Fjölrit RALA - 15.04.1995, Page 20
Túnrækt 1994
10
SPRETTA OG FÓÐURGILDI TÚNGRASA (132-1167).
Tilraun nr. 715-92. Spretta og fóðurgildi túngrasa, Korpu.
Vorið 1992 var sex grastegundum sáð í 12x15 m2 reiti (nema língresisreitimir vom 12x10 m2
vegna skorts á fræi) í tveimur blokkum. Eftirtöldum tegundum var sáð:
Vallarfoxgrasi
Vallarsveifgrasi
Háliðagrasi
Túnvingli
Snarrótarpunti
Língresi
Adda
Fylking
Oregon
ísl. 0305
úr Flóanum
N010 frá Svalöv
Sáð var 15. - 17. júní. Þann 14. júní var flagið úðað með örgresisefninu Roundup eftir
að hafa verið óhreyft í þrjár vikur og þann 11. ágúst var það úðað með díklórin kerfislyfi.
Reitimir vom allir kalkaðir fyrir sáningu með skeljasandi. Língresisreitimir fengu 2
tonn á ha, háliðagrasreitimir 6 tonn á ha, en aðrir reitir 4 tonn.
Reitirnir vom slegnir haustið 1992.
Vorið 1993 var borið á reitina 22.5. 100 kg N /ha í Græði 6. Jafnframt var fylgst með
byrjun sprettu og byijað að klippa reitina strax og það var hægt. Eftir það vom þeir klipptir
fjórða hvem dag frá 25.5. - 25.8. í hvert skipti vom klipptar tvær 2 m langar rendur í hverjum
reit, þroskastig var metið, hæð grasanna mæld og sýni tekin til efnagreininga. Allt illgresi var
hreinsað úr sýnunum. I þessar klippingar var helmingur hvers reits notaður, hinn helmingurinn
var meðhöndlaður eins og önnur tún og klipptur árið eftir. Allir reitir vom slegnir 25. 8. 1993.
Vorið 1994 var borið á reitina 16.5., 100 kg N/ha í Græði 6. Reitimir vom svo klipptir
fjórða hvem dag frá 21.5. - 29.8. Þann 29. júní var slegin 2 m breið spilda gegnum hvem
tilraunareit og borið á hana sem svarar 50 kg/ha í Græði 6. Á þeim spildum var endurvöxtur
klipptur áttunda hvem dag frá 12.7. - 30.9.
Þann 30.9. var öll tilraunin slegin.