Fjölrit RALA - 06.06.1998, Blaðsíða 34
Jarðvegslíf 1997
24
Jarðvegsdýr í túnum og úthaga (185-9913)
Flutningur ánamaðka í tún og úthaga.
Ánamaðkar, Stóráni (Lumbricus terrestris) var fluttur í Efstumýri (nýræktartún) og
Beitarhúsapart (úthaga). I túninu er vallarfoxgras en í úthaganum hefur verið plantað út greni.
Voru reknir niður 1 m2 stálrammar í 25 sm dýpt og settir 100 maðkar í hvem ramma, en tveir
rammar vora á hvorri spildu. Moldin var vökvuð og svolítill mosi settur ofaná. Hugmyndin er
að fylgjast með hvemig ánamöðkunum vegnar og hvort þeir hafi með tímanum uppskeraáhrif.
Áhrif áburðar á smádýralífið.
í síðustu skýrslu var gerð grein fyrir aðstæðum á þeim stað sem þessi athugun fór fram, en hún
var gerð á tilraun nr. 5-45 í landi Gróðrarstöðvarinnar á Akureyri. Enda þótt tilraunareitir séu
nokkuð stórir (7,07 x 7,07 m), má búast við að hreyfanlegri dýr skríði á milli reita. Þetta á þó
væntanlega ekki við um minni dýr svosem mordýr og mítla. Fallgildrar vora í miðjum reitum
einnar endurtekningar og var safnað frá 4. júní til 24. október 1996. Til að gefa samanburð á
milli tegundahópa er í næsta kafla sýndur heildarfjöldi sem safnaðist yfir söfnunartímann.
Áhrif ræktunar á smádýralífið.
Tegundagreiningu er lokið í smádýrasöfnun frá árinu 1996. Erling Ólafsson, Ingi Agnarsson
og Hálfdán Bjömsson liðsinntu við tegundagreiningu, en Bjami E. Guðleifsson sá annars um
tegundagreiningu og talningu. í síðustu skýrslu var einungis greint frá köngulóategundum sem
fundust.
Söfnunin á Möðravöllum stóð í heilt ár og samtals var safnað í 60 fallgildrar í einu yfir
sumarið og 6 yfir veturinn. Reynt var að greina alla einstaklinga skordýra til tegunda, en það
er langur listi. Til að gefa samanburð á milli dýrahópa verður hér einungis sýndur heildarfjöldi
sem safnaðist í einstökum ættum eða ættbálkum. Einnig era upplýsingar um heildarfjöldann í
tilraun nr. 5-45 (Áhrif áburðar á smádýralífið). Athugið að bæði vora fallgildrar færri (5) og
söfnunartíminn styttri í tilrauninni en í söfnuninni á Möðravöllum (60 að sumri, 6 að vetri).
Heildarfjöldinn var sem hér greinir:
Möðruvellir Tilraun nr. 5-45
Enchytraeidae (Pottormar) 154 28
Lumbricidae (Ánamaðkar) 427 124
Gastropoda (Sniglar) 94 10
Acarina (Mítlar)
Prostigmata (Flosmítlar) 21.514 2.151
Heterostigmata (Glermítlar) 9
Mesostigmata (Ránmítlar) 2.924 582
Cryptostigmata (Brynjumítlar) 16.309 1.730
Astigmata (Fitumítlar) 26.347 42
Araneae (Köngulær)
Gnaphosidae (Hagaköngulær) 10
Thomisidae (Krabbaköngulær) 7 1
Lycosidae (Hnoðaköngulær) 566 2
Liniphiidae (Voðköngulær) 4.987 274
Ungviði 21
Ophiliones (Langfætlur) 650 370
Collembola (Mordýr)
Hypogastruridae (Liðmor) 11.171 4.919
Onychiuridae (Pottamor) 1.720 5
Isotomidae (Stökkmor) 31.272 2.898