Harmonikublaðið - 01.12.2018, Page 6

Harmonikublaðið - 01.12.2018, Page 6
Aðalfandur SÍHU 2018 I upphafi voru aðalfundir SIHU haldnir í tengslum við landsmótin á þriggja ára fresti. Landsmót byrjuðu yfirleitt á aðalfundi, sem hófst jafnvel eftir hádegi á fimmtudegi. Þess á milli voru haldnir svokailaðir haustfundir, en þá gafst betri tími til ákvarðana heldur en á aðalfundunum. Þetta breyttist árið 1999. Þá var haldinn aðalfundur í tengslum við landsmótið á Siglufirði, honum síðan frestað og fram haldið í Varmahlíð um haustið. Síðan hafa aðalfundir sambandsins farið fram á haustin, en landsmótin eingöngu snúist um tónlistarflutning og skemmtanahald. Aðalfundur SIHU í ár var haldinn í Hótel Kjarnalundi á Akureyri laugardaginn 6. október sl. Samkvæmt venju tók fólk að drífa að hótelinu upp úr hádeginu á föstudeginum og urðu fagnaðarfundir víða, enda margir ekki sést í heilt ár. Um kvöldið bauð Félag harmonikuunnenda við Eyjafjörð upp á léttan kvöldverð og fljótlega upp úr því hófst harmonikuleikur, sem var með minnsta móti miðað við undanfarin ár. Varð kvöldið þó hið ánægjulegasta þegar upp var staðið laust fyrir miðnætti. Hinn hefðbundni aðalfundur hófst klukkan ellefu næsta morgun og voru mættir fulltrúar frá ellefu félögum. Fjögur félög sendu ekki fulltrúa. Formaður sambandsins flutti sína skýrslu í upphafi fundar og síðan tók við hefðbundin aðalfundardagskrá. Það hafði verið tilkynnt fyrir fundinn að formaðurinn, Gunnar Kvaran, hyggðist hætta og var því kosinn nýr formaður. Einn var í kjöri til formanns, gjaldkeri sambandsins, Filippía Sigurjónsdóttir úr Félagi harmonikuunnenda við Eyjafjörð. Var hún kjörin með lófataki, en þetta er í annað sinn sem kona gegnir þessu embætti. Við þetta þurfti að kjósa nýjan gjaldkera og til eins árs var kjörin Melkorka Bendiktsdóttir, margreyndur gjaldkeri innan sambandsins. Haraldur Konráðsson verður áfram varaformaður og Sigrún Halldórsdóttir ritari. Pétur Bjarnason verður meðstjórnandi og þau Sigurður Olafsson og Sólveig Inga Friðriksdóttir varamenn. Að lokinni kosningu voru Gunnari þökkuð störf hans fyrir sambandið, en hann hafði setið sem formaður síðan á aðalfundinum í Sveinbjarnargerði í Eyjafirði árið 2011 og áður sem varaformaður og ritari. Meðal þess sem rætt var á fundinum var tillaga FHUR um breytingu á hlutfallaskiptingu gróða eða taps af landsmótum. Fundarstjóri vísaði tillögunni frá, enda væri skiptingin bundin í lögum sambandsins og yrði því að koma fram sem lagabreyting. Hins vegar samþykkti fundurinn að FHUR yrði falið að sjá um næsta landsmót. Að vanda urðu umræður fjörlegar undir liðnum Önnur mál og kom þar ýmislegt fram 6 Aðalfundarfulltrúar í Kjarnalundi Dansinn stiginn í Lóni Það er löng hejð fyrir því að stilla saman strengi á fóstudagskvöldið á aðalfundarhelginni varðandi framtíð harmonikufélaganna í landinu, en margir eru uggandi vegna hás meðalaldurs í öllum félögunum. Þá bar á góma sú aðferð sumra félaganna, sem láta Harmonikublaðið fylgja félagsgjaldinu. Fundartímann notuðu makar fulltrúanna til óvissuferðar í boði FHUE og bar ýmislegt fyrir augu og eyru í þeirri ferð. Gómsætur kvöldverður var svo borinn fram tímanlega, enda dansleikur í Lóni um kvöldið. Að sjálfsögðu fór hann vel fram enda engir viðvaningar á ferð í skemmtanahaldi þegar harmonikuunnendur slá saman í ball. Þar mátti dansa við hljóðfæraleik margra af bestu

x

Harmonikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.