Harmonikublaðið - 01.12.2017, Page 7
Séð yfir samkomuna
Stjórn FHUR 2017. Harpa varamaður, Steinþóra formaður, Gyða ritari, Hilmar
varaformaður, Haukur gjaldkeri og Hreinn varamaður. Asgerður meðstjórnandi
var erlendis
Bryggjiibdl í Norðurfirði
Mynd: Hilmar Hjartarson
Það var í ágúst að áliðnum slætti 2015 að
haldið var bryggjuball í Norðurfirði í
Arneshreppi í fyrsta sinn. Harmonikan
hljómaði þar í öndvegi með söng og undirleik
annarra hljóðfæra. Hugmyndasmiður þessa
viðburðar var Linda Björk Guðmundsdótrir
frá Finnbogastöðum í Arneshreppi. Ballið bar
fyrirsögnina „Dansleikur við nyrsta haf‘ og
fór fram þann 22. ágúst 2015. Veðurfarið var
með eindæmum leiðinlegt fyrir slíka útihátíð,
það ausrigndi nánast þar til ballið hófst, en þá
stytti skyndilega upp. Allt tókst vel og var
mótshaldara til sóma ásamt ýmsum öðrum
hjálparhellum er studdu verkefnið. Fjölmenni
dreif að, tónlistarmenn komu frá Eyjafirði,
Vindbelgirnir úr Reykjavík auk Lindu sem lék
á harmoniku og söng. Svo mikil dansstemning
hélst að í steinum og stígvélum small. Kaffi
Norðurfjörður og fiskhúsið stóðu opin fyrir
gestina. Ekki er létt að ákveða dagsetningu ár
fram í tímann og veðja á að veðurguðirnir
aumkist yfir mótshaldara á þessum árstíma.
Þegar um útihátíð er að ræða skiptir veðurfarið
miklu máli. Allavega varð ekki úr að halda ball
2016, en aftur á móti höfðu menn sótt í sig
veðrið 2017 og allt sett á fulla ferð í
undirbúningi og dagsetning ákveðin 18. og
19. ágúst. Tónlistarmenn voru pantaðir úr
Eyjafirði og Þingeyjarsýslu ásamt Vind-
belgjunum auk hljómsveitar að nafni Gleði-
konurnar. Hún er skipuð þremur ungum
konum og einum herra er leikur á kontrabassa.
Ein kvennanna leikur á ukulele, önnur á
klarinett og Linda Björk á harmoniku. Nú
var bryddað upp á þeirri nýjung að halda
tónleika föstudagskvöldið átjánda í Kaffi
Norðurfirði. Tónleikarnir hófust með samleik
greinarhöfundar, sem einnig er stuðningsaðili
og mótshaldara á harmonikur. Þá tóku
Vindbelgirnir við og léku nokkur vel valin lög,
en Gleðikonurnar slógu botninn í hina
skipulögðu tónleika sem fóru fram fyrir
troðfullu húsi og glimrandi undirtektum gesta.
Fyrir bryggjuballið á laugardagskvöldinu hafði
verið stillt upp stórum sendibíl á bryggjuna
sem senu og allt þrifið út í hvert horn. Margar
hjálparhellur lögðu fram krafta sína í
undirbúning og hjálp afýmsum toga. Að auki
var þessi samkoma haldin í samvinnu við
Ferðafélag Islands og Kaffi Norðurfjörð ásamt
því að hreppurinn styrkti með því að rukka
ekki fyrir rafmagn, en auk þess sá björg-
unarsveitin Strandasól um gæslu. Skemmst
frá að segja tókst bryggjuballið vel, góð
stemming og veðrið með eindæmum gott,
stjörnubjartur himinn og norðurljós sem lýstu
UPP bryggjuna-
Hilmar Hjartarson
1