Fjölrit RALA - 06.12.1991, Qupperneq 12
8
Niðurstöður
Ýmsar upplýsingar um túnin
Stœrð túna og lega
Túnunum á hverjum bæ var skipt eftir aldri, meðferð og því hverju var sáð í þau, og hvert tún
skoðað fyrir sig. Þó var reynt að skipta þeim ekki mikið upp þannig að spildum sem vom
áþekkar að aldri, meðferð og fleiru var gjaman slegið saman. Þá vom litlir blettir sem höfðu
verið unnir sér eða fengið óvenjulega meðferð oft ekki skoðaðir sérstaklega, heldur var þeim
sleppt, en stærð þeirra þó reiknuð með nærliggjandi túni.
Reynt var að hafa bróðurpart túnanna á hverjum bæ með í úttektinni til að fyrirbyggja skekkt
úrtak.
Eftirfarandi tafla gefur ýmsar upplýsingar um bæina:
1. tafla. Ýmsar upplýsingar um bæina.
Kjós Mýrar Uppsv. Dalir Snæf. Meðalt.
Fjarlægð frá sjó, km 3,9 5,5 30,7 7,8 3,2 10,8
Hæð yfír sjó, m 64 28 119 60 27 63
Meðalstærð, ha 2,9 4,9 4,0 4,1 4,6 4,0
Heildarfjöldi túna 50 43 44 41 23
Strandir ísafj. Barð. Meðalt.
Fjarlægð ffá sjó, km 1,0 0,4 1,5 0,9
Hæð yfir sjó, m 21 19 27 22
Meðalstærð túna, ha 3,9 4,5 3,9 4,1
Heildarfjöldi túna 37 49 47
Fjarlægð frá sjó var mæld á korti og var miðað við beina loftlínu stystu leið til sjávar án tillits
til þess hvort fjallgarðar væm á milli. Hæð yfir sjó var einnig áætluð út frá korti. Hvomg þessara
mælinga er mjög nákvæm.
Að meðaltali vom 6,4 tún skoðuð á hverjum bæ, minnst 2 en mest 12. Heildarstærð túna á
hverjum bæ var rúmir 26 ha.