Fréttablaðið - 02.12.2020, Síða 29

Fréttablaðið - 02.12.2020, Síða 29
Skógarlind 1. Breytt deiliskipulag. Bæjarstjórn Kópavogs hefur samþykkt í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi fyrir lóðina Skógarlind 1. Í breytingunni felst að byggingarreitur breytist og hann breikkar um 1 m, þ.e. úr 32 m í 33 m. Í stað 3 og 4 hæða byggingar auk kjallara eins og fram kemur í gildandi deiliskipulagi er gert ráð fyrir að byggja 4 hæða byggingu auk kjallara. Hámarkshæð fyrirhugaðrar byggingar er óbreytt 41.0 m h.y.s. Heildarbyggingarmagn á lóð er jafnframt óbreytt miðað við gildandi deiliskipulag 12.200 m2. Gert er ráð fyrir um 350 bílastæðum á lóð þar af um 185 stæði í kjallara. Stærð bílakjallarans er áætluð 5.500 m2. Byggingarreitur bílastæðakjallara kemur fram á deiliskipu- lagsuppdrætti. Miðað er við 35 m2 húsnæðis á hvert bílastæði á lóð. Í tillögunni er gert ráð fyrir 60 hjólastæðum á jarðhæð hússins eða í sérstökum hjólaskýlum á lóð. Að öðru leyti gildir deiliskipulag af svæðinu Skógarlind – Lindir IV frá janúar 2007 með síðari breytingum. Tillagan er sett fram á uppdrætti í mkv. 1:1000 ásamt greinargerð og skýringarmyndum dags. 11. nóvember 2020. Ofangreind tillaga er aðgengileg á heimasíðu bæjarins, www.kopavogur.is . Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Athugasemdir og ábendingar skulu hafa borist skriflega til skipulags- og byggingardeildar Umhverfissviðs, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi eða á netfangið skipulag@kopavogur.is eigi síðar en kl. 15:00 föstudaginn 22. janúar 2021. Skipulagsstjóri Kópavogs Auglýsing um breytt deiliskipulag í Kópavogi kopavogur.is Suður Mjódd Á fundi skipulags- og samgönguráðs þann 11. nóvember 2020 og borgarráðs Reykjavíkur þann 19. nóvember 2020 var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Suður Mjóddar er varðar lóðina Álfabakka 4 sem felst í að skipta henni í tvær lóðir sem fengu þá heitin Álfabakki 4 og 6. Breytingin er tilkomin vegna vilyrðis um lóðarúthlutun fyrir starfsemi Garðheima í Breiðholti. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Jöfursbás 5 og 7 Á fundi skipulags- og samgönguráðs þann 11. nóvember 2020 og borgarráðs Reykjavíkur þann 19. nóvember 2020 var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Gufuness, áfangi 1, vegna lóðanna nr. 5 og 7 við Jöfursbás. Í breytingunni felst að lóðir stækka, byggingarmagn eykst, hámarksfjöldi íbúða verður skilgreindur, stærðir svalaganga og lágmarks salarhæð verði ekki takmörkuð umfram kvaðir byggingarreglugerðar, fallið verður frá skilmálum um að efstu hæðir þurfi að vera inndregnar og þess í stað verður heimilt að hafa húsin stölluð og að heimilt verði að svalir og útskot nái 2 m út fyrir byggingarreit nema að götu. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Kvosin, Landsímareitur Á fundi skipulags- og samgönguráðs þann 11. nóvember 2020 og borgarráðs Reykjavíkur þann 19. nóvember 2020 var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Kvosarinnar, Landsímareits. Í breytingunni felst að heimildum fyrir gerð kjallara og nýtingu efri hæða aðlægt Vallarstræti er breytt að hluta til, einnig er bætt við byggingareit fyrir sólstofu á 5. hæð. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Tillögurnar má einnig nálgast á skjá og tölvu í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15 frá 2. desember 2020 til og með 18. janúar 2021. Einnig má sjá tillögurnar á vefnum, www.reykjavik.is, skipulag í kynningu. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum við tillögurnar skal skila skriflega til skipulagsfulltrúa eða á netfangið skipulag@reykjavik.is, eigi síðar en 18. janúar 2021. