Fjölrit RALA - 15.05.1996, Blaðsíða 12

Fjölrit RALA - 15.05.1996, Blaðsíða 12
10 6. ÚRBEINING OG SÝNATAKA ÚR SKROKKUM Hægri helmingur skrokkanna var notaður í nýt- ingarmælingar og til sýnatöku. Hann var úrbein- aður samkvæmt aðferðum Slagteriernes Forskn- ingsinstitut (Christensen, B., 1986). Vinstri helm- ingurinn var úrbeinaður á KEA og þyngd vöðva, beina og fitu skráð fyrir hvern skrokk. Hægri helmingarnir voru úrbeinaðir á þriðjudagsmorgni. Eftirfarandi mælingar voru gerðar: - Vigtun á fjórðungum. - Lundir losaðar frá læri og hryggur tekinn af pístólu. - Hrygg skipt í spj aldhrygg og framhrygg með þverskurði framan við aftasta rif. - Þverskurðarmælingar á fremri hluta spjald- hryggs. G I - Þykkt fitu ofan á langa hryggvöðva. G II - Lengd þverskurðar hryggvöðva. G III - Breidd þverskurðar hryggvöðva. - Ljósmyndun á þverskurði hryggvöðva. - Úrbeining áöllumstykkjum. Vöðvar, hakk, vinnsluefni, bein og fita vigtuð. Grófsnyrtum og snyrtum vöðvum er lýst í ís- lensku kjötbókinni (Guðjón Þorkelsson og Oli Þór Hilmarsson, 1994). Við útreikninga á pró- sentum var miðað við þurrvigt helminga sem var vigtin á skrokkunum við úrbeiningu. Verðmæti kjöts var reiknað út frá eftirfarandi verði á úrbeinuðu kjöti: Lundir og hryggvöðvi 1500 kr/kg Innralæri 1200 kr/kg Lærtunga og gúllas 700 kr/kg Aðrirvöðvar lOOOkr/kg Hakk og vinnsluefni 500 kr/kg Með því að margfalda saman prósentur þess- ara atriða og verð og leggja síðan saman og deila í með 100 fæst út það verð sem fæst fyrir úrbeinaðan skrokk í kr/kg skrokk. 7. EFNAMÆLINGAR OG BRAGÐPRÓFANIR Á K.IÖTI Snyrtur langi hryggvöðvi úr spjaldhrygg var vakúmpakkaður og tekinn frá til bragðprófana. Vöðvinn var látinn meyrna í kæli við 4 gráður fram á mánudag og síðan frystur við -24 stig. Meyrnunartími var því 10 dagar. Langi hrygg- vöðvi úr framhrygg, hluti innanlærisvöðva, gúllas, hakk og vinnsluefni var vakúmpakkað, fryst og tekið frá til efnagreininga. Til skynmats voru valdir og þjálfaðir upp 12 starfsmenn á Rala. Þeir gáfu síðan einkunnir fyrir bragð, meyrni, safa, þræði, aukabragð og heildaráhrif kjötsins eftir steikingu. Notaður var kvarði frá 10-90, þar sem 10 var mjög vont eða seigt og 90 mjög gott eða meyrt o.s.frv. ( Birgit Lundgren. Handbok i Sensorik, 1981). Vöðvarnir voru látnir þiðna í kæli við fjögurra stiga hita í tuttugu tíma og síðan skomir hálf- þiðnir í 2 cm jafnar sneiðar. Sneiðarnar er látnar þiðna í gegn og síðan matreiddar með steikingu á pönnu við 165 stiga hita þar til kjarnahitinn var 65 stig. Vöðvar tveggja nauta voru ekki bragðprófaðir því sýrustig var yfir 6,0 daginn eftir slátrun. Annað nautið var 400 kg holda- blendingur á 30% kjarnfóðri og hitt var 350 kg íslenskt naut á heyi. Þetta eru nautin sem slátrað var 13. janúar 1993. Prótein, kollagen, fita og aska var mæld í hverju sýni. Notaðar voru aðferðir efnarann- sóknastofu Rala (Guðjón Þorkelsson og Ragn- heiður Héðinsdótttir, 1991). 8. TÖLFRÆÐILEGT UPPGJÖR Eins og kom fram hér á undan þá drapst einn holdablendingur (þungafl. 450; fóðurfl. 0) á til- raunatímanum, svo að við uppgjörið voru notuð gögn um 18 íslenska kálfa og 17 blendinga. Við útreikningana var notað líkanið fyrir GLM fer- vikagreiningu í tölfræðiforritinu NCSS. I líkaninu voru þættirnir stofn, þungaflokkur, fóðurflokkur og öll tveggja þátta víxlhrif þessara þátta. I töflum eru gefin upp minnstu kvaðrata meðaltöl (least squares means) og staðalskekkja (standard er- ror) fyrir meðaltöl stofna (n= 18), nema annað sé tekið fram. Jafnframt eru gefin upp P-gildi fyrir áhrif stofna, þungaflokks og fóðurflokks og miða má við að munur milli viðkomandi meðaltala sé marktækur ef P-gildið er lægra en 0,05. Með reiknuðum aðhvarfslínum er gefíð upp staðal- frávik (VMSE) fyrir einstakar mælingar.

x

Fjölrit RALA

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.