Fjölrit RALA - 15.04.1995, Blaðsíða 39
MEINDÝR í GRASRÆKT (134-9913)
Athuganir á mítlum í túnum.
29
Kal o. fl. 1994
Þann 24/5 hófst söfnun á mítlasýnum á hæðardragi sunnarlega á Miðmýri (á sömu slóðum
og stöð 2 var sumarið 1993). Á túnið hafði verið borin mykja 26. október og aftur 2.
desember 1993, og var mykjan greinileg um vorið. Borið var á tilraunina 24/5. Gróður
var nokkuð þyrrkingslegur með 20% vallarfoxgrasi og 80% vallarsveifgrasi (Holt).
Nokkuð var um kalskellur á svæðinu og sáust mítlar umhverfis kalskellumar þegar upp úr
20. maí. Svo sem áður í mítlatilraunum, þá reyndist tilraunalandið fremur ójafnt og
mítlarnir dreifðu sér ójafnt á svæðið. Var skipulögð sláttutímatilraun með þremur
sláttutímum (29/6, 11/7 og 25/7, endurvöxtur 8/8) og þremur endurtekningum, þar sem
kanna átti áhrif úðunar. Reitastærð var 2 x 10 m. Mítlasýnum var safnað á 3-4 daga fresti
allt frá vori og fram á haust. Að kvöldi 16. júní voru mítlar áberandi og var þá annar hver
reitur úðaður með Permasect (10 ml/10 1). Var þá logn og mítlar uppi alls staðar. Aðeins
dropaði skömmu eftir úðunina.
Þann 16. júní var gert mat á kali og mítlaskemmdum og mítlaskemmdir voru einnig
metnar við fyrri slátt.
Kal % 16/6
Skemmdir % 16/6
Skemmdir (0-10)
við 1. . slátt
Sláttutími 29/6 11/7 25/7 Mt. 29/6 11/7 25/7 Mt. 29/6 11/7 25/7 Mt.
Úðað 11 9 8 9,3 10 13 10 11,1 1,3 2,3 1,5 1,72
Ekki úðað 6 11 8 8,6 7 13 12 10,6 2,3 3,2 4,8 3,44
Meðaltal 8 10 8 8 13 11 1,8 2,7 3,2
Staðalsk. mismunarins
Úðun 3,85 3,42 1,27
Sláttutími 3,78 3,23 1,01
Uppskera þe. hkg/ha
Sláttutími 29/6 1. sláttur 11/7 25/7 29/6 2. sláttur 11/7 25/7 29/6 Alls 11/7 25/7
Úðað 25,4 36,6 43,4 8,8 5,4 2,0 34,4 42,0 45,5
Ekki úðað 27,0 32,7 38,9 9,4 6,9 1,5 36,4 39,6 40,4
Meðaltal 26,2 34,6 41,1 9,1 6,9 1,5 35,3 40,8 42,9
Staðalskekka mismunarins Úðun Sláttutími 2,29 2,67 0,80 2,42 2,28 3,17
Við annan sláttutíma (11/7) var áberandi á reitum sem slegnir höfðu verið 29/6 að
blaðendar á endurvextinum voru visnir þar sem ekki hafði verið úðað en slík einkenni
sáust ekki á úðuðum reitum. Einnig virtist meira vallarfoxgras þar sem úðað hafði verið.