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti. Reykjavík 2. desember 2020 Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur Skrifstofa borgarstjóra Skrifstofa borgarstjóra Borgarverkfræðingur Borgarverkfræðin ur Hagdeild Hagdeild Dagvist barna Dagvist barna Reykjavíkurborg Umhverfis- og skipulagssvið Auglýsing um tillögur að breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík Í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, eru hér með auglýstar tillögur að breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík. Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík, sími: 411 1111, www.reykjavik.is Kynning skipulagslýsingar vegna fyrirhugaðrar vinnu við deiliskipulag fyrir þann hluta þéttbýlis í Vogum, sem ekki er til deiliskipulag fyrir. Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga samþykkti þann 25. nóvember 2020 skipulagslýsingu vegna fyrirhugaðrar vinnu við deiliskipulag fyrir þann hluta þéttbýlis í Vogum, sem ekki er til deiliskipulag fyrir, skv. 2. mgr. 40. gr. skipu- lagslaga nr. 123/2010. Lýsingin er sett fram í greinargerð og má nálgast hana á heimasíðu sveitarfélagsins www.vogar.is/is/thjonusta/ skipulag/skipulag-i-kynningu . Skriflegum ábendingum við efni lýsingarinnar má skila til skrifstofu Sveitarfélagsins Voga, Iðndal 2, 190 Vogum, eða á netfangið skrifstofa@vogar.is eigi síðar en 28. desember 2020. Vogum, 2. desember 2020 F.h. bæjarstjórnar, Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri Auglýsing um skipulagsmál Deiliskipulagsmál Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru auglýstar deiliskipulagstillögur fyrir eftirfarandi deiliskipu- lagsverkefni: 1. Ármúli L145983 – Deiliskipulag fyrir gestahús. Skagafirði. Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykkti á fundi 26.11.2020, tillögu að deiliskipulagi fyrir Ármót L145983. Tillagan tekur til um 2.500m2 svæðis í landi Ármúla L145983. Fyrir er á svæðinu Íbúðarhús og bílskúr og tvö gestahús. Til stendur að bæta við 2 gestahúsum. Svæðið er skilgreint í gildandi aðalskipulagi sveitarfélagsins Skagafjarðar 2009-2021, sem landbúnaðarland. Aðkoma að svæðinu er um aðkomuveg af Sauðárkróksbraut. 2. Staðarhof L230392, deiliskipulag nýbýlis. Skagafirði. Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykkti á fundi 26.11.2020, tillögu að deiliskipulagi fyrir Staðarhof L230392. Tillagan tekur til um 24.ha nýbýlis úr landi Hafsteinsstaða. Svæðið sem um ræðir liggur ofan Sauðár- króksbrautar í landi Hafsteinsstaða og mun fá heitið Staðarhof. Deiliskipulagið tekur til byggingar íbúðarhúss, frístundahúss/gestahúss, reiðskemmu og vélageymslu. Svæðið er skilgreint í gildandi aðalskipulagi sveitarfélags- ins Skagafjarðar 2009-2021, sem landbúnaðarland. Að- koma að svæðinu er um aðkomuveg af Sauðárkróksbraut. Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Skagfirðingabraut 21, Sauðár- króki, á skrifstofutíma frá 9-16. Að auki er hægt að nálgast gögn á vefslóðinni http://www.skagafjordur.is Deiliskipulagstillögur nr. 1 og nr. 2, eru í auglýsingu frá 2. desember 2020 til 15. janúar 2021. Þeir aðilar sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir og eða ábendingar við tillögur. Frestur til að skila inn ábendingum/athugasemdum er til 15. janúar 2021. Athugasemdir og ábendingar skulu vera skriflegar og má afhenda á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Skagfirðinga- braut 21 Sauðárkróki, eða senda á netfangið runargu@skagafjordur.is Rúnar Guðmundsson skipulagsfulltrúi Sveitarfélagsins Skagafjarðar Sterk tengsl í íslensku atvinnulífi hagvangur.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.