Harmonikublaðið - 01.12.2017, Blaðsíða 16

Harmonikublaðið - 01.12.2017, Blaðsíða 16
Húnvetninga, Vestlendinga, Skagfirðinga og Selfyssinga. Þá má ekki gleyma þeim sem heimsóttu okkur, en Rangæingar, Selfyssingar, Borgfirðingar, Dalamenn og fleiri hafa nokkrum sinnum hlaupið undir bagga á dansleikjum félagsins. Það liðu ekki nema fjögur ár frá stofnun FHUR þar til landssambandið var myndað af þeim fimm félögum, sem þá höfðu verið stofnuð og í beinu framhaldi af því var efnt til fyrsta landsmótsins, en þá voru félögin orðin sex. Það fór fram í Reykjavík dagana 4. til 6. júní 1982 og bar þess merki að vera byrjendaverk, en undirbúningur var allur í höndum FHUR. Ekki tóku öll félögin þátt í þessu fyrsta landsmóti, en samkvæmt bestu upplýsingum voru þar auk FHUR, Þing- og fljótlega var til mikið einvala lið, sem treysta mátti fyrir dansleik. Mjög hefur þeim fækkað í seinni tíð. Upp í hugann koma nöfnin, Jóhannes Pétursson, Agúst Pétursson, Þorvaldur Björnsson, Garðar Jóhannesson, Sigurgeir Björgvinsson, Grettir Björnsson, Bragi Hlíðberg, Reynir Jónasson og ótal margir fleiri. Félagið hélt árshátíðar um árabil, en 2013 var sú síðasta. Þess í stað hefur félagið staðið fyrir þorrablótum um 20 ára skeið. Síðustu fimmtán árin hafa þessar skemmtanir verið haldnar í samvinnu við Þjóðdansafélag Reykjavíkur. Félagið gaf út hljómplötu með íslenskum harmonikuleikurum víða af landinu 1980 og önnur hljómplata var gefin út 1984, þar sem Hefur hljómsveit félagsins leikið hlutverk þar auk þess sem minni hópar og einleikarar hafa komið þar fram fyrir hönd félagsins. Auk þess að eiga fulltrúa á tónleikum landsmótanna hafa fjölmargir félaga leikið fyrir dansi á mótunum. Ætíð hefur verið kappkostað að hafa áhugasama stjórnendur (helst harmonikuleikara) við hljómsveit félagsins. Til að byrja með var ekki hljómsveit félagsins, eins og síðar varð, heldur nokkrir hópar sem æfðu undir leiðsögn ýmissa félaga. Þannig varð til Gústa (Ágúst Pétursson) hópur og Sigga (Sigurður Alfonsson) hópur, en strax á öðru landsmótinu sem haldið var á Varmalandi í Borgarfirði um Jónsmessuna 1984, lék nítján manna hljómsveit FHUR undir stjórn Reynis Jónssonar. Svo skemmtilega vill til, að varðveist Glaumur oggleði íArnesi 2004. Mynd: Sigurður Harðarson Frd tónleikum Lars Ek íÁrnesi 2007. Mynd: Sigurður Harðarson Vestfirðingar oggeStir við œfingar á Borg2017 Mynd: Sigurður Harðarson Dansinn stiginn á árshátíð 2013 Mynd: Sigurður Harðarson eyingar, Eyfirðingar og Vestlendingar. Mótið hófst með samleik félaga á Lækjartorgi föstudaginn 4. júní. Um kvöldið var danleikur í Sigtúni. Á laugardeginum voru síðan tónleikar og dansleikur í Festi í Grindavík!! Mótinu lauk síðan á skemmtifundi í Glæsibæ um miðjan sunnudaginn. Það var ýmislegt fleira í boði þessa helgi, því listahátíð hófst í borginni á laugardeginum, auk þess var þetta Sjómannadagshelgin. Þannig gekk þetta nú til, það Herrans ár 1982. Frá upphafi hafa dansleikir leikið stórt hlutverk í starfi félagsins. I upphafi var ekki mikið um vana dansspilara en með tímanum rættist úr 16 allir harmonikuleikararnir voru félagsmenn. Aðeins þremur árum seinna var komið að þriðju plötunni og var hún gerð í tengslum við ferð félagsins til Noregs. Það var svo árið 1996 að gefinn var út geisladiskur þar sem leikur hljómsveitar félagsins var í aðalhlutverki. Að sjálfsögðu eru þessar útgáfur misjafnar að gæðum eins og gengur, en engu að síður ómetanlegur vitnisburður um það öfluga starf sem fram fór í félaginu. Ometanlegar hjálparhellur við upptökur voru þeir Högni Jónsson og Grettir Björnsson. Félag harmonikuunnenda í Reykjavík hefur frá upphafi átt fulltrúa á landsmótum SlHU. hefur 30 mínútna upptaka sem er aðgengileg á YouTube, sem gerð var sömu helgina, þegar hljómsveitin brá sér í Borgarnes og lék í kaupfélagsportinu fyrir bæjarbúa í sól og sumarblíðu. Síðan hafa stjórnað hljómsveitinni Þorvaldur Björnsson, Daníel Bjarnason, Reynir Sigurðsson og Sigurður Alfonsson. Reynir Jónasson hefur oftar en einu sinni komið að stjórn hennar og er núverandi stjórnandi. A fyrstu tuttugu árum félagsins var Karl Adólfsson ákaflega drjúgur útsetjari, en útsetningar hans þótt sérlega góðar, enda mjög vinsælar með harmonikuunnenda víða á landinu.

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.