Fréttablaðið - 02.12.2020, Page 30
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Ástkær eiginkona mín, stjúpmóðir,
dóttir og systir,
Lilja Dóra Kolbeinsdóttir
Hverfisgötu 72,
lést 26. nóvember.
Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í
Reykjavík 4. desember kl. 13.
Vegna aðstæðna verða einungis nánasta fjölskylda og
vinir viðstödd. Athöfnin verður í streymi sem nálgast má
á www.mbl.is/andlat. Þeim sem vilja minnast Lilju er bent
á UN Women Íslandi. Aðstandendur vilja þakka starfsfólki
kvenlækningadeildar og líknardeildar Landspítalans fyrir
hlýja og góða umönnun.
Nelson Vaz Da Silva
Arndís Amina Vas Da Silva
Sjöfn Gunnarsdóttir
Gunnar Kolbeinsson
Yndisleg eiginkona, móðir,
tengdamóðir, dóttir, tengdadóttir,
systir og mágkona,
Helga Ingólfsdóttir
byggingariðnfræðingur og
tækniteiknari,
Strýtuseli 3, Reykjavík,
lést í faðmi fjölskyldunnar á heimili sínu þann
14. nóvember. Útförin fer fram frá Árbæjarkirkju
föstudaginn 4. desember kl. 13. Vegna aðstæðna verða
aðeins nánustu aðstandendur viðstaddir en streymt
verður frá athöfninni á: youtu.be/5jqQfhftzMY
Sérstakar þakkir fær heilbrigðisstarfsfólk fyrir
einstaka umönnun og hlýju. Þeim sem vilja
minnast Helgu er bent á Kraft og Ljósið.
Arnar Guðmundsson
Þorri Arnarsson Marín Líf Gautadóttir
Óðinn Arnarsson Hildur Helgadóttir
Guðlaug Birna Hafsteinsdóttir Steinn Halldórsson
Ingólfur Helgi Matthíasson Sóley Birgisdóttir
Guðmundur Jóhannesson Bergljót Helga Jósepsdóttir
Jóhanna Steinsdóttir Þorkell Guðmundsson
Halldór Steinsson Camilla Mortensen
Hafsteinn Steinsson Elín K. Linnet
Heiða Rún Steinsdóttir Hugrún Ósk Bjarnadóttir
Rut Ingólfsdóttir Gísli Már Ágústsson
Máni Ingólfsson Gerða Arndal
Hrói Ingólfsson
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Jónína Stefánsdóttir
hjúkrunarfræðingur,
frá Purkugerði í Vopnafirði,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir
miðvikudaginn 25. nóvember.
Útförin fer fram frá Fossvogskapellu föstudaginn
4. desember kl. 15.00 að viðstöddum nánustu
aðstandendum. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Eirarholts.
Stefán Guðsteinsson Þóra M. Gísladóttir
Rósa Guðsteinsdóttir Ólafur Guðmundsson
Sigríður Guðsteinsdóttir Magnús Yngvi Jósefsson
Hallgrímur Guðsteinsson Karl Jóhann Guðsteinsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát okkar elskulegu móður,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Önnu H. Sigurjónsdóttur
Sóleyjarima 21,
Reykjavík.
Hrönn
Kristín
Bára
og fjölskyldur.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Áskell Bjarni Fannberg
Norðurbakka 7a,
Hafnarfirði,
lést á Landspítala
við Hringbraut þann 28. nóvember.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn
7. desember kl. 13.00. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu
verða aðeins nánasta fjölskylda og vinir viðstödd útförina.
Hægt verður að nálgast streymi á mbl.is/andlat
Þóra Kristjana Einarsdóttir
Einar Már Áskelsson Helga Rún Gunnarsdóttir
Eyþór Ingi Áskelsson Agnieszka Kolowrocka
Unnur Björk Áskelsdóttir Matthew Peter Abrachinsky
Áslaug Dögg Martin Pétur Hreiðar Sigurjónsson
og barnabörn.
Ástkær eiginkona mín, dóttir, móðir,
tengdamóðir og amma,
Margrét Björg Sigurðardóttir
Klukkuvöllum 26b,
Hafnarfirði,
lést á heimili sínu fimmtudaginn
26. nóvember í faðmi fjölskyldunnar.
Útför fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn
8. desember klukkan 13. Í ljósi aðstæðna verða einungis
nánustu aðstandendur viðstaddir. Athöfnin verður í
streymi sem nálgast má á www.mbl.is/andlát
Ingvar Geir Guðbjörnsson
Helga Baldursdóttir
Sigurbjörn E. Ingvarsson Silja Embla Þórisdóttir
Kristbjörg Helga Ingvarsdóttir Ellert Jósteinsson
Hjörtur Már Ingvarsson
barnabörn.Ástkær eiginmaður, faðir,
tengdafaðir og afi,
Halldór Þór Grönvold
aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ,
lést á Landspítalanum
18. nóvember.
