Fjölrit RALA - 06.12.1991, Page 12

Fjölrit RALA - 06.12.1991, Page 12
8 Niðurstöður Ýmsar upplýsingar um túnin Stœrð túna og lega Túnunum á hverjum bæ var skipt eftir aldri, meðferð og því hverju var sáð í þau, og hvert tún skoðað fyrir sig. Þó var reynt að skipta þeim ekki mikið upp þannig að spildum sem vom áþekkar að aldri, meðferð og fleiru var gjaman slegið saman. Þá vom litlir blettir sem höfðu verið unnir sér eða fengið óvenjulega meðferð oft ekki skoðaðir sérstaklega, heldur var þeim sleppt, en stærð þeirra þó reiknuð með nærliggjandi túni. Reynt var að hafa bróðurpart túnanna á hverjum bæ með í úttektinni til að fyrirbyggja skekkt úrtak. Eftirfarandi tafla gefur ýmsar upplýsingar um bæina: 1. tafla. Ýmsar upplýsingar um bæina. Kjós Mýrar Uppsv. Dalir Snæf. Meðalt. Fjarlægð frá sjó, km 3,9 5,5 30,7 7,8 3,2 10,8 Hæð yfír sjó, m 64 28 119 60 27 63 Meðalstærð, ha 2,9 4,9 4,0 4,1 4,6 4,0 Heildarfjöldi túna 50 43 44 41 23 Strandir ísafj. Barð. Meðalt. Fjarlægð ffá sjó, km 1,0 0,4 1,5 0,9 Hæð yfir sjó, m 21 19 27 22 Meðalstærð túna, ha 3,9 4,5 3,9 4,1 Heildarfjöldi túna 37 49 47 Fjarlægð frá sjó var mæld á korti og var miðað við beina loftlínu stystu leið til sjávar án tillits til þess hvort fjallgarðar væm á milli. Hæð yfir sjó var einnig áætluð út frá korti. Hvomg þessara mælinga er mjög nákvæm. Að meðaltali vom 6,4 tún skoðuð á hverjum bæ, minnst 2 en mest 12. Heildarstærð túna á hverjum bæ var rúmir 26 ha.

x

Fjölrit RALA

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.