gunnarsholti. Sáð var 21.-22.5. í 35,3 ha með "Nordsten" raðsáðvél. Sáðmagn var haft
breytilegt í tilraunaskyni, 3,40 - 4,25 kg/ha.
Skógasandi. Sáð var 21.5. í 15 ha með "Kværneland" raðsáðvél. Sáðmagn var 4 kg/ha.
í hluta akursins var sáð, eftir að kalkið hafði verið síað frá fræinu.
B. Sláttur.
Alls staðar var úðað með 0,33 kg/ha af diquatdibromid til þess að auka vökvatap úr
lúpínunni fyrir slátt.
Skógasandi. Diquatdibromid var úðað 5.8. með traktorsdælu (þrýstingur: 2,5 kg/sm2) frá
Þorvaldseyri. Slegið var 7.8. í norðan kalda og þurrki. Lítil sjáanleg áhrif
voru af úðuninni. Sláttuþreskivélin var stillt á mikið slagvindubil (28/30).
Blástur var lítill í byrjun en aukinn er á sláttinn leið og kom fræið æ
hreinna úr vélinni. Vélin var hrein að sjá að loknum slætti, en hann tók um
4 tíma og höfðu þá verið slegnir 0,7 ha.
Þurrefni úr vél: 65,7%
Uppskera (þurrkuð): 88 kg/ha
Hreint fræ: 66 kg/ha (74% af heildaruppskeru)
Slegið var of seint. Áætlað er, að helmingurinn af fræinu hafi verið farinn.
Korpu. Diquatdibromid var úðað 6.8. með traktorsdælu (þrýstingur: 2,0 kg/sm2) frá
Korpu. Slegið var 9.8. í logni og litlum þurrki. Lítil sjáanleg áhrif voru af
úðuninni. í byrjun var sláttuþreskivélin stillt á mikið slagvindubil (28/30) og
sýndist hluti belgjanna ganga aftur af vélinni án þess að opnast. Því var
slagvindubilið minnkað er á sláttinn leið niður í 18/30. Endað var á því að
slá lúpínu, sem ekki hafði verið úðuð, og var hún blautari en sú úðaða. Samt
gekk greiðlega að slá hana. Slátturinn tók 2 klst. og voru 0,4 ha slegnir.
Þurrefni úr vél: 50,0%
Uppskera (þurrkuð): 60 kg/ha
Hreint fræ: 59 kg/ha (98% af heildaruppskeru)
Fræhreinsunin tók 4 klst. 1 tilraunahreinsivél. Til samanburðar má nefna
að á u.þ.b. 48 klst. var handsafnað um 20 kg af lúpínufræi eða 0,42 kg á
klst. Samkvæmt munnlegum heimildum safnar einn maður 3-5 kg á dag.
Niðurstöður spírunarprófana eru í Korpuskýrslunni undir FRÆRANNSÓKNIR bls. 62.
C. Áburður, P og K á lúpinu til fræræktar.
Tilraunin var lögð út á lúpínuakra sem sá var til 1985 og fengu þá sem svarar 30
kg/ha af N, P og K. Borið var á 30 eða 50 kg/ha af P og K 27.5. 1987. Þessi áburðargjöf
hafði engin sjáanleg áhrif.