Harmonikublaðið - 01.12.2017, Qupperneq 6
Afmælishátíð og dansleikir FHUR
Tveir dansleikir hafa farið fram í haust. Sá
fyrri var 14. október og var mæting með því
lakara sem sést hefur á fyrsta dansleik haustsins
hjá FHUR. Erlingur Helgason hóf dansleikinn
og þær Vigdís og Hildur Petra leystu hann
síðan af. Ballinu lauk svo Svenni Sigurjóns.
Meðleikarar voru eins og oft áður, Edwin
Kaaber á gítar, Hreinn Vilhjálmsson á bassa
og Guðmundur Steingrímsson trommari.
Næst var blásið til dansleiks þann 25.
nóvember og ekki skánaði aðsóknin. Formaður
SÍHU Gunnar Kvaran byrjaði ballið ásamt
Hreini Vilhjálmssyni, en þeir hafa um árabil
leikið undir dansi hjá Þjóðdansafélagi
Reykjavíkur. Sigurður Alfonsson og Reynir
Jónasson tóku síðan við. Hilmar Hjartarson
lauk svo dansleiknum í samleik með Lindu
Björk Guðmundsdóttur, sem hljóp í skarðið
fyrir Friðjón Hallgrímsson, sem sökum
handleggsbrots gat aðeins sinnt miðasölu og
dyravörslu þetta kvöld. Guðmundur
Steingrímsson lék á trommur, Hreinn
Vilhjálmsson var á bassanum og Grímur
Sigurðsson á gítar og bassa. Er það í fyrsta
skipti sem Grímur tekur þátt í dansleik hjá
félaginu.
Fjörutíu ára afmælishátíð Félags harmoniku-
unnenda í Reykjavík var haldin laugardaginn
4. nóvember með kaffisamsæti í Breiðfirðinga-
búð. Kvennasveit félagsins lék meðan gestir
komu sér fyrir, en síðan hófst afmælisdagskrá
sem Friðjón Hallgrímsson formaður
skemmtinefndar stjórnaði. Hún hófst með því
að formaður félagsins Steinþóra Agústsdóttir
bauð gesti velkomna með viðeigandi ávarpi.
Hilmar Hjartarson varaformaður rakti því
næst sögu félagsins í stórum dráttum og kom
þar margt fróðlegt og skemmtilegt fram. Næst
lék hljómsveit FHUR undir stjórn Reynis
Jónassonar, A góðum degi eftir Tómas R.
Einarsson, Fúsasyrpu eftir Sigfús Halldórsson
FomaSur FHUR Steinþóra Agústsdóttir setur samkomuna
og Stúlkan mín eftir Jón Múla Árnason. Þá
var komið að heiðrunum nokkurra úrvals
félaga. Eftirtalin voru sæmd silfurmerki
FHUR; Ágústa Bárðardóttir, Guðmundur
Samúelsson, Gunnar Auðunn Ásgeirsson,
Ingvar Hólmgeirsson, Jónína Þorsteinsdóttir,
Pálhildur S. Guðmundsdóttir, Sigríður
Guðbjartsdóttir, Sigríður Sigurðardóttir,
Sigurður Alfonsson, Sigurður Harðarson og
Valmundur Ingi Pálsson. Þá voru fjórir gerðir
að heiðursfélögum, þau Bjarni Marteinsson,
Elísabet Halldóra Einarsdóttir, Hilmar
Hjartarson og Þórleifur Finnsson. Stjórn
FHUR hafði einnig samþykkt að gera Elsu
Kristjánsdóttur að heiðursfélaga, en hún
starfaði frá upphafi í stjórn og nefndum
félagsins, auk þess að leika í hljómsveitinni í
áratugi. Við skyndilegt fráfall hennar 20.
september sl. urðu allar slíkar áætlanir að
engu, en var henni þakkað allt sem hún vann
félaginu. Allt hefur þetta heiðursfólki unnið
félaginu lengi af mikilli fórnfysi, sumir jafnvel
frá stofnun þess. Þá var komið að þeim
félögum Reyni Jónassyni og Sigurði
Alfonssyni. Þeir léku Cornelli eftir Arnstein
Johansen og Por una Cabeza eftir Carlos
Gardell, en bættu síðan við Fördeminnen eftir
Arnstein eftir almenn fagnaðarlæti. Guðrún
Guðjónsdóttir ávarpaði samkomuna og flutti
vel þegna afmæliskveðju frá Harmonikufélagi
Reykjavíkur. Eðvarð Árnason þakkaði fyrir
áralanga samveru í félaginu og árnaði því
heilla. Að lokum þakkaði Steinþóra formaður
þeim tæplega eitt hundrað gestum, sem sátu
hófið, fyrir komuna og sleit samkomunni.
Voru gestir almennt þeirra skoðunar að
dagurinn hefði verið ánægjulegur í alla staði
og samveran notaleg.
Friðjón Hallgrímsson
Myndir: Siggi Harðar
Þau voru gerð að keiðursfélögum á á hátíðinni. Þórleifur
Finnsson, ElísabetH. Einarsdóttir og Hilmar Hjartarson.
Bjarni Marteinsson var jjarverandi vegna veikinda
6
Þau sem hlutu silfurmerki FHUR. GunnarAuðunn Asgeirsson, Ágústa Bárðardóttir, Guðmundur Samúelsson, Sigrtður
Sigurðardóttir, Jónína Þorsteinsdóttir, Sigurður Alfonsson, Ingvar Hólmgeirsson, Valmundur Ingi Pálsson og Sigurður
Harðarson. Pálhildur Guðmundsdóttir og Sigríður Guðbjartsdóttir áttu ekki heimangengt að þessu sinni