Útför hans fer fram frá Grafarvogskirkju
7. desember kl. 13. Athöfninni verður streymt á
slóðinni youtu.be/Ezc9enwZ3PY og á mbl.is/andlat
Greta Baldursdóttir
Eva Halldórsdóttir Björgvin Ingi Ólafsson
Arnar Halldórsson
barnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
Ragnhildur Andrésdóttir
Ystu-Görðum,
lést á líknardeild Landspítalans í
Kópavogi þann 8. nóvember.
Útförin fer fram föstudaginn 4. desember
kl. 14.00 frá Borgarneskirkju að viðstöddum nánustu
aðstandendum. Streymt verður frá útförinni á slóðinni:
kvikborg.is. Sérstakar þakkir til HERU og líknardeildar fyrir
hlýju og góða umönnun.
Ölver Benjamínsson
Óskar Ölversson Þórunn Sigríður Þorsteinsdóttir
Benjamín Ölversson
Andrés Ölversson Þóra Sif Kópsdóttir
Björk Ben Ölversdóttir
Björgvin Ölversson Margrét Kolbeinsdóttir
ömmu- og langömmubörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamamma,
amma og langamma,
Helga Pálsdóttir
Snorrabraut 56B, eitt sinn búsett í
Birkilundi í Biskupstungum,
lést 12. nóvember sl. og fer útförin fram í
Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn
4. desember nk. kl. 15.00. Vegna aðstæðna verður einungis
nánasta fjölskylda viðstödd. Athöfnin verður í streymi á
beint.is/streymi/helgapalsdottir sem og á mbl.is/andlat.
Aðstandendur vilja þakka starfsfólki Landspítalans fyrir
hlýja og góða umönnun.
Gunnlaugur Ingvarsson Guðrún Edda Andradóttir
Auður Ingvarsdóttir
Mímir Ingvarsson Erna Bára Magnúsdóttir
Kjartan Ingvarsson Nathalie Simon
Sigurður Ólafur Ingvarsson
Ólöf Vala Ingvarsdóttir Helgi Áss Grétarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Það sem ég hef verið for-vitinn um er hvernig sam-skiptum manna og geir-fugla var háttað,“ segir Gísli Pálsson prófessor þegar undrast er að mann-
fræðingur hafi verið að rannsaka sögu
fugls. „Það er lítið vitað um háttu geir-
fuglsins, einstaka menn skriðu upp á
sker til að veiða hann en alla jafna var
hann fjarri mönnum. Stöku sinnum
sást hann á sjó. Hann kom í maílok
eða júníbyrjun og verpti einu eggi á
einhverju geirfuglaskeri. Svo fór hann
og synti um allt Norður-Atlantshaf
og hefur þar kannski fylgt sterkum
straumum.“
Gísli segir síðustu veiðar á geirfugli
aðallega hafa verið stundaðar vegna
markaðar fyrir fjaðrir þeirra, kjöt og
egg í Kaupmannahöfn. „Verðið var
orðið svo hátt sem fékkst fyrir þessar
afurðir því fuglunum hafði fækkað svo
mikið alls staðar. Ég komst í handrit í
bókasafni í Cambridge, þar voru viðtöl
sem tveir Bretar tóku við þá veiðimenn
sem fóru upp í Eldey 1844 og veiddu síð-
asta fuglinn – án þess að hafa hugmynd
um að tegundin væri þar með aldauða.
Veiðimennirnir lýsa geirfuglinum sem
stoltum, hann hafi allt að því boðið þá
Geirfuglinn var stoltur
Hrafnaþing Náttúrufræðistofnunar Íslands verður haldið í dag. Gísli Pálsson, prófessor
í mannfræði við Háskóla Íslands, flytur þar erindið Fuglinn sem gat ekki flogið.
„Saga síðasta geirfuglsins talar inn í samtímann þar sem tegundir eru að stráfalla,“
segir Gísli Pálsson, prófessor í mannfræði. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR ÁRNASON
velkomna upp á skerið, sem hver annar
höfðingi.“
Vegna COVID-19 verður erindi Gísla
í Náttúrufræðistofnun í dag eingöngu
f lutt í beinni útsendingu á Teams á
netinu. Það hefst kl. 15.15 og því lýkur
um kl. 16.00. gun@frettabladid.is
Verðið var orðið svo
hátt sem fékkst fyrir
þessar afurðir því fuglunum
hafði fækkað svo mikið alls
staðar.
2 . D E S E M B E R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R14 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT